Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 3
Sunnudagur 15. október 1978. 3 Vilhjálmur Lúövíksson, nýskipaður framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins Framkvæmd langtíma- áætlunar brýnasta verkefnið AM — Þann fyrsta október tók dr. Vilhjálmur Lúðvíksson við embætti fram- kvæmdastjóra Rannsóknaráðs ríkisins. Átti blaðið í gær tal af Vilhjálmi og bað hann að segja okkur hvaða verkefni bæri hæst, nú þegar hann hefði hafið störf. Vilhjálmur benti á að hann fengi i hendur verkefni sem þegar væru i fullum gangi, og yröi uppistaða vinnu hans þvi framhald starfs að þessum verkefnum. Um þessar mundir bæri óneitanlega hæst fram- kvæmd langtimaáætlunar ráðsins, en sjálfur hefur Vilhjálmur átt þátt i útgáfu og vinnu að samantekt hennar. Þessa áætlun þyrfti nú að fá viðurkennda og framkvæmda þannig að áhrifa hennar gætti við rannsóknastörf atvinnu- veganna eins og ætlast yrði til. Afla þyrfti fjármuna og hefja framkvæmd verkefna sem i áætluninni væru skýrð, en með henni er ætlunin að treysta tengsl rannsóknastarfseminnar við þarfir atvinnuveganna og þar með þjóöarinnar. Vilhjálmur minnti á að ekki væri hægt aö ganga frá áætlun sem þessari i endanlegu formi þar sem forsendur og þarfir þjóðfélagsins tækju stöðugum breytingum og yrði þannig að vinna verulegt starf að reglu- bundinni endurskoðun áætlunarinnar frá einum tima til annars. Þá vék Vilhjálmur að þætti Háskóla Islands i rannsókna- starfi hérlendis, en geta háskólans væri nú orðin rýmri en áður. A undanförnum árum hefði verið unnið að upp- Vilhjálmur Lúðviksson. byggingu kennslukerfa viö skólann, en nú mætti ætla að Framhald á bls. 3.7. Bygging íbúða á Grundarfirði: Ferðamiðstöðin tekin til gjaldþrotaskipta — að kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik „Fáránlegt að bera verðið saman við verð á tilbúnum íbúðum” segir Sigurður Guðmundsson skrifstofustjóri hjá Húsnæðismálastofnun ESE— 1 ágústmánuði siðast liðn- um hófst á Grundarfirði bygging fjölbýlishúss, sem i eru átta ibúð- ir og er það hreppsnefndin þar sem stendur fyrir byggingu húss- ins. Hús þetta sem stendur við Sæból 33-35, er byggt samkvæmt lögum frá þvi árið 1973 og 1976 um sölu og leigu ibúða sveitarfélaga og veitir Húsnæðismálastofnun rikisins lán til byggingar hússins, sem nemur allt að 80% af byggingarkostnaði. Reiknað er með þvi að húsið verði fullbúið, jafnt utan sem innan i október mánuði 1979. Nokkarumræöurhafa orðið um verð fbúðanna og hefur mörgum sýnst það nokkuð hátt miðaö við verð annarra ibúða af svipaöri stærð, og hafa margar tölur veriö nefndar i þvi sambandi. Timinn sneri sér i gær til Sigurðar Guðmundssonar, skrif- stofustjóra hjá Húsnæðismála- stofnun og var hann spurður að þvi hvort verðið á ibúðunum á Grundarfirði væri hærra en al- mennt tiökaðist. Sigurður sagði að i þessu tiltekna fjölbýlishúsi á Grundar- firði væru tvenns konar ibúðir. Minni ibúðirnar væru um 50 fermetraraðstærð aö innanmáli, en um 75 fermetrar með sameign og geymslum og væri verð þeirra um 13,5 milljónir. Stærri ibúöirn- ar væru 100 fermetrar að innan- máli, en um 120 fermetrar með sameign og væri verðið á þeim um 24 milljónir. Sigurður sagði að það bæri aö hafa i'huga að inni i verðinu væri i fyrsta lagi tilboð verktakans. I öðru lagi