Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 16

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 16
16 Sunnudagur 15. október 1978. Þegar ég var barn, mátti telja rithöfunda á fingrum sér, og meðal þeirra fyrstu sem ég komst i tæri við, og vissi að voru frægir menn, voru Hagalin, Laxness og Gunnar Gunnarsson. Þeir siðarnefndu voru þó einhvernveginn fjar- lægari en Hagalin: Gunnar Gunnarsson, grafinn austur á fjörðum á Skriðu- klaustri, Laxness alltaf útum allt, en Hagalin var allstaðar, bæði i skápnum heima, og i út- varpinu að ekki sé nú talað um blöðin. Þetta var á þeim árum, er þaö vakti sérstaka athygli i bænum, ef menn gáfu Ut skáld- sögur, alveg eins og njtort kvæði þótti talsverður viðburður fyrir hundraðárum.Nil lesa menn ekki lengur kvæði, heldur taka eitthvað inn til að fara i rtts, og skáldsagan hefur einhvernveginn limst við höfundana persónulega. Þær eruskýrslur um þá sjálfa, en ekki fréttir eða tiðindi ttr öðrum heimi. Menn kunnu skáldsögukafla utan að þá, eins og menn kunna nafnnttmerið sitt mlna og númeriö sitt hjá DAS og I Happ- drætti Háskólans. Það var ef til vill þessvegna, sem ég bankaði upp hjá Hagalin með mina fyrstu bók, en þá var ekki taliö þorandi aö gefa neitt ttt, nema hafa fengið stimpil fyrst hjá reyndum höfundi. Ég held að mestur timinn hafi farið i' það hjá þessum stóru að lesa bækur eftir aumingja. Hagalin tók mér ljttf- lega. Hann vissi mikið. Meira um mig sjálfan en ég sjálfur, haföi veriði'verkföllum meöættingjum minum og iýmsumkttppum lika I pólitikinni. Hann talaði minna um bækur, en það fannst mér afar leitt. Mér fannst hann lika dálitið lágvaxinn, þvi tttvarpsröddin var fyrir risa og þetta kjarnorða mál var einkum fyrir heljarmenni og menn sem ekki þvoðu sér oft i framan. Hagalin var bjartur, og augun loguðu af áhuga. Þegar hundurinn tók af mér brennivinið. Við urðum vinir, svona eins og menn veröa af þvi að eiga saman kálgarö. Næstu ár voru örðug. Allt haföi breytzt lika bókmennt- irnar. Aður þurftu menn aö hafa hugmyndaflug og að halda sig innan hins skilgreinda stils. Að hafa verið til sjós ellegar vera kunnugir sveitalifidugði ntt harla skammt. Eyrarvinna var lika litils metinsvona bókmenntalega séð. Samt áttu bækur að vera um fólk sem var á s jónum, 1 sveitinni eöa vánn verkamannavinnu en höfundarnir áttu að vera I Sviþjóð og skrifa symbolskt. Lifiö var svmbol, sögöu þeir. Bækur sem ekki höföu augljósa merkingu voru ekki bækur, heldur eitthvað annað og maður seig niður i stóln- um. Um þessar mundirbjó Hagalin á Bakka á Seltjarnarnesi sem eru hálfgeröir Lokinhamrar. Að visu ekkert fjall en sjóblautir menn á ferðallar nætur. Það var drauga- legt að ganga þangað úteftir á siökvöldum þegar stormurinn blés og særokiö sveiö I augunum. Svo kom stóri Lassie hundurinn fyrstfram og leitaöi að brennivini á manni og þegar hann sá að maöur var brennivinslaus hætti hann við að jeta mann upp til agna og lét vinalega i staðinn. Hannvar ámóti vini. Einu sinni kom ég með fleyg, og þá varö hann ekki rólegur fyrr en ég var bttinn að helia niöur. Hagalin var dýravinur og rit- stjóri Dýraverndarans þá, hann var sjór af sögum um dýr, en hann vissi ekki um aðra hunda sem hötuðu brennivfn svona. Að verða áttræður. Timinn hefur liöið fljótt, við höfum fallið með ljóshraöa i áttina til grafar. Það eru milljón ár siðan apinn varð til og i bókum mannfræöinga