Fréttablaðið - 23.08.2006, Page 66
23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR30
Skáldið og grínistinn Þor-
steinn Guðmundsson hefur
gefið út nýja ljóðabók sem
gæti allt eins kallast brand-
arabók eða nótnabók uppi-
standara.
„Þetta er bara svona hugarflug
einmana manns í Þingholtunum.
Ég skrifa um það sem ber fyrir
augu og gerist í lífi fertugs
manns,“ segir Þorsteinn Guð-
mundsson um nýju ljóðabókina,
Barkakýli úr tré. Umfjöllunarefni
bókarinnar er því að miklu leyti
daglegt líf og skrítnar hugdettur
og segir Þorsteinn að þau ættu því
að vera auðveld aflestrar og eiga
við marga. „Ljóðin eru að minnsta
kosti afskaplega einföld á yfir-
borðinu, enda eru nokkur ljóðanna
það sem margir myndu bara kalla
setningar. Ég ætlaði fyrst að kalla
þetta ljóð og fyrirsagnir, því sum
ljóðanna minna á fyrirsagnir í
blöðum eða fyrirsagnir í auglýs-
ingum. Þetta er því bara stutt og
laggott,“ segir Þorsteinn og hlær.
Þorsteinn er enginn nýgræð-
ingur í skáldskapnum þótt margir
þekki helst til hans sem leikara og
uppistandara. „Ég byrjaði að
skrifa út úr hallæri þegar ég var
atvinnulaus leikari. Þá fór ég að
skrifa leikrit sem ég sendi í pósti
út á land og reyndi að selja skól-
um. Svo vatt þetta upp á sig.“
Hann hefur gefið út þrjár ljóða-
bækur hjá Eddu, Klór
frá árinu 2000, Hunda-
bókina frá 2002 og Fífl
dagsins sem gefin var
út í hittifyrra, en hefur
nú gengið til liðs við
Nýhil.
„Það er heiður að fá
að vera með vegna þess
að þetta er kraftmikið
fólk og ótrúlegur drif-
kraftur þarna að baki,“
segir Þorsteinn spurður
um hvaða þýðingu það
hafi fyrir hann að vera
genginn í raðir Nýhils.
„Þau eru að skrifa ljóð
með nýja afstöðu. Mín
kynslóð og eldri kynslóðir
hafa verið uppteknar af því að
hugsa hvort ljóðið væri þess virði
að gera það, hvort það væri dautt
og eitthvað svoleiðis. En þetta fólk
er bara að vinna að ljóðlist eins og
ekkert sé sjálfsagðara og mér
finnst það mjög heilbrigt.“
Þorsteinn
segir þó að les-
endur hans megi
ekki láta ljóðatit-
ilinn hræða sig
frá bókinni. Í
henni sé hann að
gera það sem
honum er tamt og að ljóðin séu alls
ekki langt frá því sem hann sé
búinn að vera að gera í uppistandi
og gríni. „Fólk má ekki láta hræða
sig frá bókinni að hún sé kölluð
ljóðabók, því það má alveg eins
kalla hana brandarabók, nótnabók
eða hvað sem er. Bókin er fyrst og
fremst fyrir þá sem hafa haft
gaman af því sem ég er búinn að
vera að gera.“ Hann segist geta
fallist á að ljóðin sín séu að minnsta
kosti hálfgert grín. „Fólk flissar
upp úr bókinni og ég kann vel við
það. Þar er ég á heimavelli,“ bætir
Þorsteinn við.
Barkakýli úr tré er kilja í vasa-
bókarbroti og kostar 1.890 kr.
Útgefandi bókarinnar er Nýhil og
Eiríkur Örn Norðdahl ljóðskáld
ritar formála.
annat@frettabladid.is
LEIKHÚSTILBOÐ
Tvíréttaður matur, miði og frítt
í Göngin til baka í boði
Landnámsseturs
Frá kr. 4300 - 4800
MIDAPANTANIR Í SÍMA 437 1600
Sýnt í Landnámssetri
í Borgarnesi
Föstudag 25. ágúst kl. 20 Uppselt
Laugardag 26. ágúst kl. 20 Uppselt
Laugardag 2. september kl. 20 Uppselt
Sunnudag 3. september kl. 15 Uppselt
Sunnudag 3. september kl. 20 Uppselt
Fimmtudag 7. september kl. 20 Laus sæti
Föstudag 8. september kl. 20 Laus sæti
Laugardag 9. september kl. 20 Laus sæti
Sunnudagur 10. september kl. 16 Laus sæti
Föstudagur 15. septemberkl. 20
Laugardagur 16. september kl. 20
Laugardagur 23. september kl. 20
Sunnudagur 24. september kl. 16
Aðsóknarmesta sýning
síðasta leikárs!
Drepfyndinn
gamanleikur í Reykjavík!
Miðasala er þegar hafin!
Miðasala í síma 551 4700 // opið 13:00-17:00 // www.midi.is //Austurbæjarbíó – Snorrabraut 37
Næstu sýningar:
Föstudaginn 18. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 19:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 22:00
Á ÞAKINU
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Á Blús tekur KK fyrir tólf af
sínum uppáhalds blúslögum. Lögin
eru eftir nokkrar af stórstjörnum
blústónlistarinnar, þeirra á meðal
Howlin Wolf, Willie Dixon, Muddy
Waters, Carey Bell, Lowell Fulson,
Little Walter Jacobs, Big Bill
Broonzy, Jimmy Reed, John
Mayall og JJ Cale. Í stað uppruna-
legu textanna eru hins vegar
komnir nýir íslenskir textar eftir
Braga Valdimar Skúlason, sem er
ein af aðalsprautum Baggalúts.
