Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 72
36 23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
ÍSLANDSÚRVAL NOREGS
Indriði Sigurðsson
Veigar Páll Gunnarsson
Kristján Örn Sigurðsson
Garðar Jóhannsson
Stefán Gíslason
Árni Gautur Arason
Ólafur Örn Bjarnason
Haraldur Freyr Guðmundsson
Ármann Smári Björnsson
Birkir Bjarnason
Jóhannes Harðarson
4-3-3
Vålerenga
Brann Brann
BrannLyn
Aalesund
Start Lyn
Stabæk Viking
Frederikstad
FÓTBOLTI Íslenskir knattspyrnu-
menn hafa nánast myndað loftbrú
til meginlands Evrópu undanfarn-
ar vikur og mánuði en þeim fer
sífellt fjölgandi sem gerast
atvinnumenn, sér í lagi á Norður-
löndunum. Nú síðast sömdu þeir
Ármann Smári Björnsson og Garð-
ar Jóhannsson við norsk lið, Brann
og Frederikstad, og eru íslenskir
atvinnumenn þar með orðnir ell-
efu talsins í Noregi og gætu þar
með myndað heilt knattspyrnulið.
Til glöggvunar og skemmtunar
stillir Fréttablaðið upp þessum
leikmönnum í slíkt „Íslendingalið“
hér til hliðar.
„Þetta kemur vissulega í bylgj-
um,“ segir Ólafur Garðarsson
umboðsmaður knattspyrnumanna
í samtali við Fréttablaðið um þessa
miklu útrás íslenskra leikmanna.
„Þetta fer mikið eftir því hvernig
leikmenn standa sig þarna úti.
Núna hafa íslenskir knattspyrnu-
menn mjög gott orð á sér, Í Noregi
mynda Ólafur Örn Bjarnason og
Kristján Örn Sigurðsson besta
miðvarðapar Noregs sem fær á
sig fæst mörk og Veigar Páll
Gunnarsson skorar flest mörk
allra. Í Svíþjóð varð Gunnar Heið-
ar Þorvaldsson markakóngur í
fyrra og fleiri leikmenn, eins og
Pétur Marteinsson, Gunnar Þór
Gunnarsson, Helgi Valur Daníels-
son og Kári Árnason, eru að standa
sig vel og á það reyndar við um
alla þessa stráka.“
Fleira kemur við sögu eins og
aukið fjármagn í íþróttafélögum á
Norðurlöndunum, sér í lagi í Nor-
egi. „Norðmenn borga betur en
Svíarnir en það er ódýrara að lifa í
Svíþjóð. En peningurinn í þessum
bolta er að aukast smátt og smátt
og síðast var sjónvarpsrétturinn í
Noregi seldur mjög dýrt. Það
hjálpar einnig félögunum að
skattareglur eru hagstæðari fjár-
festum en hér á landi. Þar er hægt
að fá fjárframlög til lista og íþrótta
og fleira í þeim dúr frádráttarbær
frá skatti og myndi það breyta
miklu fyrir íslensk
félög ef þau fengju
þetta einnig í
gegn.
En fyrst og
fremst segir
hann ástæðuna
vera gott orð
sem íslenskir
knattspyrnu-
menn hafa á
sér. „Þeir
leggja hart
að sér og
skapa
engin vand-
ræði utan vallar. Árangur Íslend-
inga hefur vakið athygli og rétti-
lega svo.“
Eins og málin standa nú eru 25
íslenskir leikmenn samnings-
bundnir knattspyrnuliðum á Norð-
urlöndunum. Samkeppnin um stöð-
ur í íslenska landsliðinu er því
orðin gífurlega mikil því þar að
auki eru fjórtán Íslendingar að
leika reglulega með aðalliðum ann-
arra félaga víða um Evrópu.
Alþjóðlegi félagaskiptaglugg-
inn lokar um næstu mánaðamót
þar til hann opnar aftur um ára-
mótin og segir Ólafur að fleiri leik-
menn gætu verið á förum héðan til
erlendra liða. „Það er möguleiki.
Það eru nokkur mál í gangi og
nokkrir leikmenn sem hafa bara
gott af því að fara á næsta stig og
þroska sína hæfileika. Þeir eru þó
nokkrir sem gætu vel tekið þetta
skref.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
GARÐAR JÓHANNSSON Á leið til norska úrvalsdeildarliðsins Frederikstad sem Ríkharður
Daðason lék áður með. Er hér (númer 30) í leik með Val gegn ÍBV FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leggja hart að sér og eru til friðs
Ólafur Garðarsson, umboðsmaður knattspyrnumanna, segir að ástæðan fyrir vinsældum íslenskra knattspyrnu-
manna í Skandinavíu sé það góða orð sem þeir hafa á sér. Hann segir að fleiri gætu verið á leiðinni út.