skiptir apinn um nafn fyrir hálfri milljón ára og nefnist þá frummaður. Nútima- maöurinn er 50.000 ára. Samt hefur ævi okkar ekki lengst neitt aöráöi, þrátt fyrir allt og þvi verða menn aö vera á fullu ef þeir ætla aö koma einhverju I verk. Enginn hefur þrælað meira en Hagalin, ekkert skáld að minnsta kosti. Fyrst lifsverkiö, aö skrifa bækur, svo að sjá fyrir sér til að geta haldið sig höfðinglega, en ekki eins og skepna. Hann hefur meira að segja gefið sér tima til að vera prófessor og ritstjóri Dýraverndarans, llka sjómaður á vélbátum og árabátum, bæjar- fulltrúi og hver veit hvað. Þaö kemur alltaf nógur timi gamli, sagöi Færeyingurinn og viö finnum aö það er rétt, annars hefði þetta ekki orðið heil blað- siða i „Hver er maðurinn”, með smáu letri og þó vantar þar allt sem máli skiptir, alla gleðina, þjáninguna og sársaukann, sem fylgdi þessu öllu. Hið vitstola llf kemur ekki fram i uppsláttar- bókum, fremur en húsáran I veð- bókarvottorðinu. Samt sjá skyggnir menn hvortveggja, hinn bjarta hjúp lifsins. Grænlandsfa rið á sóttarsæng Þaö eru til ýmsar vondar aö- ferðir til aðskrifa afmælisgreinar og minningargreinar, httn þó verst þegar höfundurinn skrifar meira um sjáifan sig en fórnar- i lambið. Menn baða sig I frægð og dauða og stiga sjálfir fram á svið- iö, hinn afmældi eða dauði veröur þá aukaatriði I skugga. Samt finn ég rika þörf til þess að segja frá hinum persónulegu samskiptum, þvl Hagalln hefur orðið til smám saman fyrir mér, bæði gegnum hana Kristrttnu i Hamravik og hann Sturlu i Vog- um, og eins vegna samskiptanna vegna eigin bóka. Hagalin tók ungum mönnum vel. Þeir komu með bækurnar sinar, handritin inn á sér inn i djttpt portið á Ljósvallagötunni eða þeir gengu yfir öskuhaugana með bækurnar inna' sér einsog steinbörn. Stjörnur skinu á himnum og þaö glampaði draugalega á maurildiö i hafinu og rottuaugun sem blimskökkuðu i myrkrinu. Hagalin kunni að tala við unga höfundaeins ogmikil skáld. Hann talaði við þá eins og ritjöfra heimsbókmenntanna, en hann sagði þeim aðeins satt um bæk- urnar. Hann skammaöi þá Iblöð- um, hæddistaðverkum þeirra, og hann örvaði þá til framfara. — Helvltis skepna er þetta! og maður beit á vörina, því undir niðri vissi maður að hann hafði lög að mæla. Það var mikið rætt um Hagalin á afmælinu, samt gleymdist eitt. Hið þrotlausaminni. Það var með óltkindum. Ég hafði komið til hans með handrit að Grænlandsfarinu sem var skrifað á allskonar pappir, jafnvel gömul pósteyðublöð frá danska skipinu. Svo var keyptur gatari og bókinni þröngvað inn I möppu, eins og þegar maður treöur skálmunum ofan i stigvél- in á eftir. Það var mikið verk aö skrifa svona bók og ráöa ekki yfir systemi. Slfellt voru ný undur að berast i gegnum mann á Græn- landi. Svo undir lokin var maður orð- inn eins og upphitaöur flugvélar- matur I sálinni. Sama bragð af rauökálinu, sósunni, kartöflunum kjötinu og sultunni. Allt eins, og þá var leitað til Hagallns. Hagallnvarveikurþennan dag, en samt gat hann lesið bók. — Þó þaönú væri, égles meira aðsegja þegar ég er með óráö, sagöi hann veiklulega undan fiöursænginni, sem minnti á hvítt og rósótt ský yfir fjalli. — Já, þtt getur komið á laugar- daginn og fengið þér kaffi, sagöi hann, þvi' hann skildi aö svona nokkuð þolir I rauninni ekki neina bið. Heimsbókm enntirnar, klasslkin.hafði algjöran forgang. Ég varð hissa á laugardaginn. Hagalin