Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 84
19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR56
FRUMSÝND 18. ÁGÚST
9. HVER
VINNUR!
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
SENDU SMS SKEYTIÐ
JA CAF Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ
MIÐA FYRIR TVO.
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR 2
DVD MYNDIR
VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI
OG MARGT FLEIRA!
Mel Gibson hlaut þriggja ára skil-
orðisbundinn dóm og er gert að
mæta á fundi hjá AA-samtökun-
um fimm sinnum í viku næsta
fjóran og hálfan mánuðinn fyrir
að hafa verið tekinn með of hátt
magn af áfengi í blóðinu. Gibson
var sem kunnugt er handtekinn
fyrir ölvunarakstur í lok júlí en
það voru ef til vill ummæli hans
um gyðinga sem voru hvað mesti
fréttamaturinn. Leikarinn sagði
gyðinga vera ábyrga fyrir öllum
styrjöldum í heiminum og spurði
í framhaldi hvort lögreglumaður-
inn sem stoppaði hann væri gyð-
ingur. Ummælin fóru mjög fyrir
brjóstið á áhrifamiklu fólki í
afþreyingariðnaðinum en jafn-
framt komu allar helstu stór-
stjörnur Bandaríkjanna Gibson
til varnar.
Leikarinn mældist með 0,12
prómill af áfengi í blóðinu en
leyfilegt magn í Kaliforníu er
0,08. Honum var engu að síður
sleppt með ákæru fyrir að hafa
verið drukkinn undir stýri og að
hafa ekið með opna tequila-flösku
í bílnum. Gibson játaði sig sekan
en mætti ekki til að hlýða á
úrskurðinn. Saksóknarinn í mál-
inu, Gina Satriano, sagðist vera
ánægð með niðurstöðuna og
kvaðst líta á þetta sem fordæmis-
gefandi fyrir aðra sem ætluðu að
aka undir áhrifum.
Gibson bauðst til að gera for-
varnarmynd sem sýndi hörmu-
legar afleiðingar ölvunaraksturs
en dómstóllinn gerði ekki kröfu
um það. Þá var einnig úrskurðað
að fjölmiðlar fengju ekki aðgang
að hljóðritunum og myndbands-
upptökum af handtökunni þar
sem ummæli Gibsons um gyðinga
hefðu ekki verið refsiverð.
Gibson fékk þrjú ár skilorðisbundin
MEL GIBSON Þarf að mæta fimm sinnum
víku á fundi AA-samtakanna næstu mán-
uðina samkvæmt dómsuppkvaðningu.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Unglingastjarnan Haley Joel
Osment er í vondum málum en
hann hefur verið kærður fyrir að
hafa marijúana undir höndum
auk þess að hafa verið tekinn
fyrir ölvunarakstur. Osment,
sem er einungis átján ára, gæti
átt yfir höfði sér sex mánaða
fangelsi ef hann verður fundinn
sekur um öll ákæruatriði en upp
komst um leikarann þegar hann
klessti bílinn sinn í júlí með þeim
afleiðingum að hann rifbeins-
brotnaði og brákaðist á öxl.
Talsmaður Osment fékkst ekki
til að gefa út yfirlýsingu en leik-
arinn á að mæta fyrir dómi 19.
september næstkomandi.
Saksóknarinn í málinu ákvað
að kæra leikarann fyrir eign á
fíkniefnum og ölvunarakstur en
talið er að áfengismagnið í blóð-
inu á Osmount hafi verið vel yfir
leyfilegu hámarki sem eru 0,08
prómill. Samkvæmt aðstoðarsak-
sóknaranum Ed Green er talið að
áfengismagnið hjá Osment hafi
verið 0,15 og var gefin út sérstök
ákæra vegna þess. Osment vakti
mikla athygli fyrir ótrúlega
frammistöðu í kvikmyndinni
Sixth Sense og var hann tilnefnd-
ur til Óskarsverðlauna fyrir
besta leik í aukahlutverki. Hann
lék einnig undir stjórn Stevens
Spielberg í A.I. og á móti Kevin
Spacey í Pay it Forward.
Haley Joel Osment er langt
því frá fyrsta barnastjarnan sem
lendir í erfiðleikum með áfengi
og fíkniefni. Drew Barrymore
gekk næstum af sjálfri sér dauðri
á unga aldri með óhóflegri áfeng-
is- og fíkniefnaneyslu og þá hefur
Edward Furlong (sem lék í Term-
inator 2) margoft komist í kast
við lögin vegna alls konar minni
háttar afbrota. Ekki má gleyma
Macaulay Culkin úr Home Alone-
myndunum sem má muna fífil
sinn fegurri en ekki er langt
síðan hann var dæmdur fyrir
hassreykingar.
