Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2006, Qupperneq 88

Fréttablaðið - 19.08.2006, Qupperneq 88
60 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Þátttaka Íslands í undan- keppni HM, sem fer fram í Kína á næsta ári, hófst á afar jákvæðum nótum, fyrst með sigri gegn Hvít- Rússum á heimavelli og svo jafn- tefli gegn einu besta liði heims, því sænska, á útivelli. Þar með var íslenska liðið komið með bullandi séns á að sigra í riðlinum og tryggja sér þannig sæti á HM í Kína en aðeins eitt lið úr riðlinum kemst í úrslitakeppnina. Næst mætti liðið Tékkum á úti- velli og tapaði leiknum. Voru það mikil vonbrigði eftir þau góðu úrslit sem náðust í Svíþjóð. „Það sló okkur alveg út af laginu,“ sagði Jörundur Áki Sveinsson landsliðs- þjálfari við Fréttablaðið í gær. „En það er núna mikill hugur í hópnum og góð stemning, vonandi eru það góð fyrirheit fyrir leikinn.“ Síðan þá hafa bæði Ísland og Svíþjóð unnið alla sína leiki en Tékkar tapað á heimavelli fyrir Svíþjóð. Ísland og Tékkland eru jöfn að stigum fyrir leikinn í dag og því sigur nauðsynlegur í dag ætli íslenska liðið að ná Svíum að stigum. „Þetta er gríðarlega mikilvæg- ur leikur. Tékkar eru með feiki- lega öflugt lið og það er ekkert sjálfgefið í þessu. Þær spiluðu við Svía á heimavelli í vor og töpuðu naumlega, 3-2. Við höfum reyndar átt í vandræðum með meiðsli og veikindi í undirbúningnum en von- andi verða allir klárir í slaginn á morgun. Vonandi náum við þeim úrslitum sem við viljum og þá verður enn meiri spenna um næstu helgi,“ sagði Jörundur Áki. Á laugardag eftir viku kemur sænska liðið hingað til lands og ef Ísland vinnur í dag verður það nánast hreinn úrslitaleikur um hvort liðið fer til Kína. Svíum mun þó duga jafntefli en þó að marka- tala þeirra sé mun betri en íslenska liðsins mun árangur innbyrðis við- ureigna telja fyrst og þar stendur Ísland betur, ef liðið nær að hafa betur gegn þeim sænsku um næstu helgi. „Við gerum okkur grein fyrir því að við eigum ágæta möguleika á að komast til Kína en við erum ekki að hugsa svo langt. Það þarf að passa að spennustigið í leiknum verði ekki of hátt hjá okkar leik- mönnum.“ Jörundur segir að árangur U-21 liðsins á Norðurlandamótinu nú fyrir skömmu sýni að það sé aðeins tímaspursmál hvenær íslenskt landslið verði með á stór- móti. „Þó að við kæmumst ekki til Kína þá mun það gerast von bráð- ar. Kjarninn úr U-21 liðinu er nú í landsliðinu og erum við með mjög sterka blöndu reyndari og yngri leikmanna í liðinu í dag.“ Leikurinn hefst klukkan 16 á Laugardalsvelli og verður frítt á völlinn í dag. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is ÁSTHILDUR Í BARÁTTUNNI Landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir verður með í dag en hér er hún í baráttunni í leik gegn Hvíta-Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Mætum sterkum Tékkum Í dag klukkan 16 hefst leikur Íslands og Tékklands í undankeppni HM 2007 en úrslitakeppnin fer fram í Kína. Ísland á raunhæfan möguleika á að tryggja sér sæti á mótinu en þarf að vinna þá leiki sem eftir eru. Í dag eru það Tékkar. Hafnfirðingurinn Emil Hallfreðsson hefur staðið sig vel hjá sænska úrvalsdeild- arliðinu Malmö í ár en hann kom til liðsins um áramótin. Þangað var hann lánaður frá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham sem hann er samnings- bundinn. Hvað tekur við í haust er enn í lausu lofti en að öllu óbreyttu heldur hann aftur til Tottenham þegar tímabilið í Svíþjóð er búið. „Ég er samnings- bundinn Tottenham út tímabilið í vor og á þá möguleika á að semja í eitt ár til viðbótar,“ sagði Emil við Fréttablaðið er hann var á leiðinni aftur til Svíþjóðar frá Austurríki þar sem hann lék með landsliði Íslands skip- uðu leikmönnum 21 árs og yngri. „Ég veit í sjálfu sér ekki hvað tekur við og reyni eins og er að hugsa sem minnst um það. Ég hef heyrt af áhuga hjá Malmö að halda mér og semja við mig og ég veit að þeir eru ánægðir með mig. En ég veit sjálfur ekki fyrir víst hvað ég vil gera.