Fréttablaðið - 23.08.2006, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 23. ágúst 2006 5
Almanak Háskóla Íslands hef-
ur verið gefið út 171 sinni.
Háskóli Íslands gefur út Almanak
fyrir Ísland á hverju ári. Alman-
akið fyrir árið 2007 hefur nú litið
dagsins ljós og er það númer 171 í
röðinni. Dr. Þorsteinn Sæmunds-
son, stjörnufræðingur hjá Raun-
vísindastofnun Háskólans, hefur
reiknað almanakið og búið það til
prentunar.
Auk dagatals eru í almanakinu
margvíslegar upplýsingar, svo
sem um sjávarföll og gang himin-
tungla. Lýst er helstu fyrirbærum
á himni, sem sjást frá Íslandi. Þar
er að finna stjörnukort, kort sem
sýnir áttavitastefnur á Íslandi og
kort sem sýnir tímabelti heimsins.
Einnig er yfirlit yfir hnetti himin-
geimsins, mælieiningar, veðurfar,
stærð og mannfjölda allra sjálf-
stæðra ríkja og tímann í höfuð-
borgum þeirra. Í þetta sinn er sér-
staklega fjallað um stjörnukerfi
vetrarbrautarinnar, lengdarbaug
Greenwich og halastjörnur. Loks
eru í almanakinu upplýsingar um
helstu merkisdaga fjögur ár fram
í tímann.
Fleiri skemmtilegar upplýsing-
ar er að finna á www.almanak.
hi.is
Almanakið
komið út
Háskóli Íslands gefur út Almanak á hverju
ári
Rúmlega 1.450 nemendur hefja
nám í Háskólanum á Akureyri
í haust.
Í dagskóla eru skráðir rúmlega
750 nemendur og um 520 í fjar-
nám. Að auki stunda tæplega 200
nemendur framhaldsnám. Fjöl-
mennustu deildir Háskólans á
Akureyri eru kennaradeild og við-
skipta- og raunvísindadeild með
um 450 nemendur hvor.
Við félagsvísinda- og lagadeild
Háskólans á Akureyri hefst í
fyrsta sinn tveggja ára nám á
meistarastigi í lögfræði. Áhersla
er lögð á hagnýta íslenska lög-
fræði.
Á annan tug skiptinema verða
við nám í HA í vetur. Nemarnir
koma frá Norðurlöndunum, Rúss-
landi, Þýskalandi, Póllandi, Lett-
landi, Kína og Bandaríkjunum en
flestir munu stunda nám við við-
skipta- og raunvísindadeild.
Kennsla nýnema hófst á mánu-
daginn með dagskrá sem nefnd er
velgengnisvika sem snýr að því að
undirbúa nýnema undir nám og
starf í skóla. Kennsla eldri nema
hefst svo í byrjun næstu viku.
Meistaranám
í lögfræði
Nýnemar við HA hófu nám í vikunni.
Skiptibókamarkaður Griffils í
húsnæðið þar sem Áman var.
Það var mikil ös á skiptibókamark-
aði Griffils í Skeifunni 11 þegar ljós-
myndari Fréttablaðsins átti þar leið
hjá. Greinilegt er að Griffill hefur
tekið yfir húsnæðið þar sem Áman
var áður en ekki hefur gefist tími til
að taka niður skiltið.
Mikið er að gera á skiptibóka-
mörkuðum í borginni um þessar
mundir enda skólarnir allir að hefja
starfsemi sína. Nemendur reyna að
spara hverja krónu enda eru bækur
munaðarvara. Þá er gott að geta
fjárfest í bókum með sögu sem
sumar hafa jafnvel aukafróðleik að
geyma með handskrifuðum glósum.
Skipt á gömlum skræðum
Griffill hefur tekið yfir húsnæði Ámunnar en ekki hefur gefist tími til að taka niður skiltið.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
Stelpur - Konur / Staðurinn - Ræktin
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • www.jsb.is
Innritun hafi n á ný í síma 581 3730.
Öfl ug átaksnámskeið fyrir stelpur á
aldursbilinu 16-20 og 21-30!
• Líkamsrækt við skemmtilega tónlist
• Leiðbeiningar um mataræði
• Fundir, aðhald, vigtun og mælingar
Kvöldtímar
Um er að ræða 6 vikna námskeið, 3 x í viku.
Vertu velkomin í okkar hóp!
opnu
m
nÝja
n,
stÆr
ri og
enn b
etri
staÐ
!
opnu
narh
ÁtÍÐ
10. se
ptem
ber
kl. 1
4 - 17
Taktu þér tak!
náViltu