FÓTBOLTI Samkvæmt reglum Knatt-
spyrnusambands Íslands skiptist
söluverð Garðars Jóhannssonar á
milli Vals og KR, þeim félögum
sem hann hefur leikið með undan-
farin þrjú ár. Garðar heldur í dag
til Noregs þar sem hann mun að
öllum líkindum skrifa undir
þriggja og hálfs árs samning við
norska úrvalsdeildarliðið Freder-
ikstad.
Garðar gerði því stuttan stans
hjá Valsmönnum sem hann gekk
til liðs við frá KR í júlí síðastliðn-
um. Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, segir reglurn-
ar kveða á um ákveðinn útreikning
á skiptingu söluverðsins. „Fjórð-
ungur gengur alltaf beint til félags-
ins sem viðkomandi leikmaður er
samningsbundinn og svo 25 pró-
sent fyrir hvert ár sem leikmaður-
inn var samningsbundinn ákveðnu
félagi. Án þess að hafa reiknað
þetta nákvæmlega er samkvæmt
þessu hlutur Vals 25 prósent plús
5-10 prósent til viðbótar fyrir þann
tíma sem hann var hjá Val.“
Samkvæmt reglunum á KR þá
rétt á meirihluta söluverðs Garð-
ars en aðspurður vill Ótthar
Edvardsson, framkvæmdastjóri
Vals ekki segja hvað félögin tvö
sömdu um í þessu tilviki. „Þetta er
í reglunum og förum við eftir þeim
eins og aðrir,“ sagði Ótthar. „Það
er búið að semja við alla aðila í
þessu máli en ég verð að halda
trúnaði og get ekki greint frá því
hvers kyns samkomulagið er.“
Garðar er fimmti leikmaður
Vals sem félagið selur á undan-
förnu ári en hinir eru Garðar
Gunnlaugsson, Ari Freyr Skúla-
son, Bjarni Ólafur Eiríksson og
Sigþór Júlíusson en allir héldu þeir
utan í atvinnumennsku nema sá
síðastnefndi – hann fór í KR.
„Þetta er bara eins og hlutirnir
eru í dag. Það er draumur margra
knattspyrnumanna að fara í
atvinnumennsku og félögin á
Íslandi lifa að stórum hluta á þeim
peningum sem þau fá fyrir að selja
leikmenn. Þetta virkar því í báðar
áttir en tilboðið sem við fengum í
Garðar var nógu hagstætt til að
taka því.“
Hann kvíðir þó ekki lokasprett-
inum í deildinni. „Við erum með
stóran og breiðan hóp og það
kemur maður í manns stað. Stefn-
an er enn sett á annað sæti deildar-
innar og breytist það ekkert við
þetta.” - esá
GEKK ILLA Í KR Garðar skoraði ekki mörg mörk í KR-búningnum. Hér er hann í leik gegn
FH, í baráttu við Auðun Helgason. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bæði Valur og KR græða á sölu Garðars Jóhannssonar til Noregs:
KR fær vænan hlut af söluverði Garðars
Valsarinn Garðar Jóhannsson mun í
dag halda til Noregs þar sem hann
mun gangast undir læknisskoðun hjá
norska úrvalsdeildarliðinu Frederikstad
og ef allt gengur að óskum mun hann
skrifa undir samning hjá félaginu.
Frederikstad vann um daginn Noregs-
meistarana í Vålerenga í fjórðungsúr-
slitum norsku bikarkeppninnar, 3-2, og
í kjölfarið var þjálfari Vålerenga, Kjetil
Rekdal, rekinn úr starfi en árangurinn
hjá Árna Gauti Arasyni og félögum hans
í ár hefur ekki staðist væntingar.
„Það hefur ekki verið stefnan hjá mér
að komast í atvinnumennskuna en ég
ákvað að grípa tækifærið þegar það
gafst,” sagði Garðar við Fréttablaðið
í gær. „Nú fer maður þarna út með
það fyrir augum að standa sig. Norska
deildin býður upp á fleiri tækifæri
en sú íslenska og aldrei að vita hvað
gerist svo í
kjölfarið ef
maður stendur
sig vel.”
Þetta er ekki í fyrsta skipti í
sumar sem Garðar skiptir um
félag en um miðjan júlímánuð
gekk hann til liðs við Val frá KR.
Hjá Val sló hann í gegn og skoraði
fjögur mörk í sínum fyrstu tveimur
leikjum hjá félaginu, þar af þrennu
gegn ÍBV í deildinni.
„Seinni hlutinn af sumarinu
hefur verið mjög góður
en fyrri hlutinn var
fremur leiðinlegur,”
sagði Garðar sem
gekk til liðs við KR fyrir tímabilið
2003. „Það var allt annað líf að
koma í Val og það var mikill léttir
að komast í burtu frá KR.
Þar gekk fátt upp hjá mér,
ég lenti í meiðslum og fékk
ekki að spila lengi vel. Ekki
það að það hafi verið leiðinlegt í
KR en þetta var orðið fínt.”
