Fréttablaðið - 23.08.2006, Síða 28
[ ]
Félagsskapur sem kennir sig
við Hrafnkelssögu Freysgoða
helgaði kappanum einn dag í
ágúst og efndi til ferða á slóðir
hans á Héraði.
Anna Guðný Halldórsdóttir, hús-
freyja á Brú á Jökuldal, var leið-
sögumaður í gönguferð sem fimmt-
án manns tóku þátt í. Gengið var
frá Brú að Aðalbóli í Hrafnkelsdal
þar sem Hrafnkell bjó forðum.
„Leiðin var sú sama og farin var
á sínum tíma af mönnum sem gerðu
aðför að Hrafnkeli, eftir því sem
sagan greinir. Við gengum sem
sagt í slóð Sáms og Vestfirðing-
anna sem hröktu hann frá búi sínu
og gerðu brottrækan, eftir dóma á
Þingvöllum,“ lýsir Anna þegar haft
var samband við hana símleiðis.
Ferðin var á vegum félags
áhugafólks um Hrafnkelssögu og
menningartengda ferðamennsku á
Héraði og var önnur af tveimur
sem félagið efndi til. Hin var rútu-
ferð sem hófst á Egilsstöðum. Í
henni var staðnæmst við þá sögu-
staði sem sjást frá veginum um
Fljótsdal, Fljótsdalsheiði og vegar-
slóða sem liggur um heiðina niður í
Hrafnkelsdal. Þar sá Páll Pálsson,
fræðimaður á Aðalbóli, um farar-
stjórn. Fleira mun vera í bígerð á
vegum hins nýja félags því verið
er að hanna söguspjöld sem verða
sett á valda staði. - gg
Gengið á Hrafnkelsslóðum
Gengið var í góðu veðri um slóðir Hrafnkelssögu Freysgoða undir traustri leiðsögn Önnu
Guðnýjar Halldórsdóttur sem hér sést í fararbroddi. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Tilboð Nú er um að gera að vera með opin augun
fyrir tilboðum frá flugfélögunum í alls kyns haustferðir
til stórborganna. Það er fín leið til að lengja sumarið.
25. - 27.8.
Miklafell - Hverfisfljót
Helgarganga í stórbrotnu umhverfi Lakagíga.
Fararstjóri Marrit Meintema.
Verð 9200/10400 kr.
Í útileguna
Námskeið um meðferð og notkun ilmkjarnaolía
* Áhrif ilmkjarnaolía á líkama og huga
* Blöndun og uppskriftir
* Ítarleg umfjöllun um 20 algengar ilmkjarnaolíur
* Vegleg námskeiðsmappa fylgir
* Allt efni innifalið
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Rúna Björk Smáradóttir, ilmkjarnaolíufræðingur.
Upplýsingar og skráning á www.palmarosa.is eða í síma 691 3129 (Rúna)
LÆRÐU AÐ NOTA ILMKJARNAOLÍUR
Fyrir einu ári lét Eva Heiða
Önnudóttir draum sinn rætast
og lærði köfun. Síðan þá hefur
hún ekki setið auðum höndum
heldur farið í fjölmargar köfun-
arferðir, bæði innanlands og
erlendis.
„Þegar ég var átján ára fór ég með
vini mínum í næturköfun og eftir
það langaði mig ofsalega að læra
köfun. Í mörg ár reyndi ég að fá ein-
hvern með mér á köfunarnámskeið
en það er svolítið erfiðara en að
plata einhvern með sér til dæmis í
ræktina. Þannig að lokum fór ég
bara ein á námskeið og síðan hef ég
verið á fullu í sportinu,“ segir Eva
Heiða en um leið og hún fékk kaf-
araréttindin fór hún í ferðalag til
Suður-Afríku og þar naut hún þess
að kafa.
„Ég kafaði með hákörlum sem
eru af þeirri tegund sem lætur
menn yfirleitt í friði. Það voru bara
nokkrar reglur sem maður þurfti að
hafa í huga. Til dæmis má alls ekki
klappa þeim og ekki synda á móti
þeim heldur með þeim. Þetta var
náttúrulega svolítið ógnvekjandi en
ég er samt hræddari við að synda í
hellum eða þröngum göngum.“
Eva fékk að kynnast þeim
aðstæðum þegar hún fór með Sport-
kafarafélagi Íslands í köfunarferð
til Vestmannaeyja. „Við fórum í
fjórar kafanir á þremur dögum og
ein köfunin var fólgin í að skoða
neðansjávarhelli. Til þess þarf
maður að fara í gegnum 160 metra
löng göng sem eru inni í einu kletta-
beltinu. Ég þorði það nú ekki. Ætli
innilokunarkenndin hafi ekki stopp-
að mig þar sem það tekur tuttugu
mínútur að komast í gegn og það er
algjört myrkur allan tímann,“ segir
Eva Heiða en köfunin gengur þó
ekki eingöngu út á spennu. „Þó þetta
sé algjört kikk þá er líka hægt að
líkja köfuninni við hugleiðslu.
Umhverfið er svo gjörólíkt því sem
maður þekkir og allar áhyggjur og
hugsanir eru skildar eftir fyrir ofan
vatnið. Þetta er algjör tilfinninga-
leg afslöppun og maður kemur upp
alveg endurnærður.“
Eva Heiða fór í Köfunarskólann.
is og tók bæði verklegt og munnlegt
próf áður en hún fékk réttindin.
„Maður þarf ekkert að vera í topp-
formi til að læra köfun. Þetta tekur
meira á lungun og úthaldið en styrk-
inn. Svo eftir að maður er byrjaður
í sportinu fær maður hálfgerða
dellu. Ég dunda mér við að skoða
alls konar köfunarbúnað og sæki
reglulega í góða félagsskapinn hjá
Sportkafarafélaginu. Ég þekkti
engan þegar ég byrjaði en á nú fullt
af kunningjum. Ég hef farið með
þeim í alls kyns ferðir og nóg er
framboðið. Á veturna er farið
hverja helgi og síðasta gamlárs-
kvöld fór ég til dæmis með félaginu
að kafa í Þingvallavatni. Það var
alveg meiriháttar,“ segir Eva Heiða
að lokum.
Nánari upplýsingar um köfun og
köfunarskólann er að finna á heima-
síðunum: kofun.is og kofunarskol-
inn.is. erlabjorg@frettabladid.is
Endurnærandi sport
Kafað í Þingvallavatni. MYND ÚR EINKASAFNI/KOFUNARSKOLINN.IS
Eva Heiða Önnudóttir sportkafari. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
1 dálkur 9.9.2005 15:20 Page 7
1 dálkur 9.9.2005 15:20 Page 7
Allar nýjustu
upplýsingar og
fréttirá ensku
á vefnum
reykjavik.com
og í blaðinu
Reykjavikmag