Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 17

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 17
Sunnudagur 15. október 1978. 17 Fjórði heimurinn Tvö hundruð milljónir manna búa við mismunun vegna menningar og þjóðernis r 1 ^ Haraldur Ólafsson: V____________________________________J Um 200 milljónir manna f ver- öldinni eru meölimir stærri eða minni menningarhópa sem eru i verulegri hættu aö vera útrýmt eöa réttara sagt, aö hverfa inn i stærri þjóöaheildir. Þetta eru innfæddir viöa um heim.hópar sem lenthafa innan landamæra stórra þjóörikja en standa samt utan viö. Samtök hafa verið stofnuö til að vernda dýrateg- undir sem hætta er á aö deyi Ut. Unnið er aö þvi aö vernda fá- gætar jurtir og náttúrufyrir- bæri. En fámennir menningar- hópar hafa löngum átt undir högg að sækja. Kóngar og furst- ar, filmstjörnur og milljóna- mæringar stofna félög til að vernda seli og skallaerni, pönd- ur og tigrisdýr, hvali og salamöndrur en fáir láta sig nokkru skipta þótt þjóðabrot hverfi, menning merkilegra hópa þurrkast út án þess að prinsar eöa kvikmyndadisir lyfti augabrún. f heimi nútimans er fjöldi manns, sem mismunaö er á margvíslegan hátt þaö er jafn- vel ofsótt fyrir þaö eitt aö tala annaö mál en meirihlutinn tal- ar. Sumir verða aö gjalda fyrir aö lita ööru visi út en aörir eöa aö það stundar aörar atvinnu- greinar en þær sem stór-sam- félagið telur æskilegt. Sem dæmi um slika menningarhópa má nefna Sama á Norðurlöndum og i Sovétrikj- unum, Eskimóa eða Inuit á norðurslóöum, Indiána i Ame- riku. innfædda i Ástraliu og ýmsa fámenna hópa i öllum álf- um. Þetta fólk er sagt tilheyra fjóröa heiminum. Ekki er meö nokkurri sann- girni unntaö halda þvi fram aö þetta fólk hafi allt verið ofsótt vegna menningar sinnar eða litarháttar. I mörgum tilfellum hafa þjóöir haldiö að veriö væri að gera þessu fólki gott eitt meö þvi að snúa þvi frá fornri menn- ingu kenna þvi tungumál stór- samfélagsins o.s.frv. Danir hafa t.d. taliö sig vera aö vinna þarft verk meö þvi aö kenna Grænlendingum dönsku og fá þá til að leggja niöur forna lifnaðarhætti og lifsviðhorf. Svipaða sögu eraö segja um af- stööuna til Sama á Noröurlönd- um. En þessar aögeröir hafa óneitanlega virkaö þveröfugt við það sem ætlunin var. t staö þess að aölagast rikjandi þjóö hafa þessir menningarhópar glataö mörgu af þvi, 'sem þeim var dýrmætast m.a. vitundinni um menningararf sinn, þjóöar- vitund og sjálfsvirðingu. Sums staöar er ástandiö þannig að minnihlutahópar eru beinlinis ofsóttir, hundeltir og engu likara en reynt sé aö út- rýma þeim með öllu. t Guate- mala hafa Indiánahópar verið hraktir frá byggöum sinum og land þeirra lagt undir lönd stór- jaröeigenda. 100 Indiánar voru drepnir I sumar i Panzos I Guatemala er þeir efndu til friðsamlegrar mótmælagöngu. I Brasiliu er veriö aö fara æ meir inn á lendur Indlána sem enn lifa viö svipuö skilyröi og forfeöur þeirra. Þar i landi er veriö aö breyta skóglendinu I akra og bithaga. Sums staöar I Suður-Ameríku eru Indiánar þrælar landeigenda. Þótt pótentátar heims láti sig litlu skipta málefni þessara minnihlutahópa og þeirra sé sjaldan getiö i heimsfriöar- ræöum utanrikisráöherranna hjá Sameinuöu þjóöunum eða annars staöar þar sem málum er ráöiö, þá eru þessir hópar si- fellt að veröa háværari. Stofnuð hafa verið samtök nokkurra hópa frumbyggja og eru Indlán- ar i Ameriku.Inuit (Eskimóar) tSH/WcaiZ ~-pj‘ö&AíiQt>r ý, ZUO/AVAfí. KÍHZP* o.FL. þJb&A&íZöT TZfrfA J ncp#tH/\Q. IHftpöTZJlp Þjb&ABéor P/tPáAfí VSMEA, yo 9o o anoss /0 w*. ptssiíMe, .p' þs-rfíALtu J' ME/V/V /0» ei A A þessu korti, sem er úr danska biaöinu Politiken sést hvar þjóöabrot og þjóöernisminnihlutar eru. w hópa eiga viö margs konar erfiöleika aö striöa, aörir eru aö hverfa inn i stærri þjóöaheildir. Nokkrir þessara og Samar þar fremstir f flokki. Tvivegis hafa þessi samtök efnt til heimsráöstefnu, i slðara skiptiö i Kiruna i Sviþjóö fyrir rúmu ári. Islenska rikisstjórnin sýndi hug sinn i verki meö þvi aö veita nokkurn styrk til fundarins. Þótt upphæöin skipti ekki neinum sköpum, þá var eftir þvi tekið aö Island skyldi sýna samstööu meö þessum þjóðum. Enn sem komiö er hafa aörir frumbyggjar eða þjóða- brot sem erfitt eiga með aö viö- halda menningu sinni, litinn þátt tekið i þessu starfi. Frum- byggjar Astraliu hafa sýnt sam- tökunum mikinn áhuga og ýms- ir aðrir hafa i hyggju aö taka þátt I starfinu. Um nokkurra ára skeiö hefur starfaö vinnuhópur um málefni frumbyggja I heiminum. Miö- stöö hópsins er i Kaupmanna- höfn er þar safnað upplýsingum um málefni frumbyggja og birt- ar skýrslur um vanda þeirra og ofsóknir og erfiöleika sem aö þeim steöja. Islendingar ættu aö veita þessum málum meiri athygli en verið hefur til þessa. Islending- ar eiga fulltrúa I stjórn Sama- stofnunar Noröurlanda en sú stofnun er mjög mikilvæg fyrir Sama þar. En hún hefur lika vakiö athygli viða um heim og er nú i ráöi aö svipuð stofnun veröi sett á laggirnar á Græn- landi. Þar yröi einkum fjallaö um tungu og menningu Gram- lendinga og saga þeirra skráö út frá sjónarmiði landsmanna sjálfra en ekki aðeins sem saga þeirraerlendra manna sem þar hafa sest aö. Aukin menningar- samskipti Grænlendinga og Is- lendinga eru eitt af þvi sem efla þyrfti frá þvi sem nú er og meö tilkomu slikrar „akademiu” á Grænlandi ætti aö veröa auöveldara um vik aö koma á samvinnu i ýmsum menningar- málum. Þegarlitið er á landakort, þar sem merkt er inn á hvar minni- hlutahópar og þjóðabrot eru, kemur I ljós að þau eru i öllum heimsálfum. Þegar talaö er um þjóðabrotog minnihlutahópa er átt við fólk sem á einhvern hátt er mismunað vegna tungu og menningar og fær ekki aö njóta sin innan stærri rikjaheilda. húsbyggjendur ylurinn er ~ góður AfgreiAum einangrunarplast a Stor-Reyk|avikursvæðið fra manudegi — fostudags. Afhendum voruna a byggmgarstað. viðskiptamonnum að kostnaðar lausu Hagkvæmt verð og greiðsluskilmalar við flestra hæfi Borgarplait hf Bovsameti Þú grípur ekki ítómt með rauðu MAX VINYL glófunum. ÍMAX? Heildsölubirgdir og dreifing Davið S. Jónsson og Co. hf. S 24333. LYKUR ðl.OKTÓÐER s Electrolux /tö» Mjög kraftmikil ryksuga (loftflæöi 2.0 rúmm/min.) Ilún slekkur sjálfkrafa á sér, þegar pokinn er fullur. Dregur snúruna inn i hjóliö. Vegur aöeins 7 kg. oger meö6 m. langa snúru. VERÐ 96.500.- /m» Kraftmikil ryksuga (loftflæöi 1.9 rúmm/min.) Hún sýnir hvenær pokinn er fullur. Snúran dregst inn i hjóliö. Pokinn er sjálflokandi þ.e. rykift dreifist ekki þegar skipt er um poka. Veg- ur 7 kg og er meö 6 m langa snúru. VERÐ 86.500,- /:t02 Mjög ódýr og meöfærileg ryksuga en meö góöan sogkraft (loftfiæöi 1.65 rúmm/min.) Vegur 5.7 kg og er meö 7 m langa snúru. VERÐ 67.500,- Electrolux Vörumarkaðurinn hf. ARMuLA 1A — SÍMI 8611/

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.