Fréttablaðið - 23.08.2006, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 23.08.2006, Qupperneq 38
MARKAÐURINN 23. ÁGÚST 2006 MIÐVIKUDAGUR8 F R É T T A S K Ý R I N G Við því er að búast að Síminn muni láta til sín taka á næstunni. Þar á bæ hefur nú aukinn kraftur verið settur í útrás og leit stendur yfir að erlendum fjárfestingar- tækifærum. Í því augnamiði hefur Sigríður Olgeirsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Ax hugbúnaðarhúss, verið ráðin til félags- ins og er henni ætlað að vinna að fjárfest- ingum í erlendum félögum og fylgja þeim eftir. Hún mun þar að auki starfa með Brynjólfi Bjarnasyni, forstjóra Símans, að nýjum innlendum þróunarverkefnum. “Verkefni mitt snýr fyrst og fremst að því að hjálpa til við vöxt fyrirtækisins,” segir Sigríður. “Fjarskiptatæknin og upplýsingatæknin eru sífellt að tengjast meira saman. Síminn leitast við að veita fjölbreyttari þjónustu til einstaklinga og heimilanna og ekki síst til fyrirtækja. Þessar fjárfestingar munu hjálpa til við það enda munu þær miðast að því að fylgja stefnu fyrirtækisins og finna álitlega kosti sem falla vel að rekstri Símans.” FJÖLMÖRG VAXTARTÆKIFÆRI Töluverð vinna hefur þegar átt sér stað á erlendri grundu og er útrás Símans því formlega hafin. Að mati Sigríðar hefur Síminn mörg tækifæri til ytri vaxtar og verður það hennar helsta starf að þefa þau tækifæri uppi og fylgja þeim eftir, með samræmingu og samnýtingu þar sem hægt er, í nánu samstarfi við Brynjólf Bjarnason, forstjóra og þróunarsvið Símans. Hún segir tækifærin jafnframt fjölmörg hér á landi en ekki sé þó tíma- bært að deila þeim með umheiminum enn sem komið er. Í erlendum fjárfestingum stefnir Síminn meðal annars að því að eignast ráðandi hluti í fyrirtækjum í rekstri sem henta Símanum og því er leitast við að greina tækifæri sem bjóða upp á sam- þættingu fjarskipta og upplýsingatækni. Í þeim tilfellum sem Síminn mun kaupa ráð- andi hluti mun það koma í hlut Sigríðar að sitja í stjórn fyrir hönd Símans. Samstarf við önnur fyrirtæki eru líka í skoðun og þá kemur, að sögn Sigríðar, til greina að Síminn eigi minni hluti í þeim félögum. FORRITARI SEM LÍTIÐ HEFUR FORRITAÐ Mestan hluta starfsferils síns hefur Sigríður unnið í upplýsingatækni og hún hefur verið í störfum tengdum viðskipta- hugbúnaði undanfarin tuttugu ár. Hún er kerfisfræðingur að mennt en segist þó lítið hafa komist í það að forrita. Undanfarin ár hefur hún gegnt starfi framkvæmdastjóra Ax hugbúnaðarhúss þar sem hún gat sér góðs orðs fyrir vaska framgöngu. Er henni meðal annars þakkað að hafa snúið margra ára tapi í góðan og arðbæran rekstur á nokkrum árum. Það er því ekki komið að tómum kofanum í reynslu af stjórnun og rekstri fyrirtækja. Þrátt fyrir erilsamt starf taldi Sigríður það ekki eftir sér að sitja á skólabekk sam- hliða því og lauk hún MBA-námi í alþjóða- stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík í fyrra. “Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á öllu sem heitir alþjóðlegt og alltaf verið á nokkuð miklum þvælingi. Í nýja starfinu verð ég meira í þessu alþjóðlega umhverfi en í fyrra starfi og það þykir mér mjög spennandi. Þannig kynnist maður ýmiss konar fólki af öðrum menningarheimum. Það er bráðnauðsynlegt að skilja menn- ingu fólks sem maður vinnur með og allt aðrar víddir sem koma inn í starfið leggi maður sig