Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 23

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 23
Sunnudagur 15. október 1978. 23 ætlar ser að reyna að vinna sinn fjórða gullpening á Olympíuleikunum í IVfoskvu M —„Ég er ákveðinn i að taka þátt i Olympiuleik- unum i Moskvu 1980 — og að sjálfsögðu er draumurinn að vinna mitt fjórða gull”, sagði hinn frábæri þrístökkvari frá Sovétrikjunum, Victor Sanejew, sem þegar er byrjaður að undirbúa sig fyrir Evrópumeistaramótið i Prag. Sanejew sem er 32 ára er einn af frækn- ustu iþróttamönnum heims — hann hefur unnið þrenn gullverðlaun i þristökki á Olympiuleik- um — i Mexikó Munchen og Montreal. I'ÍC Sanejew var orðinn 11 ára þegar hann kom fyrst á fjáls- iþróttavöll i heimabæ sínum — Sukhumi i Georgiu við Svarta- haf. Þá var hann geysilegt efni I körfuknattleik og átti sú iþrótt þá hug hans og hjarta — hann lék körfuknattleik öllum stundum. Sanejew fór aö reyna sig I þristökki og lang- stökki við félaga sina og fylgd- ist maöur aö nafni Akop Kerselyan, frjálsiþróttaþjálf- ari, með þeim. Kerselyan, sem seinna varð þjálfari og mikill vinur Sanejew, sá strax að þarna var piltur gæddur miklum hæfileikum á feröinni — efni i snjallan stökkvara. Kerselyan fékk Sanejew til að leggja rækt við langstökk og þristökk og með mikilli elju — og reglusemi náði Sanejew hægt og hægt upp á toppinn. Aðeins 16ára (1963) varö hann unglingameistari Georgiu i Tbilisi — hann stökk þá 14.88 m i þristökki, 6.93 m i lang- stökki og hljóp 100 m á 10.9 sek. Sama ár varö þessi efni- legi piltur annar á Sovétmeist- aramóti unglinga og 1964 varð hann sigurvegari i þristökki á Evrópumeistaramóti ungl- inga i Varsjá i Póllandi — stökk þá 15.78 m og 1965 stökk hann 15.80 m. Hátindurinn i Mexikó Þegar framtiðin blasti viö Sanejew varð hann fyrir óhappi 1966 — meiddist á æf- ingu. Hann lét þetta mótlæti ekki á sig fá, heldur æfði af miklu kappi og stjarna hans fór aftur aö skina I Kiev 1967, þar sem hann varö Evrópu- meistari aðeins 21 árs gamall — stökk 16.67 m. Hátindinum náöi Sanejew svo á Olympiu- leikunum i Mexikó 1968, þegar hann tryggöi sér gullverölaun — stökk 17.39 m og setti nýtt glæsilegt heimsmet. Hann bar þá sigurorö af heimsmeistar- anum frá Italiu, Giuseppe Gentile. Þetta ár var mjög hamingjuríkt i lifi hans, þvi ab hann varö þá Sovétmeistari I þristökki og var kjörinn iþróttamaður ársins i Evrópu. Nafn Victors Sanejew var á vörum allra iþróttaáhuga- manna og hann fékk viður- nefniö „Kengúran frá Suk- humi” — vegna hins geysilega stökkkrafts, sem hann bjó yfir. Þegar hann setti heims- metið I Mexikó, stökk hann 6.30 m i fyrsta stökki, siðan 5.05 i ööru stökki og þriöja stökkið mældist 6.04 m — sam- tals 17.39 m. Sanejew tilkynnti siöan komu sina til Olympíuleikana I Munchen 1972, með þvi að setja nýtt heimsmet stuttu áö- ur i heimabæ slnum — stökk 17.44 m. A OL-leikunum varö hann siðan öruggur sigurveg- ari — stökk 17.39 m. Þeir hafa oftast unnið gullverðlaun á Olympíuieikum Fjórir gulipeningar Al Oerter (USA) Kringlukast 1056 + 60 + 64 + Þrír gullpeningar John Flanagan (USA) Sleggjukast 1000 + 04 + 08 Wiklor Sanejew (Sovét) Þrístókk . 