væri inni i verðinu skrif- stofu- og eftirlitskostnaður sveitarstjórnarinnar, svo og kostnaður við tæknivinnu, en það sem mestu máli skipti i þessu sambandi væri það að vextir.af þeim framkvæmdalánum sem Húsnæðismálastjórn veitir til byggingarframkvæmdanna væru innifaldir, en þeim yrði siöan breytt i' fóst lán til 33 ára. Þá væru og áætlaðar verðbætur. Sigurðursagði aðþaö væri sem sagt gert ráö fyrir að verðbólgan á byggingartimanum gæti orðið um eða yfir 40% á ári og þegar þeir væru að reyna að gera sér grein fyrir endanlegu verði ibúð- anna þá væru verðbætur inni i þeim tölum, sem væru miðaðar við þessa áætluðu verðbólgu. Ef verðbólgan yrði minni en gert væriráöfyrir þá myndi það leiða til lækkunar, en ef hins vegar verðbólgan yrði meiri en 40% þá yröi það til hækkunar á ibúðar- verðinu. Að lokum sagði Siguröur að hann ætti ekki von á þvi að bygg- ingarkostnaður ibúöar á Reykja- vikursvæðinu á þessu timabili, þ.e. fram i október 1979 væri neitt lægri, en i þessu. tilviki. en þaö væri vitaskuld fráleitt að miöa verð fbúöanna á Grundarfirði við verðá húsnæði tilbúnu til afhend- ingar i dag. TRIOLIET HEYFLUTNINGSKERFI Heymatarar, heyblásarar og rörabúnaður. Áríðandi er að þeir bændur sem hafa hugsað sér kaup á TRIOLIET heyflutningskerfi fyrir næsta sumar sendi inn pantanir fyrir 1. des. næstkomandi. Kaupfélögin um land allt Iféladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900 AM — 1 nýju Lögbirtingablaði er greint frá að bú Ferðamið- stöðvarinnar hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta og auglýst eftir kröfum i búið. Biaðið hafði samband við Helgu Jónsdóttur, fulltrúa skiptaréttar hjá borgarfógeta og spurðist nánar fyrir um þetta mál. Helga sagði að gjaldþrota- skiptabeiðni hefði borist á fyrir- tækið frá Gjaldheimtunni, vegna ógoldinna opinberra gjaldaoghefði máliðverið tekið fyrst fyrir þann 23. júni s.l. Var máliö tvisvar tekið fyrir eftir þaö, en frestað i bæöi skiptin, þar sem skiptabeiðandi vildi gefa Ferðamiðstöðinni kost á aö greiöa skuldina. 1 hvorugt skipti mætti fulltrúi Ferðamið- stöðvarinnar og er siðari fresti lauk, var málið tekið til úr- skurðar. Fórufulltrúar borgarfógeta á skrifstofu Ferðamiðstöðvar- innar i gær og var þá komist aö samkomulagi um að fresta aö innsigla skrifstofur fyrirtækis- ins, í ljósi þess að þvi yrði þá ekki unnt að standa viö ýmsar skuldbindingar sinar gagnvart ferðafólki og fleirum, sem valda mundi að krafan yrði enn hærri. Frestur á innsiglun og lokun skrifstofunnar var gefinn, þar til stjórnarformaður kæmi aftur, enhannernúerlendis. Þá var fresturinn bundinn þvi skil- yröi að fyrirtækið tækist engar frekari skuldbindingar á hendur og auglýsti ekki starfsemi sina. Enn skuldbundu starfsmenn og stjórnarmenn þess sig til þess að flytja engin skjöl né eignir burtu af skrifstofuni. BÆNDUR ATHUGIÐ Bændur nú er rétti tíminn til að versla fyrir næstu hækkun. Eigum til afgreiðslu strax af lager eftirtalin tæki: Heybindivélar IH Heyhleðsluvagna Kemper Sláttuþyrlur PZ Sláttutætara Taarup Heyþyrlur Kuhn Stjörnumúgavélar Kuhn Heyblásara Trioliet Súgþurrkunarbiásara Teagle *•-' • • T' * - . =. 4 Kaupfélögin um iand allt Véladeild Sambandsins Ármúla3 Reykjavik Simi 38900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.