Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 69
THULE Aftur leikur Rebekka
sér að því að skeyta tveimur
myndum saman.
„OUT OF THE BLUE“ Óhætt er að
fullyrða að hér er líkt og vatnið
komi úr engu.
LAUGARDAGUR 19. ágúst 2006 41
REYNDI AÐ BRJÓT-
AST INN Í FANGELSI
Fyrrverandi fangi í Austur-
ríki saknaði lífsins innan
fangelsisveggjanna svo
mikið að hann reyndi að
brjótast inn í fangelsið sem
hann hafði afplánað dóm
sinn í.
Detlef Federsohn, 23 ára, slapp úr
fangelsinu í Josefstadt í Vín fyrir
skömmu, eftir að hafa afplánað
tveggja ára dóm fyrir þjófnað.
Federsohn var handtekinn í síð-
ustu viku þar sem hann var uppi á
þaki fangelsisins og var að reyna
komast inn í það á ný.
„Lífið innan veggja fangelsis-
ins er mun auðveldara en utan
þeirra. Þar færðu að borða,
fötin eru þvegin af þér og
þú færð að horfa á sjón-
varpið. Það er miklu meira
en er gert fyrir mig heima
hjá mömmu. Þess vegna
ætlaði ég að reyna að
svindla mér aftur inn án
þess að verðirnir tæku eftir
því,“ sagði Federsohn.
LEITA AÐ LÉLEGUM
ROLLUM
Ástralskir bændur hafa
verið beðnir um að tilkynna
um allt sauðfé í hjörðum
sínum, sem ekki er lagð-
prútt. Ástæðan er sú að
vísindamenn vilja bæta
ullina á fénu og hafa
hrundið af stað herferð í því skyni
undir nafninu Xtreme sheep.
Vísindamenn í Ástralíu segja að
gen sumra kinda geti haft slæm
áhrif á ullina og því vilja þeir
reyna að uppræta þær kindur
eins fljótt og auðið er. Þær rollur
sem draga skal í þann dilk eru
með lélega ull og blettaskalla.
HÖFÐAR MÁL GEGN
VEÐURFRÆÐINGUM
Rússnesk kona hefur höfð-
að mál gegn veðurfræð-
ingum þar sem hún segir
þá hafa eyðilagt fyrir sér
sumarfríið með lélegri
spá.
Alyona Gabitova kom
fyrir rétt í bænum Uljanovsk í
Rússlandi og sagði að veðurfræð-
ingar hefðu spáð 28 stiga hita og
sólskini á nærliggjandi stað þar
sem hún hugðist eyða sumarfríi
sínu. Þess í stað hellirigndi og hún
varð, að eigin sögn, gegnsósa sem
og tjaldið hennar og allur útilegu-
búnaðurinn.
Gabitova hrökklaðist heim úr
fríinu með kvef og hita og hefur
nú höfðað mál gegn veðurfræð-
ingunum og vill fá
endurgreitt.
Dómstóllinn á
enn eftir að
kveða upp
sinn dóm.
�����������������
������������
�����������������
�������������
������������
����������� �����
������������
������������
����������� �����
������� ������
������������
����������� �����
����������������
������������
����������� �����
���������������
�����������
����������� ����
������ ����� �������������������������
������������������
�����������
����������� ����
SKRÝTNAR FRÉTTIR