Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 5

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 5
Sunnudagur 15. október 1978. <* ' \ 5 A hverju hausti safnar Land- græðsla rikisins melfræi á nokkrum svæðum, sem hafa verið uppgrædd á vegum stofn- unarinnar undanfarna áratugi. Bezta meltekjan hefur löngum veriö i landgræöslugiröingum i Kelduhverfi við Axarfjörð og i Sauölauksdal viö Patreksfjörð, en einnig hefur nokkur melur verið skorinn við Þorlákshöfn, Vik i Mýrdal, og i Meðallandi. Heildaruppskeran siðastliðin þrjú ár hefur veriö á bilinu 40-50 tonn af óþresktum mel. Uppskeran er öll flutt að Gunn- arsholti á Rangárvöllum, þar sem melgresið er þurrkaö og þreskt. Gefur þaö um 20-25 tonn af melfræi. Að vori er fræinu deilt viða um land til baráttunn- ar við landeyðingu og upp- græðslu örfoka lands eða sjávarsanda. Ný tækni — aukin afköst Um áratugaskeið hefur mel- fræs veriðaflað með handskurði hérlendis, þvi engum venjuleg- Melurinn er eina vörnin við foksandi um sláttuvélum verður við komið i mellöndum. Melgresið vex gisið og myndar illfæra sandgiga, sem gerir véltekju mjög erfiöa. Lengi höfðu menn velt fyrir sér möguleikanum á melsláttuvél, þar til fyrir þrem- ur árum að Ólafur Egilsson, frá Hnjóti við Patreksfjörö, smiðaöi fyrstu vélina. Siðan hefur smið- in veriö betrumbætt, og er þetta annaö haustið sem vélin er not- uð i núverandi mynd. Aætlað er að þegar bezt lætur, slái vélin á við 10-15 manns, eða um 2 tonn á dag. Hefur heildar, árleg meltekja a.m.k. tvöfaldast við þessa vélvæöingu. Sjálf sláttuvélin er venjuleg greiða af túnsláttuvél, og er hún i tengslum við margþættan vökvaþrýstibúnað, svo að skjóta má allri greiðunni út á hlið og halla áalla kanta. Meö þessum útbúnaði má láta greiðuna fylgja landinu, hvernig sem dráttarvélin hallast i melgigun- um. Dráttarvél meö drifi á öll- um hjólum ber sláttuvélina, og knýr ljáinn með vökvahverfli, Poki, áfastur sláttuvélargreið- unni, safnar axinu jafnóöum. 1 ár hafa mellönd sunnan- lands ekki borið ax i þeim mæli Myndir og texti: Hermann Sveinbjörnsson, Landgræðslu rikisins að vélsláttur sé hentugur. Melskurðarvélin hefur þvi ein- göngu starfað noröanlands I haust. Um 20 tonn voru skorin I Kelduhverfi, enaf þvi voru um 5 tonn handskorin. Nú er vélin i Sauðlauksdal,og mun verða þar til loka melskuröartimans um miðjan þennan mánuð. Seigasti landneminn Skortur á melfræi hefur um árabil háð landgræðslustarfinu, þvi melurinn er eina vörnin við foksandi, og oftast bezta jurtin til stöðvunar uppblásturs. Und- anfarna áratugi hefur Land- græöslan þó veitt þeim svæöum forgang, er stafaði ógn af sand- foki. Má þar nefna staði eins og Þorlákshöfn, Vik I Mýrdal, og Kelduhverfi i Axarfirði. Full- yrða margir, að hin áratuga langa uppgræðslustarfsemi á þessum stööum, sem hófst meö melsáningum, hafi tryggt áframhaldandi lifvænlega byggö. Nú með aukinni upp- skeru á melfræi, er meira til skiptanna, og hægt að vinna gegn landeyöingu viðar, t.d. i óbyggðum svo sem á Mývatns- öræfum og á Haukadalsheiði. A HONDA . ÆCORD1979 Þeir sem hafa lagt inn pant- anir eru vinsamlega beðnir að hafa samband við umboðið HONDA bifreiðar árgerð 1979 eru komnar til landsins Nokkrum bílum óráðstafað v_________________________) Aöeins kr. 3.384 þús. á götuna HONDA á íslandi CIVIC1979 Suðurlandsbraut 20, sími 38772, Reykjavík

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.