Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 29

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 29
Sunnudagur 15. október 1978. 29 kynni Sonurinn, (Gary Guffey) starir hugfanginn á fljúgandi furöuhluti. af þriðju Geim skip OT'd'rb>T Julian, (Melinda Dillon) reynir aö foröa sér og syninum undan fljúgandi furöuhlut. Innskrift - vélritun Blaðaprent hf óskar eftir starfskrafti við innskriftarborð. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Vaktavinna. Uppl. i sima 85233. BLAÐAPRENT HF. Húseigendur Höfum ieigjendur að 2ja til 5 herb ibúðum viðsvegar um bæinn. íbúðamiðlunin Laugavegi 28, Simi 10-0-13 Heimasimi 38430 ! j Sunniendingar - bændur og byggingamenn Höfum fyrirliggjandi töluvert magn af timbri i ýmsum stærðum á hagstæðu verði. Heflum og sögum timbrið sam- kvæmt óskum yðar,yður að kostnaðar- lausu. Komið eða hringið og við veitum allar nánari upplýsingar. Byggingafélagið Dynjandi s.f. Gagnheiði 11. Selfossi. Simi 99-1826 og 99-1349. KVIKMYNDIR Jens Kr. Guðmundsson St jórnubió: Náin kynni af þriöju gráöu (Close encounters of the third kind) Handrit og leikstjóri: Steven Spielberg Argerö: 1977 Sýningarlengd: 130 minútur Stjörnugjöf: + + + (af fimm mögulegum) Loksins eru kvikmyndahús borgarinnar aö risa upp úr þeirri ládeyöu sem einkennt hefur þau ööru fremur i allt sumar. Núna eru þau farin aö bjóöa gestum slnum upp á hverja „stórmyndina” á fætur annarri. Austurbæjarbió er llklega ný- búiö aö taka af spólunum hina misheppnuöu „Liztomaniu” Kens Russells þegar þessi skrif birtast. Háskólabíó sýnir nú Travolta-myndina „Saturday night fever” meö úrkynjaöri „disco”-tónlist Gibbbræöranna frá Astraliu fyrir troöfullu húsi. Og Stjörnubió hefur á spólunum hina ágætu „science fiction”-mynd „Náin kynni af þriöju gráöu”. Nafn myndarinnar, „Náin kynni af þriöju gráöu”, er fengiö úr bók eftir J. Allen Hynek um visindalegar rann- sóknir á óþekktum furöuhlut- um. Hann flokkar náin kynni af fljúgandi furöuhlutum frá öörum hnöttum undir fyrstu gráöu, þegar menn hafa séö slika hluti úr litilli f jarlægö. Ná- in kynni af annarri gráöu veröa, þegar fundist hafa efnislegar sannanir fyrir komu þeirra til jaröar. Og náin kynni af þriöju gráöu er þegar menn hafa séö „áhöfn þessara hluta, eöa náö beinu likamlegu sambandi viö hana. Efni myndarinnar er I sam- ræmi viö nafniö. Hún sýnir konu nokkra, Julian Guiler (Melinda Dillon), til heimilis I Indiana- fylki I Bandarikjunum, sem ásamt ungum syni sinum verö- ur fyrir sterkum áhrifum frá fljúgandi furöuhlut. Slikt hiö sama hendir tauga- slappan rafvirkja ,Roy Neary (Richard Dreyfuss, kunnur fyrir leik sinn i „Jaws”, „American Graffiti”, o.fl. góö- um myndum). Sonur Juliönu hverfur á vit fljúgandi furöuhluts, en hún og Roy dragast á dularfullan hátt aö fjalli nokkru I Wyoming. Þangaö komast þau viö illan leik og ná —ásamt alþjóölegum hópi visindamanna — góöu sambandi viö verur frá öörum hnetti, sem skila Juliönu aftur syninum. gráðu Hingaö til hef ég haldiö aö mynd meö svona söguþræöi væri best geymd I ævintýra- heimi ungra barna. Þaö er mjög vandasamt verk aö gera trúveröuga mynd fyrir fulloröiö fólk um fljúgandi furöuhluti. Ennþá vandasam- ara veröur verkiö þegar myndin sýnir verur frá öörum hnöttum. En leikstjóranum og hand- ritahöfundinum, Steven Spiel- berg (gerði einnig „Jaws”), tekst aö leysa þetta vandmeö- farna verkallbærilega af hendi. Aö visu verkarmyndin óraun- veruleg til aö byrja meö en þeg- ar líöur á myndina tekur tækni- hliöin viö svo um munar. Meö þeirri hliö flytur Steven mynd- ina úr þriöja flokks dellumynd upp i góöa alvörumynd. Ahorf- andinn bókstaflega gleymir óraunveruleikanum i stórfeng- legu tækniundrinu. Undir þaö fléttast svo engu siöri tónlist snillingsins John Williams (at- hugið aö þaö er ekki klassiski gitarleikarinn John Williams, heldur bandariski hljómborös- snillingurinn, alnafni hans). Eitt er þaö sem rýrir gildi myndarinnar nokkuö og kemur þó ekki ótrúveröugum sögu- þræöi hennar beint viö. Þaö er aösamband Juliönu og Roys við áhorfandann er ekki nógu gott. Þau virka myndina út i gegn sem ókunnugar persónur sem honum kemur litiö viö. Enda hlær hann bara þegar illa fer fyrir þeim. Og eitt enn, tekur móöir þvi sem sjálfsögöum hlut þegar hún endurheimtir barn sitt úr hönd- um vera frá öörum hnöttum? Égbýstvið að umræður og til- hugsun um fljúgandi furöuhluti séaö aukast hérlendis um þess- ar mundir. „Náin kynni af þriðju gráöu” hafa eflaust jákvæð áhrif á skoöanir fólksá þessum hlutum. Hún sýnir verur frá öörum hnöttum sem vingjarnlegar verur og stingur þannig i stúf viö aörar „science fiction”-myndir,sem sýna þess- ar verur sem eitthvaö ógnvekj- andi og jafnvel stórhættulegt fyrirbæri. Roy, (Richard Dreyfuss) horfir á eftir fljúgandi furöuhlut.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.