Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 58
23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR16
TOPP5: KEANU REEVES
Keanu Reeves býr kannski ekki yfir sömu
leikhæfileikum og Robert de Niro eða
Al Pacino en hann hefur svo sannarlega
haft heppnina með sér svo ekki sé
nú talað um útlitið. Reeves varð fyrst
þekktur fyrir leik sinn sem aulabárðurinn
Ted í Bill´s and Ted´s Excellent Adventure
(1989) en vann sig smám saman upp
í alvarlegri hlutverk með myndum eins
og Point Break (1991), Much Ado about
Nothing (1993) og Speed (1994). Hér
eru þær fimm bestu á ferlinum.
1. My Own Private Idaho (1991). Líf
hórdrengja er meginviðfangsefni
kvikmyndar Gus van Sant, sem byggir
að hluta á verki Williams Shakespeare
Hinrik V. Vel unnin mynd og einkar
eftirminnileg vegna þátttöku Rivers
Phoenix sem lést ungur að aldri úr
eiturlyfjaneyslu nokkrum árum síðar.
2. Dangerous Liaisons (1988). Reeves
leikur ungan tónlistarkennara sem
verður peð í valdatafli siðlauss aðals-
fólks á 18. öld. Búningadrama eins og
það gerist best þar sem leikstjórinn
Stephen Frears nær því besta úr leikara-
hópnum, með Glenn Close og John
Malkovich í fararbroddi.
3. Matrix (1999). Veruleikinn eins og
við þekkjum hann byggir á tálsýnum
véla, sem hafa náð yfirráðum í heim-
inum. Reeves í feiknaformi í vísinda-
skáldskap með biblíulegum stefjum
sem gat af sér tvær (og að sumra mati
langdregnar) framhaldsmyndir.
4. Sweet November (2001). Mynd
um dauðvona konu sem fær sér nýja
elskhuga í hverjum mánuði þar til
hún fær ör í hjartastað. Sumum þykir
myndin keyra um þverbak í væmni,
en hér er hún tekin fram yfir vinsælar
myndir á borð við Speed vegna sann-
færandi samleiks Reeves og Charlize
Theron.
5. Bram Stoker´s Dracula (1992).
Sagan um greifann blóðþyrsta, sem
er eftirminnilega túlkaður af Gary
Oldman, sett fram sem ódauðleg
ástarsaga með hæfilegu magni af
blóðsúthellingum. Reeves leikur
Johnatan Harker sem reynir að bjarga
unnustu sinni frá blóðsugunni og
illþýði hennar.
... að hver manneskja borðar á
ævinni jafn mikinn mat og samsvarar
þyngd sex fullorðinna fíla?
... að fyrsta matreiðslubókin sem
vitað er um var gefin út á fjórðu
öld fyrir krist. Það var gríska skáldið
Archestratus frá Gela sem setti
saman nokkur hundruð uppskriftir í
bundnu máli?
... að heimsendar pítsur þekktust á
Ítalíu á 19. öld?
... að fyrsti pítustaðurinn í Bandaríkj-
unum var opnaður í New York árið
1895?
... að kaffi kólnar hraðar ef rjóminn
er settur út í síðast?
... að til þess að búa til tvo bolla af
kaffi þarf baunir af tveimur kaffi-
trjám?
... að kaffi var fyrst notað sem
meðal?
... að á Indlandi er mjólk seld í frosn-
um kubbum?
... að á vissum stöðum í Tíbet, Mong-
ólíu og Kína er te drukkið með salti
en ekki sykri?
... að hver Bandaríkjamaður borðar
þrjátíu og fimm þúsund smákökur
á ævinni?
... að sykur var eitt sinn svo sjald-
séður í Evrópu að hann þótti jafn
verðmætur og gimsteinar? Sykur
þótti til að mynda góð brúðargjöf
fyrir kóngafólk.
... að á 14. öld var sykur notaður sem
meðal?
... að kartöflur eru hvorki grænmeti
né ávextir?
... að í Mið-Ameríku á 18. öld máttu
aðeins þeir sem höfðu náð 60 ára
aldri drekka súkkulaði?
... að það eru til um það bil 500 mis-
munandi tegundir af banönum?
... að spagettí er kínverskur réttur?
Kínverjar borðuðu spagettí mörg
þúsund árum áður en Ítalir fóru að
búa það til?
VISSIR ÞÚ ...
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10