Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 34

Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 34
MARKAÐURINN 23. ÁGÚST 2006 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Jón Skaftason skrifar Engin viðskipti hafa átt sér stað á hinum nýja iSEC-markaði Kauphallar Íslands. Opnað var fyrir viðskipti á markaðnum þriðja júlí síðastliðinn. Hampiðjan er enn sem komið er eina félagið á markaðnum. Haraldur Pétursson, sérfræðingur KB banka, segir iSEC-markaðinn ágætis hugmynd sem komið hafi fram á röngum tíma. „Þetta snýst náttúru- lega allt saman um peninga og ef að þeir fást ekki er betra að einfaldlega bíða þar til rætist úr. Hugmyndin er alls ekkert dauðadæmd, sérstaklega ef ástand markaða batnar eins og við reiknum með að gerist nú í haust og vetur.“ iSEC-markaðurinn er einkum ætlaður sprota- fyrirtækjum og eru skráningarskilyrði ekki jafn ströng og á aðallista Kauphallarinnar. Upphaflega stóð til að opna markaðinn skömmu eftir síðustu áramót en tafir urðu á. Mörg fyrirtæki hafa verið orðuð við skráningu; þeirra á meðal 3-Plús og CCP. Þá hugði íslensk- bandaríska líftæknifyrirtækið Cyntellect á skrán- ingu en varð frá að hverfa í kjölfar misheppnaðs hlutafjárútboðs. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að vissulega hafi menn gert sér vonir um kraftmeiri gang hins nýja markaðar. Hins vegar sé engin ástæða til að örvænta; enda eðli smærri markaða að velta sé lítil. „iSEC er spennandi kostur fyrir ung vaxandi fyrirtæki í leit að fjármagni. Við teljum það skyldu okkar og hlutverk að bjóða fyrir- tækjum þennan kost.“ HB Grandi hefur þegar verið afskráð af aðallista Kauphallarinnar og hyggur á skráningu á iSEC- markaðinn annan október. Þórður býst við fimm til tíu félögum til viðbótar á næstu tveimur misserum. „Við teljum það bara tímaspursmál hvenær iSEC- markaðurinn tekur við sér.“ Sjö vikur án viðskipta Enn hafa engin viðskipti verið með bréf á iSEC-markaðnum. Góð hugmynd en slæm tímasetning segir sérfræðingur. KAUPHÖLL ÍSLANDS Forstjóri Kauphallarinnar segir bara tímaspursmál hvenær iSEC tekur við sér. Mikilvægt sé að Kauphöllin bjóði ungum og vaxandi fyrirtækjum upp á þennan kost. MP Fjárfestingarbanki hagnað- ist sem nam 615 milljónum króna á fyrri hluta ársins sem er yfir 78 prósenta aukn- ing milli ára. Jafngildir þetta um 39 prósenta arðsemi eigin fjár á árs- grundvelli. H r e i n a r rekstrartekjur MP voru 1.077 milljónir króna. Vaxtatekjur voru neikvæðar um 250 milljónir, þóknunartekjur voru 569 milljónir króna og gengishagn- aður af fjármálastarfsemi var 725 milljónir króna. Mikill gengishagn- aður varð af verðbréfastarfsemi eða 1.693 milljónir króna, hins vegar nam gengistap af gjaldmiðl- um um 968 milljónum króna. Heildareignir bankans voru 24,8 milljarðar króna um mitt ár og höfðu dregist saman um eitt prósent frá áramótum. Þar af lækkuðu markaðsverðbréf og eignarhlutur í öðrum félögum um fimmtung frá áramótum og námu 15,6 milljörðum króna. Umsvif bankans voru aukin erlendis en efnahagsreikningur bankans hér- lendis dróst saman. Eigið fé bankans hækkaði um einn milljarð króna á tímabilinu og stóð í 4.378 milljónum króna í lok júní. Hækkunin kemur að hluta til vegna aukins hlutafjár en innra virði hlutafjár hefur hækk- að um 22 prósent á árinu, úr 3,35 í 4,09. Margeir Pétursson og félög í hans eigu eiga stærstan hlut í MP. - eþaSTYRMIR ÞÓR BRAGASON, FRAMKVÆMDASTJÓRI MPBankinn skilaði methagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Nærri 40 prósenta arðsemi hjá MP Mikill gengishagnaður af verðbréfum en gengistap af gjaldeyri. Tveir af vinsæl- ustu viðburð- um sumarsins í sjónvarpi, HM á Sýn og Rock Star Supernova á Skjá einum, hafa sogað til sín stór- an hluta af