Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 22

Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 22
 23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.847 +1,73% Fjöldi viðskipta: 576 Velta: 6.187 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 66,00 +1,70% ... Alfesca 4,60 +3,84% ... Atlantic Petroleum 559,00 +0,54% ... Atorka 6,05 +1,68% ... Avion 33,80 +1,81% ... Bakkavör 52,50 +1,55% ... Dagsbrún 5,19 +3,18% ... FL Group 17,80 +2,30% ... Glitnir 19,00 +1,06% ... KB banki 799,00 +2,04% ... Landsbankinn 23,90 +2,58% ... Marel 80,00 -0,62% ... Mosaic Fashions 17,20 +0,00% ... Straumur-Burðarás 15,80 +0,00% ... Össur 123,50 +4,66% MESTA HÆKKUN Össur 4,66% Alfesca 3,84% Dagsbrún 3,18% MESTA LÆKKUN Icelandic Group 1,92% Marel 0,62% Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris jókst um 23,6 pró- sent milli ársloka 2004 og 2005. Það samsvarar 18,7 prósenta raun- aukningu miðað við vísitölu neysluverðs. Nam heildareignin þá 1.219,5 milljörðum króna en var 896,6 milljarðar fyrir árið 2004. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjármálaeftirlitsins um ársreikninga lífeyrissjóða fyrir árið 2005. Ráðstöfunarfé samkvæmt sjóð- streymi á árinu 2005 nam 486,8 milljörðum króna samanborið við 455,1 milljarð árið á undan. Hrein raunávöxtun miðað við neyslu- verðsvísitölu var 13,2 prósent en var 10,4 prósent árið 2004. Iðgjöld hækkuðu milli ára úr 72,4 millj- örðum króna í 87 milljarða. Gjald- færður lífeyrir var 34,9 milljarðar króna 2005 en var 31,2 milljarðar árið 2004. Séreignasparnaður í vörslu líf- eyrissjóða og annarra vörsluaðila jókst talsvert milli ára og nam 146,2 milljörðum króna í árslok 2005 samanborið við 110,5 millj- arða í árslok 2004. - hhs Umfang lífeyris- sjóðanna eykst BEÐIÐ EFTIR STRÆTÓ Í RIGNINGUNNI Í nýrri skýrslu Fjármálaeftirlitsins kemur fram að ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna hafi aukist milli ára. Stór hluti af launum fólks rennur til sjóðanna, sem aftur fjárfesta mikið í innlendum verðbréfum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Færeyska olíufélagið Atlantic Petrolium, sem skráð er í Kaup- höll Íslands, tapaði tæpum 6,4 milljónum danskra króna eða rúmum 77 milljónum íslenskra króna á fyrstu sex mánuðum árs- ins. Þetta er um ellefu sinnum meira tap en á sama tíma fyrir ári. Þá nam taprekstur á öðrum ársfjórðungi rúmum 4 millj- ónum danskra króna eða um 49 milljónum íslenskra króna. Á sama tíma fyrir ári nam tap á fjórðungnum 533 þúsundum danskra króna eða rúmum 6,4 millj- ónum íslenskra króna. Haft er eftir Wilhelm Peter- sen, forstjóra Atlantic Petrol- ium, í tilkynn- ingu frá félag- inu til Kauphallar Íslands að tapið hafi verið meira en reiknað hafi verið með en rekstur félags- ins hafi verið tryggður með hlutafjárútboði í júní á þessu ári. Er mestur hluti tapsins kominn til vegna afskrifta og kaupa á leyfum til olíu- vinnslu. Framkvæmdir félagsins eru á áætlun en reiknað er með að byrj- að verði að olíuvinnsla hefjist á Chestnut-svæðinu á öðrum árs- fjórðungi á næsta ári en á Ett- rick-svæðinu, sem er í lög- sögu Bretlands, í upphafi 2008. Þá mun standa til að skrá Atlantic Petrolium í kauphöllina í Kaup- mannahöfn síðar á þessu ári jafnframt því sem það verði áfram skráð í Kauphöllinni hér á landi. - jab WILHELM PETER- SEN, FORSTJÓRI ATLANTIC PETROL- IUM Tap færeyska olíufélagsins nam 77 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem er ellefuföldun á milli ára. Tap margfaldast hjá Atlantic Petrolium

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.