1968 + 72 + 76 Tveir gullpeningar Myer Printslein (USA) Þristökk 1000 + 04 Ralph Rose (USA) Kúluvarp 1004 + 08 Martin Sheridan (IJSA) Kringlukasl 1904 + 08 Erik Lemming (Sviþjoó) Spjótkast 1008+ 12 .lonni Myyrra (Finnlandi) Spjólkast 1020 + 24 Paavo Nurmi (Finnland) 10.000 m 1020 + 28 Oouglas Lowe (Brefland) 800 m 1024 + 28 Clarence Houser (USA) Kringlukast 1024+ 28 Pal O'Callaghan (írlandi) Sleggjukasl 1028 + 32 Volmari lso-Hollo (Finnlandi) 3000 m hindr. 1032 + 36 Mel Whitfield (USA) 800 m 1048 + 52 Emil Zatopek (Tékkóslóvakiu) 10.000 m 1048 + 52 Bob Mathias (USA) Tugþraul 1948 + 52 Bob Richards (USA) Stangarstökk 1052 + 56 Adhemar da Silva (Brasiliu) Þristökk 1952 + 56 Parry O'Brien (USA) Kúluvarp 1052 + 56 Lee Calhoun (USA) MOmgrind. 1956 + 60 Glenn Davis(USA) 400 m grind. 1056 + 60 Peter Snell (Nýja-Sjálandi) 800 m 1060 + 64 Bikila Abebe (Eþiópia) Maraþonhlaup 1960 + 64 Jozef Schmidt (Pólland) Þristökk 1960 + 64 Lasse Viren (Finnlandi) 5000 m 1972 + 76 Lasse Viren (Finnland) 10.000 m 1972 + 76 Kom, sá og sigraði Fyrir Olympiuleikana i Montreal 1976bjóst enginn viö þvi aö Sanejew myndi sigra, þvi að allir veöjuöu á heims- meistarann frá Brasiliu, Joao del Oliveira, sem hafði stokkiö 17.89 m 1975. En hinn keppnisharöi Rússi lét þaö ekkert á sig fá — hann kom sá og sigraði — stökk 17.29 m, en Brasiliumaöurinn varö aö sætta sig viö þriöja sætiö — stökk 16.90 m. Victor Sanejew vann sin þriöju gullverölaun á OL og sló þar meö 72 ára gamalt met Bandarikjamannsins Myer Prinstein, sem varö sigurveg- ari I þristökki 1900 og 1904. Brasiliumaðurinn Adhemar Ferreira da Silva varð OL- meistari i þristökki 1952 og 1956 og Pólverjinn Jozef Schmidt 1960 og 1964. án æfinga Sanejew hefur verið mjög vinsæll á keppnisferli sinum — hann hefur 17 sinnum staöiö á efsta þrepi verölaunapallsins á stórmótum — hann hefur m.a. unniö þrenn gullverölaun á Olympiuleikjum, sex sinn- um orðiö Evrópumeistari. Nú hefur þessi keppnisglaöi Georgiumaöur sett stefnuna á OL i Moskvu 1980, meö viö- komu á EM I Prag sem fór fram i lok ágúst i ár. — Enginn dagur — án æfinga, er kjörorö Sanejew, og þaö kjörorö er lykillinn aö glæsilegum sigrum hans á iþróttavöllum i Mexikó, Róm, Moskvu, Aþenu, Paris, Munchen og Montreal, svo einhverjir staöir séu nefndir. —SOS Ferill Sanejew Fæddur: 3. oklóber 1945 í Sukhumi. Hæð: 1.88 m Þyngd: 82 km Heztu afrek — ár hverl: 1963: 1964: 1965: 1966: 1967: 1968: 1969: 1970: 1971: 1972: 1973: 1974: 1975: 1976: 1977: 14.88 m 15,78 m 15,80 m verletzt 16,67 m 17,39 m 17,15 m 17,34 m 17,29 m 17,44 m 17,12 m 17,23 m 17,33 m 17,29 m 16,90 m SANEJEW...sést ásamt þjálfara sinum Kerselyan, þarsem þeir eru abfara á veiöar iSukhumi-skógunum viö Kákasusfjöll.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.