Tíminn - 15.10.1978, Síða 28

Tíminn - 15.10.1978, Síða 28
28 Sunnudagur 15. október 1978. barnatíminn Umsjón: Sigrún Björnsdóttir Bömin hans Bamba Nóttin var komin. Dýrin í skoginum sváfu vært/ —öll nema þau sem urðu að vera vör um sig vegna ein- hverrar hættu. Bambi, hinn mikli konungur skógarins var langt í burtu frá konunni sinni/ henni Falínu og litlu börnunum þeirra tveimur. Falín lá í litla laufbyrginu. Runnar og þéttar flækjur uxu allt í kring og vinviðurinn teygði sig milli runnanna. Eld- f lugurnar skutu neistum út i nóttina. Litlu tvíburarnir/ Nanna og Búi/ fundu allt í einu/ að móðir þeirra bærði á sér. Þau bröltu öll á fætur og héldu i áttina út á engið sem var skammt frá. Nanna var á undan. Falin skipaði henni i ákveðnum tón að vera heldur á eftir. /,Hvað er ég búin að segja þér þetta oft, Nanna? Vertu á eftir þangað til ég segi þér að þú megir halda hiklaust áfram." „Ég er svöng," sagði Nanna ergilega. ,/Þú gleymir öllu þegar þú ert svöng," sagði Búi bróðir hennar i striðnistón. „Ekki jagast börn," sagði Falín og byrsti sig. „Þið eigið að muna að maturinn bragðast betur, þegar engin hætta er á ferðum." Falín gægðist nú út á engið. Enn voru þau í skjóli trjánna og runnanna. Hún þefaði i allar áttir og nasaði i vindinn. ,/Engin hætta neins staðar", sagði veik rödd fyrir ofan þau. Það var Perri, litli íkorninn sem talaði. „Ég hefi farið um allt engið þvert og endi- langt og enga hættu orðið var við". Hann sat upprétt- ur á trjágrein og hélt loðna skottinu yfir sér en fram- fæturna krosslagði hann á r 1--------------------------- Orðaleikur i # Fiskur, Mús, Rotta, # Hundur, Köttur, Hestur, Hæna, Kind, tJlfur , önd. Settu orðin inn I reitina þannig að þú notar hvert orð aðeins einu sinní _______________________________________________J brjóstinu eins og gömul kona. Hjartarkálfarnir brokk- uðu út á engið. „Þarna er Ranka frænka" hrópaði Nanna. Og þarna er Númi. Hann er alltaf á undan", sagði Búi. „Lana systir hans er alltaf á eftir." Litlu hjartarkálfarnir fjórir hlupu nú saman í hóp. Þeir hentust í loft- köstum og langstökkum fram og aftur um engið. Síðan fóru þeir i eitingar- leik. En allt í einu stönsuðu þeir snögglega með beina fætur og hlustuðu á hvininn i grasinu. Þá tóku þeir á rás. Þannig léku litlu frændsystkinin sér þar til leiktími þeirra var á enda. Á heimleiðinni mættu þau kanínu. „Sæl vertu kanína góð", sagði Falín. Eyrun á kaninunni stóðu beint upp, rödd hennar var dimm og flótti í augunum. „Hafið þið séð refinn?" spurði hún. „Hann er kænn og slunginn. Varið ykkur, varið ykkur." Aumingja litla kanínan. Fyrir hana var hætta á hverju strái. En fleiri máttu vara sig. Hættan var lika yfir Nönnu og Búa al- veg eins og hún vofði yfir foreldrum þeirra, Bamba og Falínu. Hættan stafaði frá MANNINUM. En þeim stafaði líka hætta af öðrum dýrum. Þetta þekkti Falin. En hvernig áttu litlu syst- kinin að þekkja hættuna? (Framhald i næsta barnatima)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.