Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 43
LAUGARDAGINN 19. ÁGÚST GEFIÐ ÚT AF REYKJAVIKMAG / 365 PRENTMIÐLAR ÁBM. ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON EFNI HANNA BJÖRK VALSDÓTTIR OG KRISTRÚN HEIÐA HAUKSDÓTTIR HÖNNUN REYKJAVIKMAG / HELGA GUÐNÝ ÁSGEIRSDÓTTIR Landsbankinn býður gestum Menningarnætur upp á veglega dagskrá í ár en bankinn hefur frá upphafi verið sérlegur bakhjarl hátíðarinnar. Í ár verður bankinn með hljómsveitir á tveimur sviðum, á aðalsviðinu við útibúið í Austurstræti 11 og hitt sviðið við Laugaveg 77. Dagskráin á aðalsviðinu hefst kl. 16 og þar koma meðal annars fram Íslenski dansflokkurinn, Gunni og Felix sem skemmta börnunum, Guitar Islancio, Baggalútur og Mezzoforte sem kemur saman í upprunalegri mynd í fyrsta sinn í 20 ár. Benni Hemm Hemm stígur á svið kl. 21 en hann sló rækilega í gegn fyrr á árinu þegar hann hlaut tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum, annars vegar fyrir bestu plötu ársins í flokknum „ýmis tónlist“ og hins vegar Bjartasta vonin í íslenskri tónlist. Verðlaunin hlaut hann fyrir frumburðinn Benni Hemm Hemm sem er mestmegnis heimatilbúin plata sem Benni gaf út sjálfur. MEÐ NÝTT EFNI Benni Hemm Hemm mætir galvaskur til leiks á Menningarnótt þar sem hann mun spila nýtt og gamalt efni í bland. ,,Já, við erum búin að taka upp heila plötu og munum spila lög af henni. Ég ætla að gefa hana út á Íslandi í desember. Þetta verður jólaplatan í ár,“ segir Benni glaður með nýju plötuna. ,,Ég er mjög ánægður með hana, hún er svolítið frábrugðin hinni, ég veit ekki hvernig ég á að lýsa því en hljómurinn er einhvern veginn dimmari og lögin öðruvísi.“ Benni gefur plötuna út sjálfur á Íslandi en hin þekkta þýska plötuútgáfa Morr mun gefa hana út í Evrópu og Bandaríkjunum. Benni er einmitt nýkominn frá tónleikaferðalagi um Þýskaland með hljómsveitinni. Benni hefur til liðs við sig stórsveit hlaðinni miklu hæfileikafólki. Það eru tíu til tólf manns sem spila á trommur, bassa, gítara, básúnur, trompeta, kornett, klukkuspil og slagverk. ,,Það er svolítil rótering í bandinu af því að það komast ekki alltaf allir á sama staðinn á sama tíma. Þess vegna æfum við voðalega sjaldan, en það er mjög góð æfing að spila svona stanslaust í heila viku eins og við vorum að gera úti, þannig að hljómsveitin verður í fínu formi á laugardagskvöldið,“ lofar Benni ánægður með Þýskalandsferðina. FRÁBÆRT AÐ SPILA Á MENNINGARNÓTT Benni segir að það leggist frábærlega í hann að fá að spila á Menningarnótt. ,,Ég hef eiginlega aldrei verið niðri í bæ á Menningarnótt eftir að þetta varð svona risastórt dæmi þannig að ég veit varla við hverju ég á að búast. Mig hlakkar mikið til að spila fyrir fólkið og það er mjög skemmtilegt að fá að spila nýju lögin fyrir svona marga þar sem allir skilja textana,“ segir Benni en nýju lögin eru á íslensku. Mest spiluðu lögin hans Benna eru „I can love you in a wheelchair baby“ og perlan „Til eru fræ“ eftir Hauk Morthens. „Mig dreymdi að ég væri að spila þetta lag í kokteilboði og það var hljómsveit að spila það í þessum fílíng, þess vegna tók ég það upp,“ útskýrir hann. Útsetning Benna fékk mjög góð viðbrögð og hann lofar að spila það á tónleikunum. Sviðið verður staðsett við hornið á Austurstræti og Pósthússtræti og vísar í áttina að krossgötunum og að Dómkirkjunni. Það má búast við að fólk muni flykkjast til að sjá þessa einstöku tónleika þannig að á Austurvelli verður risakjár, hljóðkerfi og góð stemning eins og á alvöru útitónleikum, frá kl. 20 og þar til Mezzoforte lýkur tónleikadagskránni. -hbv HITT SVIÐIÐ: UNG OG FERSK BÖND Á hinu sviðinu við Laugaveg 77 munu tíu ungar og ferskar hljómsveitir stíga á svið. Capybara hefja tónleikana kl. 14 en síðan koma fram Benny Crespo´s Gang, Bogomil og Flís, Jan Mayen, Jakóbínarína, Skátar, Hairdoctor og Reykjavík! en Jeff Who? endar tónleikana kl. 17.15. Hugmyndin var að búa til svið með tónlistarmönnum sem höfða kannski hvað helst til yngra fólks og breikka þannig flóru tónlistarmanna sem bankinn býður fólki að hlýða á. TÓNLISTARVEISLA LANDSBANKANS BENNI HEMM HEMM ÁSAMT FRÍÐU FÖRUNEYTI Ljósmynd/Silja Magg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.