lá i rúmi sinu og las. Hann hafði tekið blöðin ttr Grænlandsfarinu og lagt þau ofan á sængina. Svo hóstaði hann ööru hvoru i pestinni, og þá hrundu blöðin á gólfið, einsog flyksusnjór hefði fallið ttr hvitrósótta skýinu ofan við fjallið. Þetta var hræðilegt, þvi ef nokkuö var erfiðara en að skrifa svona bók, þá var það að raða henni upp aftur. Þetta var ekki einu sinni nttmerað I blaðsiöutal, hvað þá annað. Mér sortnaði fyrir augum. Hann reis upp við dogg. Þetta er betra sagði hann og skjalliö vermdi mig einsog hlý gola. En: Bókin er bara ekki rétt sett upp. Httn er timalaus svona og vindlaus. Við skulum raða henni . öðruvisi. Taktu ntt blýant ogblað. Siöan fór hann gegnum bókina og virtist muna hana næstum þvi oröi til orðs. Hann sagði: „Þetta er fyrsti kafli, svo kemur þetta” og hann hélt áfram að raða þessari bók upp I huganum og ég ritaði niður jafnóðum, og svo sópaði ég saman fölið og snjóinn á gólfinu og þakkaöi kærlega, og nú skipti það i raun og veru engu máli hvort það tæki tima að sort- era þessa bók upp. Hann gaf mér lika ráð, og fann að einstökum stöðum, og siöan hefurmér oft verið hugsað til höf- unda, sem hann er að skamma I blöðunum. — Hann les þetta ekki einu sinni karldruslan segja þeir. En hann gerir meira en að lesa, hann kunni bækurnar utanað, a.m.k. i nokkra daga. Samtöl við skáld man hann I hálfa öld. Skáld sjómanna Gamlir Vestfirðingar, sem réru með Hagalin og þekktu hann sem ungan mann, Gttsti I Stapadal og hann Þorvaldur, sögðu mér að hannheföi byrjað að róa innan við fermingu, smár vexti, þrátt fyrir hákallinn i Lokinhömrum og gnægðmatar. En það var kjaftur á karli, og þvl tóku vermenn hon- um sem jafningja, og hann ólst upp þar sem landið lamdi hafið og urraði með bældum öskrum. Draugar héngu i svörtu berginu, en franskir sjómenn sváfu á kaldri klöpp fáein fet undir saltri moldinni á Svalvogum. Hann varð sjómaður. Menn sem skrifa, reka sig fljótt áþað, að það er núbetraað kunna sitt fag og þekkja umhverfi og að- stæður. Bertolt Brecht lét sínar sögur gerast I Kina i Sesttan, þær gerðust þar sem enginn hafði komið. Þá hafa menn svigrttm fyrir hugsanir slnar og tilbúning. Það gengurekki i sveitasögum, eða sögum frá sjónum. Menn verða að þekkja hvern stein, hverja athöfn og alla siði. Við I höfuðborginni hættum okkur ekki útfyrir bæinn, og borgarlifssögur eftir sveitamenn eru all svaka- legar, sérstaklega þó eftir bind- indismenn. Styrkur Hagalins lá I þvl að hann stóð báðum fótum á mörg- um sviðum. Hann var sjómaður, alinnupp á sveitabæ, var i pólitik i kaupstað og bjo' i höfuöborginni og var sigldur vel, haf ði m .a. bttiö erlendis. Ég hneigðist að honum sem sjómanni og sjómenn litu á hann og llta sem sinn höfund, hafa meira að segja sæmt hann sinni eigin orðu, heiðursmerki sjómannadagsins, sem hann einn listamanna hefur hlotið fram aö þessu. Sjómenn myndu aldrei hengja svona á sveitamenn bara af þvi að þeim féllu bækurnar þeirra. Nei, hann er þeirra maöur. Seinast þegar Hagalin átti stór- afmæli, þá málaði ég mynd af gufubátnum Asgeiri litla fra’ Asgeirsverzlun á ísafirði. Ntt fær hann ekkert, nema grein, sem alls ekki er vfet að sé einu sinni um hann, fremur en blaðsíðan um prófessorinn i' ritinu tslenskir Samtiðarmenn. Við sendum honum árnaðar- óskir, lika konunni, henni Unni Aradóttur. Jónas Guðmundsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.