Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 15

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 15
Sunnudagur 15. október 1978. 15 LSiiiil1 *l11 voru á siglingu i grennd viö flot- ann og rikisstjórnir geröu kröf- ur til eignarhalds á þessum jökuleyjum. Stórveldí deila um Svalbarða Englendingar kröföust yfir- ráöa á Svalbaröa vegna þess aö þeir heföu oröiö fyrstir til aö stunda hvalveiöar viö strendur þess og setst þar,aö auk þess sem enskur maöur heföi fyrstur fundið eyjarnar (sem var ekki rétt). Hollendingar kröföust veiðiréttinda en ekki yfirráða. Kristján IV. hélt þvi hins vegar fram aö Svalbarði væri hluti hins forna norska skattlands, Grænlands. Þá hélt hann þvi einnig fram aö Noregur réöi frá fornu fari öllu Noröur-Ishafinu. Þessi sjónarmiö voru viöur- kennd að vissu marki og m.a. má nefna að Englendingar greiddu Kristjáni IV tvivegis leigu fyrir veiðiréttindi og buöust til að kaupa Svalbarða. Dansk-norska konungsrikiö hélt úti herskipum i Norðurhöfum til að sýna hverjir færu þar með æöstu völd og smám saman voru geröir samningar um veiðiréttindi við ýmis riki. Frakkar, Spánverjar, Sviar, Hamborgarar og Brimarar stunduðu einnig veiöar i Norðurhöfum. Englendingar og Hollendingar litu þessa að- skotamenn óhýru auga og vildu sitja einir aö krásunum. Þeir áttu þó i sifelldum deilum inn- byrðis og kom hvað eftir annaö til átaka milli þeirra út af veiöunum. Einu mennirnir sem frá gam- alli tið höföu reynslu af hval- veiðum, voru Baskar við Biskayaflóa og svo ibúarnir i Norður-Noregi.bæði Samar og Norðmenn. Á skipum Eng- lendinga og Hollendinga voru oft Baskar sem kenndu veiðiað- feröir og Samar fóru langan sjó- veg til hvalveiða. Saga hvalveiöanna i Noröur- höfum er merkilegur kapituli i hafsögu Evrópu og meö þeim fékkst margvisleg vitneskja um svæöin noröan heimskauts- baugs. Fyrst i staö voru þaö skiði hvalanna sem verðmætust voru. Þau voru notuö sem teinar i lifstykki og krinólinur, i regn- hlifar,sem fjaðrir i stóla og vagnsæti. Spikiö var notaö sem ljósmeti til sápugerðar og sút- unar. Hvalveiðarnar stóðu þar til undir lok 18. aldar. Hollending- ar báru langmest úr býtum, enda stunduðu þeir veiðarnar af meira kappi en aðrir. Rússar koma til sögunnar Rétt um aidamótin 1700 fer fyrst að fréttast af Rússum á Svalbaröa. Þeir fengust þó ekki eingöngu viö hvalveiðar eins og aörar þjóöir, heldur lögðu mikla áherslu á loödýraveiöar. Það fólk,sem frá Rússlandi kom til veiða á Svalbaröa var frá þorp- um við Hvitahafiö. Kaupmenn sendu þetta fólk noröur i höf til að afla hinna verömætu skinna og spiks.sem þar var að finna. En klaustrin rússnesku geröu lika út og sendu verkafólk noröur i höf til veiöa. Þessir Rússar fóru aö hafa vetursetu á eyjunum. Undir lok 18. aldar fóru Norðmenn að búa á Sval- baröa um lengri eða skemmri tima og stunda hreindýraveiöar og selveiöi auk loödýra- veiöanna. Fra þcssum tima eða nú um tveggja alda skeiö hafa Norö- menn og Rússar veriö nágrann- ar á Svalbarða. gerðar Bókaútgáfa Menninga rsjóös og Þjóövinafélagsins hefur sent frá sér annað bindiö af Korta- sögu tslands, en þaö nær frá lok- um 16. aldartil 1848. Ritþetta er framhald af Kortasögu islands I, sem kom dt 1971 og náöi frá öndveröu til loka 16. aldar. Kortasaga íslands II hefst meö Islandskorti Guöbrands Þorlákssonar biskups og rekur siðan merkilegan þátt land- fræðisögunnar, uns Björn Gunn- laugsson lýkur mælingu Islands og kort hans eru gefin út. Hún hefur aö geyma, auk textans, 165 myndir af landakortum og kortahlutum, og eru 146 þeirra svarthvitar, en 19 litmyndir. Kortasaga tslands leiöir skil- merkilega iljós, hversumenn fá smám saman skaplegar hug- myndir um lögun og legu lands- ins, er undirstaöa fæst fyrir raunhæfari kort og gleggri hug- myndir koma til sögunnar. Gamalt myrkur vikur fyrir nýrri birtu, mikilhæfir fræöi- menn leggja grundvöll aö þekk- ingu nútlmans á tslandi og vis- indalegri kortagerö af noröan- veröri kringlu heims. Höfundur þessa rits er Haraldur Sigurös- son, fyrrverandi bókavöröur. Hann hefur mikiö fengist viö rit- störf, en aðalverk hans er Kortasaga Islands. Aö henni hefur hann unniö um langt ára- bil af mikilli alúö og vandvirkni. Hann mun hafa fariö aö safna drögum til verksins um 1953, og unniö stööugt aö þvi siðan áriö 1956, ogstundum dvalist erlend- is i þessuskyni, m.a. bæöi i Hol- landi og á Norðurlöndum. Kortasaga tslands er í stóru broti, 30x41 sm. Auk textans flytur hún alls 344 myndir af landakortum og kortahlutum, og eru 309 þeirra svart-hvitar, en 35 litmyndir. Bókin er ljós- sett, brotin um og prentuö i prentsmiöjunni Odda h.f., en filmuupptaka litmynda er gerö I Myndamót h.f. og svart-hvitra i Korpus h.f. Útliti og gerð réö Gisli B. Björnsson, Auglýsinga- stofan h.f., en vinnu viö útfærslu á uppsetningu, frágang kápu og tátílsföna annaöist Guöjón Egg- ertsson, Auglýsingastofan h.f. Bókbandiö vann Sveinabók- bandið h.f. A kápu er Islands- kort Þórðar biskups Þorláks- sonar frá 1668. A blaöamannafundi, sem haldinn var til þess aö kynna Kortasögu tslands II, lét Kristján Benediktsson, formaö- ur Menntamálaráös, svo um mælt, aö verkiö lofaöi meistar- ana, og atti þar aö sjálfsögöu viö Harald Sigurðsson og starfsfólk prentsmiöjunnar Odda, sem hefur hér leyst af hendi óvenju- vandað verk, og jafriframt vandasamt. Mun og eigiofmælt, að bókin sé aö öllum ytra bún- ingi eitt af afreksverkum is- lenskrar prentlistar, gullfalleg og vönduö af hálfu prentsmiöju og bókbands. Kristján Benediktsson, Björn Th. Björnsson og Haraldur Sigurösson meö hina veglegu bók fyrir framan sig. Tfmamynd: Tryggvi. IbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIbIíí o I 1 polyvlies ÓDÝR GÓLFDÚKUR Verð pr. ferm.: 2.160 - 2.248 - 2.824 llr^S v ^SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR SUÐURLANDSBRAUT 32- EINNIG INNAKSTUR FRÁARMÚLA29 lalaíalaBBBBlalalBÍaBBtaBlBÍBBBBIgBygEllBÉEBÉi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.