aug- lýsingamarkaðn- um yfir þennan rólegasta tíma ársins. Kunnugir segja að árang- ur söngvararns Magna hafi gert Rockstar að gull- námu. „Það vill nú þannig til að við höfum sett met í hverjum einasta mánuði á þessu ári. Vissulega hefur þessi ágæti þáttur gefið okkur mikinn meðbyr,“ segir Magnús Ragnarsson, sjónvarps- stjóri Skjás eins, aðspurður um þýðingu Rockstar fyrir stöðina. Magnús bendir á að Skjárinn hafi fjárfest svolítið í Rockstar með því að óska eftir því að pruf- ur færu fram hérlendis. „Við greiddum tölu- vert af þeim kostnaði til að reyna að koma inn manni. Það heppnaðist og við fengum til baka ávöxtun af því áhættu- fé.“ Enski bolt- inn er einnig vinsæll við- burður. Magnús segir að við lok síðasta keppn- istímabils hafi um tólf þúsund áskrifendur verið að enska boltanum en reiknar með að þeir verði komnir í sex- tán þúsund fyrir árslok. „Okkur hefur vegnað vel á þessu ári, kannski af því að við erum að selja einn, sterkan miðil,“ segir Magnús og skýtur skotum í átt að aðalkeppinautin- um í 365. - eþa MAGNI Á ÞAKI SKJÁS EINS Rock Star Supernova nýtur vinsælda. Áhættan skilaði sér Rock Star Supernova reynist Skjánum búbót. Stjórnendur rússneska álfyrirtækisins Sual neita fréttum þess efnis að fyrirtækið ætli að sameinast keppinaut sínum og samlanda, Rusal í október. Ef af samruna fyrirtækjanna verður mun bandaríski álrisinn Alcoa, sem nú um stundir er stærsti álframleiðandi í heimi, verða sá næststærsti á eftir sameinuðu fyrirtæki Sual og Rusal. Alexey Prokhorov, talsmaður Sual, sagði í gær að fyrirtækið tjái sig ekki um orðróm en fréttir um hugsan- legan samruna birtust í rússneska dagblaðinu Kommersant á dögun- um. Rusal, sem er þriðji stærsti álframleiðandi í heimi, og Sual vinna nú þegar að því í sam- einingu að auka fram- leiðslu sína í NV-Rússlandi, að sögn breska ríkisútvarpsins. Þá er Rusal eitt þeirra fyrir- tækja sem sýnt hefur áhuga á að reisa álver á Norðurlandi. - jab ÚR ÁLVERINU Á GRUNDARTANGA Rusal hefur sýnt áhuga á að reisa álver á Norðurlandi. Álrisi í fæðingu? Heildarviðskipti erlendra aðila með innlend verðbréf námu rúmum 6,7 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. Verðbréfaviðskipti erlendra aðila hér á landi hafa dregist saman um þrjátíu og átta prósent sé miðað við sama tímabil í fyrra. Erlendir fjárfestar keyptu skuldabréf fyrir rúma 5,5 millj- arða króna á öðrum ársfjórðungi en hlutabréf fyrir 422 milljónir. Í Morgunkornum Glitnis segir að neikvæð umræða um íslenskt fjármálakerfi í erlendum fjöl- miðlum virðist hafa haft áhrif á fjárfestingar erlendra aðila hér á landi. Þá hafi veiking krónunnar ekki bætt úr skák og hvatt erlenda fjárfesta til að innleysa eignir sínar í innlendum verðbréfum. Seðlabankinn birti ekki alls fyrir löngu tölur um fjármuna- eign erlendra aðila hér á landi. Athygli vakti að um fimmtung erlendrar fjárfestingar hér á landi má rekja til lágskattasvæða á borð við Ermarsundseyjuna Guernsey. -jsk Minni verðbréfakaup að utan Verðbréfakaup erlendra aðila hér á landi hafa dregist saman um fjörutíu prósent. 9,4%Him in n og h af – S ÍA Besta ávöxtunin Býður nokkur betur? Stuttur skuldabréfasjóður og Langur skulda- bréfasjóður SPRON Verðbréfa báru hæstu vextina á síðustu 6 og 12 mánuðum, miðað við síðasta skráningardag 31. 7. 2006, í samanburði við alla sambærilega verðbréfasjóði á Íslandi. Ofanskráðar upplýsingar eru fengnar á www.sjodir.is, sem er óháð upplýsingasíða um verðbréfasjóði. Rekstrarfélag SPRON sér um rekstur þeirra fimm sjóða sem eru verðbréfasjóðir skv. lögum nr. 30/2003. Nánari upplýsingar má nálgast í útboðslýsingu hjá SPRON Verðbréfum. 12,1% Stutturskuldabréfasjóður Langur skuldabréfasjóður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.