Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 46
MARKAÐURINN F Ó L K Á F E R L I 23. ÁGÚST 2006 MIÐVIKUDAGUR16 H É Ð A N O G Þ A Ð A N HLYNUR SIGURÐSSON hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar ehf. og tekur við starfinu 1. sept- ember næst- komandi. Hann lauk meistara- prófi í rekstrar- verkfræði frá Háskólanum í Álaborg árið 2002 og hefur verið innkaupa- stjóri Fríhafnarinnar frá 2003. Hlynur hefur jafnframt starfað sem afleysinga- kennari í stjórnun og rekstri fyrirtækja við Meistaraskólann í Reykjavík. Hann er kvæntur Helgu Völu Gunnarsdóttur félagsfræðingi og eiga þau þrjú börn. Sturla Eðvarðsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar undanfarin fjögur ár, hefur ráðið sig til starfa sem framkvæmdastjóri Samkaupa. HALLDÓR G. Eyjólfsson hefur verið ráð- inn í starf forstjóra Sjóklæðagerðarinnar - 66°Norður, eins elsta framleiðslu- fyrirtækis lands- ins. Undanfarinn áratug hefur framleiðsla fyrir- tækisins og sala á fjölbreyttum fatnaði til útivistar aukist mjög og fyrirtækið fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár. Í dag rekur fyrirtækið tíu verslanir á Íslandi undir vörumerkjum 66° Norður og Rammagerðarinnar. 66°Norður hefur verið í útrás á síðustu árum. Í dag eru þrjár verslanir í Lettlandi og sú fjórða verður opnuð á næstunni. Þar að auki fást vörurnar hjá endursöluaðilum í fjölmörgum öðrum löndum. Halldór starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Sjóvá Almennum tryggingum hf. og þar áður sem fram- kvæmdastjóri hjá Kristjáni Guðmundssyni og deildarstjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Halldór er kvæntur Sólveigu H. Sigurðardóttur lyfjafræðingi og eiga þau tvö börn. Atvinnuleysi í Bretlandi jókst um 0,3 prósent á öðrum fjórðungi ársins og jafngildir það 5,5 pró- senta atvinnuleysi. Samkvæmt þessu eru 1,68 milljónir manna án atvinnu í landinu en atvinnu- leysi hefur ekki mælst meira í Bretlandi síðastliðin sex ár. Atvinnulausum hefur fjölgað um 250 þúsund frá sama tíma í fyrra sem er mesta aukning atvinnuleysis í áratug. Þrátt fyrir mikið atvinnuleysi hafa aldrei verið jafn margir á atvinnumarkaði í Bretlandi á sama tíma eða tæpar 29 milljónir manna og hafa aldrei verið jafn margir í vinnu þar í landi síðast- liðin 36 ár. -jab MANNHAF Í LUNDÚNUM Á Oxfordstræti í Lundúnum er ys og þys allan ársins hring. Atvinnuleysi í Bretlandi hefur aukist lítillega, en ástandið er samt betra en oft áður. Aukið atvinnuleysi í Bretlandi Hagvöxtur í Frakklandi jókst um 1,1 prósent í júní. Landsframleiðsa jókst um 0,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi og er búist við að framleiðslan aukist um 1,9 pró- sent á árinu. Thierry Breton, fjármálaráðherra landsins, er hæstánægður með aukninguna, sem er sú mesta í tuttugu ár. Nokkur viðsnúningur hefur verið í frönsku efnahagslífi en ríkisstjórn Dominique de Villepins, forsætisráðherra, hefur haft það á stefnuskrá sinni að auka hagvöxt og minnka atvinnuleysi. Breska ríkisútvarpið hefur eftir David Naude, hagfræðingi hjá Deutsche Bank, að á fyrsta ársfjórðungi hafi fyrirtæki í Frakklandi haldið að sér höndum og dregið úr eyðslu. Óttast hafi verið að þau myndu endurtaka leikinn á öðrum ársfjórðungi vegna tíðra hækkana á heims- markaðsverði á olíu. Hækkanirnar virðast hafa haft tímabundin áhrif á vöxt fyrirtækja því raunin varð önnur á öðrum fjórðungi ársins, að hans sögn. - jab FORSÆTISRÁÐHERRANN OG FJÁRMÁLARÁÐHERRANN Thierry Breton, fjármála- ráðherra Frakklands, er hæstánægður með hagvöxt í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ánægður með hag- vöxt í Frakklandi Neytendasamtökum Evrópu bár- ust tæplega 400 kvartanir vegna írskra flugfélaga á fyrstu sex mánuðum ársins. Flestar kvart- anir bárust frá farþegum sem flugu með lággjaldaflugfélaginu Ryanair en 133 farþegar fundu eitt og annað að starfsemi þess. Rúmlega helmingi færri, eða 62, kvörtuðu vegna Air Lingus. Flestar kvartanirnar voru vegna tafa eða niðurfellinga á flugi og vegna skemmda eða taps á farangri. Neytendasamtökin segja niður- stöðurnar benda til þess að ein- ungis þriðjungur flugfarþega kvarti þegar eitthvað bjáti á. Þá segja samtökin ennfremur að flugfélögin fari oftar en ekki á svig við þær reglur sem þeim séu settar. Sé meðal annars á þau lagt að endurgreiða fyrir flug sem fellur niður og koma farþegum á áfangastað með öðru flugi. Sé það ekki í boði á flugfélagið að greiða fyrir fæði handa flugfarþegum og jafnvel gistingu. Í stað þessa hafa farþegar, sem orðið hafa fyrir óþægindum vegna tafa og fleiri þátta, orðið að greiða öll útgjöld sjálfir og senda síðan flugfélaginu reikn- ing fyrir útlögðum kostnaði, að sögn Neytendasamtakanna. - jab VÉL FRÁ RYANAIR Flestir flugfarþegar á Írlandi kvörtuðu yfir Ryanair á fyrstu sex mánuðum ársins. Oftast kvartað yfir Ryanair
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.