Það er óhætt að hrósa KK og
aðstandendum þessarar útgáfu
fyrir vönduð vinnubrögð. Hljóð-
færaleikur er óaðfinnanlegur, það
hefur verið lögð alúð í útsetningar
og umslagið er glæsilegt. Ég veit
ekki hvort það var þörf á því að
semja nýja texta, en þessir textar
Braga falla alla vega mjög vel að
tónlistinni. Umfjöllunarefnin eru í
anda blúsins og eins og í uppruna-
legu textunum er mikið af endur-
teknum frösum sem fylgja tónlist-
inni. Mér finnst samt hljómurinn
vera full poppaður. Það hefði pass-
að þessari tónlist vel að hafa hann
svolítið hráan og skítugan. Það
kemur ekkert á óvart á plötu eins
og þessari, enda varla ætlunin.
Hér er verið að rifja upp gamla
takta og kynna þá fyrir nýjum
hlustendum, ekki verið að þróa
blúsinn áfram tónlistarlega.
Lagavalið er nokkuð fjölbreytt.
Það er komið við í mismunandi
afbrigðum blústónlistarinnar.
Blús er plata sem rennur þægi-
lega og hnökralaust í gegn. Hún er
ánægjuleg, en ristir ekkert sér-
staklega djúpt. Eins og gjarnan
með vel heppnaðar tökulagaplötur
þá vekur hún hjá manni löngun til
þess að grafa upp upprunalegu
útgáfurnar og kynna sér þá lista-
menn sem eiga heiðurinn af þeim.
Trausti Júlíusson
Vönduð og vel gerð
KK
BLÚS
Niðurstaða: Blús er vönduð og vel gerð plata
sem safnar saman nokkrum úrvalslögum úr
sögu blústónlistarinnar. Hún ristir ekki mjög
djúpt, en rennur þægilega í gegn.
Breski myndlistarmaðurinn
Alistair Macintyre sýnir í gall-
eríi Turpentine í Ingólfsstræti en
sýningin „Vanishing point“ var
opnuð á Menningarnótt. Í frétta-
tilkynningu um sýninguna er
þess getið að verk hans vísi
sterklega til landakorta þar sem
landfræðileg tákn verði að per-
sónulegri túlkun listamannsins á
árþúsunda tilvist mannsins á
jörðinni. Verk sín vinnur
Macintyre með nokkurs konar
ísþrykki en hann setur ísblokkir
á pappírsörkum og lætur þær
bráðna. Í ísnum kemur hann
fyrir járnformum sem síðar
ryðga og gefa frá sér lit og áferð
á pappírinn.
Fyrri verk hans hafa stuðst
við tákn kortagerðar og land-
mælinga en Macintyre hefur
meðal annars sýnt þau á Kjar-
valsstöðum og í Gerðarsafni.
Sýningin er opin þriðudaga til
föstudaga milli 12-18 og á laugar-
dögum milli 11-16 til 5. septemb-
er. -khh
Ísþrykk í Turpentine
MYNDLIST ALISTAIRS MACINTYRE Náttúruöflin og eðilsfræðin mætast á pappír.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
ÁGÚST
20 21 22 23 24 25 26
Miðvikudagur
■ ■ SÝNINGAR
10.00 Sýning á verkum sem til-
nefnd voru til norrænu Carnegie
Art Award listverðlaunanna í ár
stendur yfir í Hafnarhúsinu. Verk
rúmlega tuttugu málara eru á sýn-
ingunni en þar á meðal eru verk eftir
Finnboga Pétursson, Steingrím
Eyfjörð og Jón Óskar auk verka
eftir Eggert Pétursson sem hlaut
önnur verðlaun í keppninni.
11.00 Sumarsýning Hafnarborgar
sækir innblástur sinn til meistara
Kjarvals. Á sýningunni Hin blíðu
hraun er úrval verka eftir fimm
íslenska myndlistarmenn sem allir
vinna með hraunið. Sýningarstjóri er
Jón Proppé. Sýningin er opin milli
11-17 en henni lýkur 28. ágúst.
Í anddyri Norræna hússins
stendur yfir ljósmyndasýning frá
Austur-Grænlandi eftir Ole G.
Jensen. Hann þekkir þennan hluta
Grænlands betur en flestir en hann
hefur verið búsettur þar með hléum
síðan 1975. Sýningunni lýkur á
sunnudaginn.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Fólk má flissa
upp úr ljóðabókinni
HEIÐUR AÐ VERA MEÐ Í NÝHIL Grínistinn og ljóðskáldið Þorsteinn
Guðmundsson er á heimavelli þegar kemur að gríni og uppistandi
og því kemur ekki á óvart að ljóðin úr nýrri ljóðabók hans, Barkakýli
úr tré, eru ekki langt frá uppistandi og gríni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Dansleikhúsdrottningin Pina
Bausch er væntanleg hingað til
lands um miðjan næsta mánuð
ásamt 50 manna danshópi sínum,
Pina Bausch Tanztheater Wupper-
tal. Hópurinn mun sýna dansverk-
ið Aqua fjórum sinnum í Borgar-
leikhúsinu, fyrsta sýningin verður
17. september og er miðasalan
hafin. Sýningin var frumsýnd árið
2001 en hefur síðan verið sýnd víða
við fádæma góðar undirtektir.
Pina Bausch er einn áhrifa-
mesti sviðslistamaður samtímans
og brautryðjandi á sviði dansleik-
húss í heiminum og er því mikill
fengur fyrir íslenskt leikhúsfólk
og dansáhugamenn að komu henn-
ar hingað. -khh
Frumkvöðull
til Íslands
DANSLEIKHÚSLISTAKONAN PINA BAUSCH
Kemur til Íslands í september.