Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 12
12 23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR EFTIRLIT Margir íslenskir smábátar eru orðnir það kraftmiklir og hrað- skreiðir að æ algengara er að þeir fari út fyrir drægni sjálfvirkrar tilkynningarskyldu. Þetta staðfesta starfsmenn Landhelgisgæslunnar en í fyrri- nótt var þyrla send af stað til leit- ar að bát sem farið hafði út úr sjálfvirku tilkynningarskyldunni og ekki náðist samband við með öðrum hætti. Var nálægum bátum einnig gert viðvart og hófu margir þeirra leit strax í kjölfarið. Náði einn slíkur loks sambandi símleið- is við umræddan bát skömmu síðar og var leit þá hætt enda ekk- ert að um borð. Í stjórnstöð Landhelgisgæsl- unnar fengust þær upplýsingar að sökum þess hve margir smærri bátar eru orðnir kraftmiklir og þar af leiðandi mun hraðskreiðari en áður var, sé mun algengara nú en áður að bátar fari lengra á haf út en drægni sjálfvirkra sendi- stöðva þeirra dregur. Fer drægnin jafnan eftir hversu ofarlega hægt er að staðsetja slíkan búnað og er það ekki hátt á flestum smærri bátum. Ekki fengust upplýsing- ar um hvað slík útköll hafa kostað Landhelgisgæsluna en henni ber skylda til að hefja leit strax náist ekki samband við báta eða skip við landið. - aöe ÞYRLA GÆSLUNNAR Útköll vegna báta sem hverfa út fyrir drægni sjálfvirkrar tilkynning- arskyldu hafa aukist talsvert. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sjálfvirk tilkynningarskylda í bátum virkar ekki alltaf sem skyldi: Bátar kraftmeiri en áður var EVRÓPUMÁL Svisslendingar vilja ekki lengur greiða fullan hluta sinn af rekstrarkostnaði Fríversl- unarsamtaka Evrópu, EFTA, að því er segir í frétt norsku frétta- stofunnar NTB í viðskiptablaðinu Dagens Næringsliv. Joseph Deiss, sem þar til fyrir skemmstu var viðskiptaráðherra Sviss, kvað hafa viðrað þess- ar óskir svissneskra stjórnvalda um breytta deilingu rekstrar- kostnaðar EFTA á ráðherrafundi EFTA á Höfn í Hornafirði í lok júní. En þetta útspil Svisslend- inga er fyrst núna komið upp á yfirborð umræðunnar, og kallar á viðbrögð í hinum EFTA-löndun- um, Íslandi, Noregi og Liechten- stein. Þessar óskir Svisslendinga setja í uppnám málamiðlun sem samið var um árið 1995, eftir að Svisslendingar ákváðu að taka ekki þátt í EES-samstarfinu. Þá vildu Íslendingar og Norðmenn að aðalskrifstofa EFTA yrði flutt frá Genf til Brussel, þar sem megin- hluti starfsemi EFTA tengdist EES-samstarfinu. Á það vildu Svisslendingar ekki fallast, svo lendingin varð sú að skrifstofunni var skipt í tvennt. Svisslendingar greiddu þó hlutfallslega stærri hluta kostnaðarins, enda fengu þeir að senda áheyrnarfulltrúa á ýmsa fundi sem tengdust EES- samstarfinu við Evrópusamband- ið, sem gerði Svisslendingum kleift að fylgjast náið með ýmsum málum sem vörðuðu einnig þeirra hagsmuni á innri markaði Evr- ópu. Nú hefur sú breyting orðið á að Sviss hefur gert eigin tvíhliða samninga við Evr- ópusambandið, sem ná að vísu ekki yfir eins vítt svið og EES-samningur- inn en hafa nú leitt til þessara óska um að lækka fjárframlagið til EFTA. „Í stórum dráttum vilja Sviss- lendingar borga fyrir það sem EFTA gerir í Genf, en ekki í Brussel,“ segir í frétt NTB. Víst þykir að ætli Svisslending- ar að halda þessum kröfum til streitu geri Íslendingar