Þjálfari KR, Teitur Þórðarson, gagn-
rýndi Garðar í pistli sem birtist
á stuðningsmannasíðu KR um
helgina og sagði hann ekki hafa
verið tilbúinn að leggja sig nógu
mikið fram. „Ég held nú að hann
hafi bara verið að reyna að afsaka
sig. Ég hlusta alla vega ekki á þetta.
Ég lagði mig alveg jafn mikið fram og
aðrir í liðinu.”
GARÐAR JÓHANNSSON: ÆTLAR AÐ STANDA SIG Í NORSKU ÚRVALSDEILDINNI
Mikill léttir að komast úr KR
> Bjarni hættur í KR
Varnarmaðurinn Bjarni Þorsteinsson er
hættur í KR og hélt í gær til Danmerkur
þar sem hann mun senn hefja nám.
Bjarni hefur átt við mikil meiðsli að stríða
undanfarin misseri og lítið spilað með
KR. Teitur Þórðarson,
þjálfari KR,
greinir frá
þessu í pistli
sem birtist á
stuðnings-
mannasíðu
KR og
þakkar
Bjarna fyrir
tíma þeirra
saman hjá
félaginu.
FÓTBOLTI Miðasala hófst í gær á
landsleik Íslands og Danmerkur
sem fer fram miðvikudaginn 6.
september en hún fer fram á net-
inu, á vefsíðunni midi.is. Miðasal-
an hófst klukkan 13 í gær og seinni
partinn voru þegar þúsund miðar
seldir.
Að sögn Geirs Þorsteinssonar,
framkvæmdastjóra KSÍ, standa
almenningi um 4.500 miðar til
boða. Fyrirtæki hafa þegar keypt
vel á annað þúsund miða, þúsund
miðar eru fráteknir fyrir danska
stuðningsmenn og á þriðja þúsund
miða fá styrktaraðilar KSÍ, dóm-
arar, boðsgestir og fleiri. - esá
Miðasalan á Danaleikinn:
4.500 miðar í
boði á netinu
VÖLLURINN UNDIRBÚINN Með nýju stúk-
unni á Laugardalsvelli rúmar völlurinn um
tíu þúsund áhorfendur. FRÉTTABLAÐIÐ
FÓTBOLTI Glenn Roeder, fram-
kvæmdastjóri Newcastle, leitar
nú eins og óður maður að nýjum
sóknarmanni. Eins og flestir vita
þá lagði markahrókurinn Alan
Shearer skóna á hilluna í vor og
Michael Owen varð fyrir því óláni
að meiðast illa á hné fyrr í sumar.
Leitin virðist senn vera á enda því
í gær samþykkti Inter Milan til-
boð frá Newcastle í sóknarmann-
inn Obafemi Martins, en það til-
boð hljómaði upp á 10 milljónir
punda.
„Það er nú í höndum leikmanns-
ins og umboðsmanns hans að sam-
þykkja tilboð okkar,“ sagði Freddy
Shepherd, stjórnarformaður New-
castle, á heimasíðu liðsins. - dsd
Martins á leið til Newcastle:
Inter sam-
þykkti tilboð
OBAFEMI MARTINS Er að íhuga samning frá
Newcastle. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Stjórnarmenn hjá Bayern
München hafa hótað að kæra
Manchester United til Alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA,
ef þeir láta enska landsliðsmann-
inn Owen Hargreaves ekki í friði.
Bayern München hefur beðið
kollega sína hjá Manchester Unit-
ed að hafa sig hæga hvað varðar
Hargreaves. „Annars förum við
með málið til FIFA,“ sagði Karl-
Heinz Rummenigge, stjórnarfor-
maður Bayern München, í gær.
„Félagið sem leikmaðurinn er
samningsbundinn verður að gefa
leyfi fyrir því að annað félag hafi
samband við leikmanninn,“ bætti
Rummenigge við en Owen Har-
greaves er samningsbundinn
þýska liðinu til ársins 2010.
Sir Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Manchester Unit-
ed, hefur margoft lýst yfir áhuga
sínum á að fá Hargreaves til liðs-
ins og sér hann fyrir sér sem arf-
taka Roy Keane á miðjunni hjá
Manchester-liðinu. - dsd
Owen Hargreaves:
Bayern hótar að
kæra Man. Utd
KARL-HEINZ RUMMENIGGE Var frábær leik-
maður á sínum tíma. Hann er orðinn mjög
þreyttur á kollegum sínum hjá Man United.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Handboltinn að byrja
Undirbúningur handboltaliða landsins
er kominn á fulla ferð og í dag eru
fyrstu leikirnir í hinu árlega æfingamóti
Reykjavík Open. Leikið er með riðlafyrir-
komulagi næstu 3 daga en úrslitin fara
svo fram í Austurbergi á laugardaginn.
Karlarnir spila í Austurbergi og konurnar
í Seljaskóla. Nánari upplýsingar um
mótið er að finna á www.hsi.is.