Osment í klandri
HALEY JOEL OSMENT Langt frá því að vera
fyrsta barnastjarnan sem lendir í erfiðleik-
um með vímuefnaneyslu.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Hin árlega Tom Selleck-keppni var
haldin á skemmtistaðnum Sirkus á
fimmtudaginn var. Keppnin gengur
út á það að föngulegir karlmenn
keppa um hver hefur flottasta yfir-
varaskeggið. Í fyrsta sæti var Erik,
Styrmir hlaut annað sætið og Óttar
Proppé hreppti þriðja sætið. Dóm-
nefndin var ekki af verri endanum
en hana skipuðu Ragnhildur Gísla-
dóttir söngkona, Björgvin Halldórs-
son söngvari, Ragnar bassaleikari í
Botnleðju og fyrrverandi sigurveg-
ari mottukeppninnar og Svavar Örn
hárgreiðslumaður. Mikil var gleðin
á Sirkus og keppendur tjölduðu öllu
til var, enda ekki amalegt að vera
valinn motta ársins. -áp
Motta er máttur
ENDALAUS GLEÐI Jóhanna, Óli Hjörtur og
Ýr voru í svakalegu stuði enda Mottu-
keppnin orðin árlegur viðburður á Sirkus.
DÓMNEFNDIN Ragnheiður Gísladóttir,
Svavar Örn og Björgvin Halldórsson sjást
hér stíga á svið til að kunngera úrslit
kvöldsins.
ÞRIÐJA SÆTIÐ Óttar Proppé er þekktur fyrir
að geta brugðið sér í hin ýmsu gervi og var
glæsilegur á sviðinu á Sirkus.
SIGURVEGARI KVÖLDSINS Erik vann og var fagnað mjög þegar úrslitin voru kunngerð. Hann
hreppti glæsileg verðlaun svo ekki sé minnst á virðinguna sem fylgir titlinum motta ársins.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
ANNAÐ SÆTIÐ Styrmir hlaut annað sætið
og skálaði við áhorfendur.
„Bæjarbúar tóku mér með kost-
um og kynjum. Ég kom hingað í
blíðskaparveðri, hitti fyrir gott
fólk og fór í félagsheimilið Víkur-
bæ þar sem Ástarvikan fór fram
og ég var settur inn í dagskrána,“
segir Grímur Atlason, sem tók
við bæjarstjórastöðunni á Bol-
ungarvík í fyrradag. „Ég sat með
börnunum mínum og konu og fólk
mærði okkur í bak og fyrir. Það
var létt og góð stemmning, góð
atriði og allt til fyrirmyndar.“
Að sögn Gríms var meðal ann-
ars boðið upp á ástarpunga og
kökur í félagsheimilinu. Honum
þótti einnig vænt um að sveitar-
stjórinn á Súðavík talaði til hans.
„Ég á rætur mínar að rekja þang-
að,“ segir Grímur.
Grímur mætti í Ráðhúsið á
Bolungarvík í gærmorgun en
áður en vinnudagur hófst fór
hann í sundlaugina þar í bæ. „Ég
er mikill sundmaður en syndi
samt aldrei. Ég fer alltaf í pottinn
og þar líður mér vel. Ég fór alltaf
í pottinn í Reykjavík og ætla að
líka að gera það hér,“ segir Grím-
ur. Bæjarstjórinn þykir nokkuð
liðtækur bassaleikari og telur
það ekki ólíklegt að hann muni
draga fram hljóðfærið á Bolung-
arvík. „Halli gamli trommarinn
úr Rotþrónni er hérna. Við höfum
tekið upp saman og síðan er Óli,
fyrrverandi bæjarstjóri, búinn
að bjóða mér að spila með sér.
Bassinn og bassamagnarinn
fylgja allavega með í flutninga-
bílinn,“ segir Grímur bæjar-
stjóri.
Bæjarstjóranum tekið með
kostum og kynjum
FJÖLGUN Á BOLUNGARVÍK Með komu Gríms Atlasonar og fjölskyldu fjölgar fólki á Bolung-
arvík enda eiga bæjarstjórinn og Helga Vala Helgadóttir, eiginkona hans, fjögur börn.