“ Aðspurður segist hann jafnvel velta fyrir sér að fara aftur í Tottenham og berjast fyrir sæti sínu þar. „Ég veit að það yrði mjög erfitt enda er liðið búið að styrkja sig mikið að undanförnu. Þetta verður tíminn einn að leiða í ljós og ætla ég að einbeita mér að því að standa mig vel með Malmö og ná sem flestum leikjum undir beltið.“ Hann segist þó vera orðinn þreyttur enda hafi hann ekki fengið almennilegt frí lengi. „Þegar tímabilinu lýkur í haust verða komnir 16 mánuðir í röð og ég er orðinn svolítið þreyttur.“ En hann hefur þó verið frá á þessum tíma, bæði vegna meiðsla og veikinda. „Þetta ár byrjaði ekki vel og ég missti af fyrstu fimm leikjum Malmö í vor. En síðan þá hef ég leikið vel flesta leiki liðsins.“ Sem stendur er Malmö í 6. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Hammarby. EMIL HALLFREÐSSON: ÓVÍST HVAÐ TEKUR VIÐ Í HAUST Áhugi hjá Malmö að semja við Emil FÓTBOLTI Spænska félagið Espanyol ásakar Barcelona um að hafa brotið reglur í fyrri viðureign liðanna um spænska Ofurbikarinn. Barcelona vann leikinn 1-0 með marki Ludov- ic Giuly. Þeir Carles Puyol og Xavi spiluðu báðir leikinn en gátu hins vegar ekki verið með spænska landsliðinu í æfingaleiknum gegn Íslandi á þriðjudag þar sem til- kynnt var að þeir væru meiddir. Framkvæmdastjóri Espanyol segir Barcelona hafa brotið reglur FIFA en í þeim segir að þeir leik- menn sem ekki geti verið með í landsleikjum vegna meiðsla megi ekki leika með félögum sínum næstu fimm daga eftir leik. Eiður Smári Guðjohnsen var heldur ekki með í landsleiknum en hann var hins vegar allan tímann á vara- mannabekk Börsunga. - egm Espanyol með ásakanir: Barcelona braut reglur XAVI Meiddur með landsliðinu en ekki með Barcelona. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI William Gallas, varnar- maður Chelsea, hefur ítrekað það að hann vill yfirgefa enska stórlið- ið Chelsea. „Það er enn minn vilji að fara frá Chelsea. Ég vona að mál mín leysist sem fyrst en það hindrar mig samt ekki í að spila,“ sagði Gallas eftir leik Frakklands og Bosníu. Honum finnst að hlutirnir gangi of hægt fyrir sig. „Liðsfélagar mínir sjá samt til þess að mér líður vel á æfingum,“ sagði Gallas sem var ekki með Chelsea í æfingaferð félagsins um Bandaríkin og var skilinn eftir utan hóps þegar Chel- sea mætti Liverpool um síðustu helgi. - egm Frakkinn William Gallas: Ítrekar að hann vilji fara VILL FARA Erfiðlega virðist ganga hjá Gallas að losna frá Chelsea. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Framarinn Heiðar Geir Júlíusson var í vikunni við æfing- ar hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Hammarby en með liðinu leika einnig Pétur Marteinsson og Gunnar Þór Gunnarsson. Í viðtali við heimasíðu félagsins bar hann dvölinni góða sögu en aðstoðar- þjálfari liðsins, Thom Åhlund, sagði hann ekki vera tilbúinn fyrir sænsku úrvalsdeildina. „Þetta er ungur strákur og kraftmikill. Hann hleypur mikið og er góður með bolta. En hann á nokkur ár eftir þar til hann verður orðinn „tilbúinn“. Það er sannarlega þess virði að fylgjast með honum.