Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 26

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 26
26 Sunnudagur 15. október 1978. Flytja dróttkvæði og afbrigði af trölla- slag sem nefnist hrynþursahark Stóðu vit tvau i túni, tók lin (hlin)um mik sínum höndum haukligt kvendi hárfögr ok griet sáran; titt flugu tár af tróðu, til segir harmr (hugr) um vilja strauk drifhvitum dúki drós um hvarminn ljósa. Svo segir í einum textanum á væntanlegri plötu Þursaflokks- ins og reyndar var þetta þaö fyrsta sem undirritaður rak augun i er hann fletti sundur pappirsstranga einum á blaða- mannafundi, sem hann hafði verið boöaöur á meö Þursa- flokknum og forrdðamönnum Fálkans h.f. á dögunum. Pappirsstrangann sem i upphafi var með teygjuband um sig miðjan haföi undirritaöur feng- ið i hendur skömmu eftir aö hann gekk inn i hús Dr. Gunn- laugs Þórðarsonar, þar sem blaðamannafundurinn var hald- inn oghaföi stranginn að geyma upplýsingar um væntanlega plötu Þursaflokksins. Stórmerkilegt framlag Eftir upplýsingum þessum að dæma og eftir aö undirritaöur hafði hlýtt á plötu Þursaflokks- ins þá virðist einsýnt um aö hér er um að ræða stórmerkilegt framlag i þágu islenskrar tón- smiðagerðar. A þessari plötu veröa 8 lög og eiga þau það fiest sammerkt að vera komin úrbók sira Bjarna Þorsteinssonar, ls- lensk þjóðiög,sem út kom fyrst á árinu 19(18-1909, en aptur siöar á þvi blessaða þjóöh átiða rári l974.Svo að notuöséu wð Þursa svo og þeirra ritháttur. Nu hala þessi lög verið til um langan aldur meö islensku þjoö- inni svo að það eru ekki beinlinis þau sem eru þetta stórmerki- lega framlag til islenskrar lón- smiðagerðar. sem úndirritaður drap á hér aö framan, heldur er það hugmyndin og þaö hvernig Þursamir vinna úr þessum lög- um. sem er það merkilega. Aðtæ en lengra er haldið, þá er rétt að staldra við og minnast þess hverjir skipa Þursal'lokk- inn. A margumtöluðum pappirsstranga, sem hefur að geyma þær upplýsingar, sem skreyta eiga plötuumslag hinnar nýju plötu segir : H 1 N N tSLENZKI ÞURSAFLOKKUR Asgeir óskarsson: Trumbur, hverskyns kólfar og kubbar, bjöllur og bumbur. Tómas Tómasson: Bas-gigja og fimbulorgan Egill ólafsson: Söngur, forte-piano, slaggigja. Rúnar Vilbergsson: Fagott, ketilbumbur. Þórður Arnason: Als kyns slag- gtgjur. Eins og sjá má á þessari upp- talningu þá slá Þursar á ýmsa framandi strengi og ekki er vist að allir kannist við þessi hljóð- færi. Þá er stillinn sem margir vilja kalla svo.ekki likur þeim sem tiðkast á þessum siöustu og „verstu” (?) timum, þvi að Þursar kyrja sin lög fullum hálsi undir dróttkvæöum hætti, afbrigöum af tröilaslag sem nefnist hrynþursahark o.fl. o.fl. Þáttur Sæmundar Klemenssonar Aður en slegið veröur á léttari og jafnframt nútimaiegri strengi.þá er ekki úr vegi aö gripa aðeins niður i nokkrum textanna á plötunni til þess að gefa lesendum smá hugmynd um það hverju þeir eiga von á, ef þeir á annaö borð koma til meö að heyra þennan Þursa- söng. 1 texta við eitt almerkasta lag plötunnar sem heitir GRAFSKRIPT með undirtitiU ( Hjer undir jaröar h vilir moldu) segir m.a.: Hjer undir jarðar hvilir moldii SxmundarKlemenssonar Hkami Sá var fæddur seylján hundruð og sextiu, auknum þremur: gefinn til ekta guöelskandi, Ingibjörgu Sæmundar ástkærri dóttur... Textinn er grafskript yfir Sæ- mund nokkurn Klemensson er bjó i Stapakoti á Suðurnesjum og I upplýsingum segir að Þor- björn Bjarnason hinn auðgi (bóndi i Skiidinganesi) langa langa langa langa langafa bróðir Þórðar Arnasonar Magnússonar sla ggigju leikara Þursaflokksins hafi haldið Sæ- mundi þcssum undir skirn. 1 öðru lagi sem sagt er tilorðið skömniu eptir vetrarsóihvörf árið 1977 eða réttf þann mund er menn fara inn eptir og koma iniian að, heitir N'ÚTÍMINN . 1 þvi segir m.a.: Nútiminn er trunta með tóman grautarhaus Hjartaö það er hrlmaö þvi heilinn gengur laus. (Þaö skal tekið fram til þess aö forðast misskiining að Nú- timi Tímans tekur þetta ekki til sin.). Aðlokum,áöur en skipt verður yfir i Nútimalegri hátt. skildist undirrituðum það á Þursa- mennum að staðið hefði til að tileinka plötu þessa islensku bændastéttinni. Undirritaöur er þeirrar skoðunar aö það sé rangt og þaö þrátt fyrir að Is- lensk bændastétt eigi allt það besta skilið. Að mati undirritaðs ætti að tileinka islenskum móðurmálskennurum af gamla skólanum plötuna svo og öllum þeim islenskukennurum öðrum sem strlöa viö þaö daginn út og daginn inn að troöa drótt- kvæðum, rimum, danskvæöum jafnt sem sárasaklausum ferskeytlum i nemendur, þvi að þeir væru manna best að þeirri tileinkun komnir. Þursar leggja land undir fót A blaöamannafundinum sem haldinn var s.l. fimmtudag kom fram að Þursaflokkurinn hyggst á næstunni i samráði við Fálk- ann h.f. heiöra landsbyggðina með nærveru sin'ni. Fyrirhugað er tónleikahald á fjölmörgum stöðum viðs vegar um landið og hefst þessi vetrarviðburður miðvikudaginn 18. október n.k. Ferðin mun standa i um tiu daga á 12 stöðum, Skógum, Höfn, Eiðum, HUsavik, Akur- eyri, Sauðárkróki.Stykkishólmi, Keflavik, Akranesi, Bifröst, Reykholti, Kleppjárnsreykjum, Isafirði og Selfossi og hefjast flestir tónleikanna kl. 20.30, en þeir verða nánarauglýstir siðar á viðkomandi stööum. Eftir að ferö þessari lýkur er fyrirhugað að Þursaflokkurinn taki upp þráðinn i Reykjavlk, þar sem reynt veröur að endur- Þursar leggja land undir fót I hjólbörum eða hvað? Asgeir Óskarsson. Egiil Ólafsson. Myndin sýnir Hermann Vii- hjálmsson, heimsfrægan i Reykjavlk, en hann skreytir framhlið og bakhlið umslagsins utan um nýju plötuna með Þurslaflokknum. Nútíminn ★ ★ ★ Rammíslensk og þræl- mðgnuð Þursamenni Karl Sighvatsson. Tómas Tómasson. Úr æfingasalnum I Guiinlaugs húsi Þórðarsonar — Þursar flytja verk af plötu sem þeir ganga með I maganum. Timamyndir: Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.