eftir því.” ENGIN VANDAMÁL - BARA TÆKIFÆRI Reynsla Sigríðar af upplýsingatækni og rekstri er sem fyrr segir umtalsverð. Það sem hins vegar er nýtt fyrir henni er fjarskiptamarkaðurinn og sú staðreynd að nú eru engin vandamál til staðar heldur bara tækifæri til að ráðast í. “Þegar ég tók við starfinu í Ax hugbúnaðarhúsi var ég stöðugt að takast á við vandamál og í bar- áttu fyrir framtíð fyrirtækisins. Ég hafði gaman af því og það var mikil áskorun. Núna eru hins vegar engin vandamál held- ur nóg af tækifærum og nýjungum sem ég þarf að finna,” segir Sigríður. Hún segir að það hafi verið tímabært að breyta um starf og segist hafa séð ákveðin tækifæri í því að fara yfir í fjarskiptamarkaðinn. Þar séu gífurlegar hræringar sem henni þyki eftirsóknarverðar. “Ég hef það í mér að þurfa alltaf að vera að takast á við eitt- hvað nýtt og spennandi. Ef það færist of mikil ró yfir hlutina þá verð ég að finna upp á einhverju nýju að gera,” segir hún hlæjandi. “Þegar maður er búinn að vera lengi í ákveðinni starfsgrein hefur maður líka gott af því að skipta um vettvang. Í tækninni er alltaf eitthvað nýtt að gerast og maður nær aldrei að vera leiður því hún rífur mann alltaf áfram í endurnýjun. Þetta er ótrúlega skemmtilegur bransi upp á það að gera. Í upplýsingatækninni eru líka sífellt að koma ný tækifæri sem er ofboðslega spennandi en um leið mjög krefjandi.” FRÁ STOFNUN Í MARKAÐSDRIFIÐ STÓR- FYRIRTÆKI Eins og engum hefur dulist hefur Síminn, sem í september fagnar hundrað ára afmæli sínu, farið í gegnum miklar breyt- ingar síðan fyrirtækið var stofnað. Á það ekki síst við um síðustu ár, þegar hann hefur farið frá því að vera opinber stofnun í það að vera markaðsdrifið fyrirtæki. Með breyttu eignarhaldi og kröfu um arðsemi hefur fyrirtækið orðið framsækn- ara og áherslurnar breyst töluvert. Eftir einkavæðinguna fór fyrirtækið í gegnum mjög umfangsmikla stefnumótun og mikið hefur verið unnið með að breyta menningu þess. Eitt af því sem leitast hefur verið við að breyta er ímynd Símans úr því að vera “bara” tæknifyrirtæki í að vera þjónustu- fyrirtæki sem er alltaf með nýjustu tækn- ina og setur hana fram á einfaldan hátt fyrir viðskiptavininn. Stefna Símans er að vinna eftir hug- myndafræði stafrænnar tilveru á einstaklingssviði og stafrænna viðskipta á fyrirtækjasviði. Þetta einkennist að miklu leyti af samþættingu fjarskiptatækni og upplýsingatækni sem er hvort tveggja kunnur og ókunnugur flötur fyrir Sigríði sem hefur að mestu unnið í upplýsinga- tækni. “Síminn stendur á tímamótum núna og það er mikið að gera í samþættingu fjarskipta og upplýsingatækninnar,” segir Sigríður. “Það er spennandi að vera hluti af þessari þróun því víst er að hún muni halda hratt áfram og verða sífellt sjálf- sagðari hlutur af lífi okkar allra.” Síminn sækir inn á nýjar vígstöðvar Sigríður Olgeirsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Ax hugbúnaðarhúss, hefur verið ráðin til Símans þar sem henni er ætlað að þefa uppi álitlega fjárfestingarkosti á erlendri grundu. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir hitti Sigríði í höfuðstöðvum Símans. SIGRÍÐUR OLGEIRSDÓTTIR Sigríður, sem á glæstan feril að baki í upplýsingatæknigeiran- um, hefur verið ráðin til starfa hjá Símanum þar sem hún mun leiða fyrirhugaða erlenda útrás.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.