“ - esá Heiðar Geir hjá Hammarby: Ekki tilbúinn fyrir Svíþjóð Heiðar Davíð áfram Heiðar Davíð Bragason lék í gær annan hringinn á Landmann-mótinu í Svíþjóð á einu höggi undir pari. Hann lék hringinn í gær á 71 höggi og er því samtals á parinu eftir 36 holur. Hann var einn af fimmtíu kylfingum sem komust í gegnum niðurskurð og leika lokahring- inn í dag. > Línur farnar að skýrast Lokaspretturinn í neðri deildum Íslandsmótsins í fótbolta er farinn af stað og línur farnar að skýrast. Njarð- víkingar tryggðu sér á fimmtudag sæti í 1. deild á næsta sumri með stórsigri á Aftureldingu. Fimmtándu umferð deildarinnar lýkur í dag en það verða þrjú lið sem fara upp úr 2. deild í ár vegna fjölgunar í þeirri fyrstu. Fjarðabyggð og Reynir úr Sandgerði eru í góðum málum í sætunum fyrir neðan Njarðvík. Í dag lýkur riðlakeppninni í 3. deild með fjölda leikja í öllum riðlum en sex lið hafa þegar tryggt sæti sitt í úrslita- keppninni sem hefst með átta liða úrslitum eftir viku. Íþróttafélagið Gerpla Upphaf vetrarstarfs Gerplu Skráning lýkur 21. ágúst og verða stundaskrár afhentar 26. ágúst fyrir pilta og 27. ágúst fyrir stúlkur (milli 12:00 og 15:00) í Íþrót- tamiðstöðinni að Versölum í Kópavogi. Æfi ngar hefjast sam- kvæmt stundaskrá 1. september. Opinn dagur Til að kynna starfssemi félagsins verður opinn dagur á milli kl. 12:00 og 15:00 sunnudaginn 20. ágúst að Íþróttamiðstöðinni í Versölum. Þar gefst börnum og foreldrum tækifæri til þess að prufa tækin og skoða þá aðstöðu sem félagið býður iðkendum sínum. Skráning fer fram í síma 557-4925 og með tölvupósti gerpla@gerpla.is sjá nánar www.gerpla.is FÓTBOLTI Chelsea er við það að kló- festa hollenska landsliðsmiðvörð- inn Khalid Boulahrouz frá Ham- borg. Hann kemur til Englands í dag og mun skrifa undir samning eftir læknisskoðun en Steve Clark, aðstoðarmaður Jose Mourinho, sagði í gær að hann væri góð við- bót við annars sterkan leikmanna- hóp Chelsea. Kaupin hafa líklega engin áhrif á fyrirhuguð kaup Chelsea á Ashley Cole frá Arsenal en eru merki um að William Gallas fái loks að fara. - hþh Khalid Boulahrouz: Fer til Chelsea FÓTBOLTI Fram vann Þrótt 1-0 í 1. deildinni í gær. Frömurum nægði jafntefli til að tryggja sér sæti í Landsbankadeildinni að ári en þeir gerðu gott betur en það og fengu öll stigin á Valbjarnarvell- inum. Draumur Þróttara um að komast aftur upp fjarlægðist en þeir eru nú í fjórða sætinu, fimm stigum frá HK sem er í öðru sæti. Tvö efstu liðin komast upp í úrvalsdeildina. Þróttarar voru skeinuhættari í fyrri hálfleiknum þó Framarar fengju sín færi en markalaust var í hálfleik. Chris Vorenkamp gekk til liðs við Fram frá ÍBV rétt áður en félagaskiptagluggan- um var lokað og skoraði hann eina mark leiksins þegar sex mín- útur voru liðnar af síðari hálfleik en það kom eftir horn Ingvars Ólasonar. Um miðbik seinni hálfleiksins gerðust Þróttarar mjög ágengir uppi við mark Fram en herslu- muninn vantaði. Úrslitin urðu því 1-0 fyrir Fram og því ljóst að liðið er aftur komið upp í Landsbanka- deildina eftir stutta dvöl í fyrstu deild. HK-ingar eru líklegir til að fylgja þeim upp nú þegar efstu lið eiga aðeins eftir að leika þrjá leiki. Fjölnir er í þriðja sæti deild- arinnar, fimm stigum frá HK og með stigi meira en Þróttur. - egm Fram vann Þrótt í 1. deild karla þar sem Chris Vorenkamp skoraði eina markið: Framarar eru komnir upp SKOT AÐ MARKI Helgi Sigurðsson fékk tvö góð færi til að innsigla sigur Fram í seinni hálf- leik en náði ekki að skora. Hér á hann skot að marki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.