og Norð- menn aftur kröfu um að öll EFTA- skrifstofan verði flutt til Brussel, enda augljós sparnaður sem feng- ist fram með því. NTB hefur eftir Antoni Egger, næstæðsta fulltrúa Sviss á EFTA-skrifstofunni í Genf, að stjórnin í Bern standi fast á því að framlag Sviss til EFTA verði tekið til gagngerrar endurskoðun- ar í haust. audunn@frettabladid.is Glíma um fé til EFTA Svisslendingar vilja lækka framlag sitt til EFTA. Með því skora þeir á Íslendinga og Norðmenn í glímu um fjárframlög og staðsetningu höfuðstöðva samtakanna. DEILT UM KOSTNAÐ Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra, William Rossier, fram- kvæmdastjóri EFTA og Joseph Deiss, fyrrverandi viðskiptaráðherra Sviss. Sviss borgar mest til EFTA, en vill nú lækka framlagið. Á móti vilja Íslendingar og Norðmenn spara með því að skrifstofa EFTA í Genf verði sameinuð skrifstofunni í Brussel. DÓMSMÁL Tæplega fimmtugur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa smyglað hingað til lands 42 lítrum af vodka, 3600 vindling- um og 3,5 lítrum af vískíi með skipinu Skógafossi. Tollverðir fundu varninginn við leit í skipinu 6. janúar 2005. Viku síðar fundust 1800 vindlingar á heimili manns- ins auk lítilræðis af áfengi. Talið er að þessum varningi hafi verið smyglað til landsins með Skóga- fossi. Þess er krafist af hálfu sak- sóknara að ákærði verði dæmdur til refsingar fyrir brot á tollalög- um. Málið verður tekið til aðal- meðferðar í Héraðsdómi Reykja- víkur í dag. - mh Smygl með Skógafossi: Smyglaði til landsins áfengi ÞÝSKALAND, AP Líbanskur náms- maður, sem grunaður er um að hafa átt þátt í misheppnaðri til- raun til að sprengja heimatilbúna sprengju í þýskri járnbrautalest, átti sér vitorðsmenn í Hamborg, að því er lögregla greindi frá í gær. Eins og kunnugt er voru lyk- ilmenn í flugráns-árásunum á Bandaríkin 11. september 2001 námsmenn í Hamborg. Lögregla upplýsti einnig i gær að hún hefði borið kennsl á annan mann sem leitað hefur verið vegna sprengnanna tveggja sem fundust ósprungnar í tveimur lestum um mánaðamótin síðustu. Hans er enn leitað. Í blaðinu Süddeutsche Zei- tung var haft eftir heimildarmanni að hinir grunuðu tengdust Hizb- ut-Tahrir, samtökum herskárra múslima. - aa Rannsókn á tilraun til hryðjuverks í Þýskalandi: Vitorðsmenn í Hamborg SVÍÞJÓÐ Gróft tékkneskt klám var sýnt í fréttatíma sænska ríkissjón- varpsins aðfaranótt sunnudagsins, samkvæmt frétt Svenska Dagbla- det. Ástæðan er sú að á skjáum fyrir aftan þulinn eru sýndar erlendar fréttastöðvar. Fyrr um kvöldið var starfsfólk sjónvarpsstöðvarinnar að fylgjast með íþróttum á stöð sem sýnir fullorðinsefni eftir miðnætti, en gleymdi að skipta aftur yfir á fréttastöð og því fór sem fór. Klámið var ekki á skjánum nema í um þrjátíu sekúndur og engar kvartanir hafa borist vegna atviks- ins, en sænskir fjölmiðlar hafa hins vegar gert sér mikinn mat úr mál- inu. - smk Sænska ríkissjónvarpið: Klám sýnt í fréttatíma MAÓRADROTTNING KVÖDD Te Arikinui Dame Te Atairangikaahu, drottning Maóra, var jörðuð á mánudag og sonur hennar krýndur konungur Maóra á Nýja-Sjálandi. Myndin er frá jarðarförinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HÚSLEIT Í KIEL Rannsóknarlögreglumenn á vettvangi í íbúð hins handtekna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.