Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 14

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 14
14 mni Sunnudagur 15. oktöber 1978. va'aS'at> tí'e0 SÖaro a° °' *a,só9° ',''6 \an<»5'%a «»rö'*9 .nQO Pe Svalbarði er eyjaklasi á mörkum Atlantshafs og Noröur-lshafsins. Eyjarnar eru á svæöinu milli 74. og 81. gráöu norðlægrar breiddar og 10. og 35. gráðu austlægr- ar lengdar. Hálft árið rik- ir þar myrkur og kuldi en að sumrinu er sól á lofti allt að þremur mánuðum á ári hverju. Flatarmál allra eyjanna eru rúmlega 62.000 ferkilómetrar. Tvær eyjar eru stærstar: Vestur-Spitsbergen og Nord- austlandet en Barentseyja og Egdeeyja eru einnig nokkuð stórar. Nú er öll byggö á Sval- barða á Vestur-Spitsbergen. Þar eru kolanámurnar sem starfræktar eru enn þann dag i dag og þar var stundaöur veiði- sjcapur öldum saman. Ekki er vitað hvenær Sval- baröi fannst fyrst en i annálum frá árinu 1194 segir: „fundinn Svalbaröi.” 1 Hauksbók Land- námu er minnst á Svalbarða og sagt aö þangað sé fjögurra dægra sigling frá Langanesi og segir ennfremur aö landið sé norður i hafsbotnum. Mikíl þekking á norðurhöfum Það er með óiikindum hve mikla þekkingu Norðurlanda- búar höfðu á norðurslóöum og er ekki að efa, aö bæði Norö- menn og Islendingar höfðu tals- verða þekkingu á landaskipan noröurhjarans á 12. öld og jafn- vel fyrr. A 9. öld fór norskur maður, óttar að nafni á skip norður fyrir Noreg og inn i Hvitahaf. Segir hann að Norð- menn og Finnar hafi þá stundaö rostungaveiðar. Rostung var tæplega að hafa fyrr en úti á rekisnum og hafa menn þvi far- ið alllangt norður i haf til að veiða þessi dýr. A þeim ferðum hafa menn ef til vill haft veður af Svalbarða, Bjarnarey og öðrum smáeyjum sunnan Sval- barða. Þá er einnig liklegt að ferðir til Hvitahafs, sjóleiöina, hafi oröið til þess, að menn sæju Novaja Semlja. Þegar straumar og isalög i Norður-Atlantshafi og Norður- Ishafinu eru könnuð kemur i ljós að þaö er ekki svo erfitt að finna Svalbaröa. Golfstraumurinn veldur þvi, að mestan part árs- ins er auöur sjór norður til Sval- baröa. Sé isröndinni fylgt beggja megin við þennan hlýja straum, þákemurfyrr eða siðar að Svalbarða og skiptir engu Musterisf jalliö á Spitsbergen. hvort farið er frá Islandi eða Noregi. Hinar langlifu hug- myndir um hafsbotn sýna að menn höfðu grun um, aö Evrópa og Grænland væru samtengd i norðri. Landræman sem á gömlum kortum er sýnd aö liggi frá Noröur-Evrópu yfir til Grænlands fylgir Svalbarða og OitiintaUo' Q'txmlaiidut jtttuc fíUdnuMuiíJvíaind). Kort þetta er kennt við Jón Guömundsson læröa, en hann fæddist 1574. Sýnir þaö glögglega hugmyndir tslendinga um landaskipan i noröurhöfum. stundum Novaja Semlja og Franz Jósefslandi og er reyndar ekkert annað en isbrúnin, sem norrænir menn þekktu mæta vel frá veiðiferðum. Svalbarði finnst aftur Eins og margt af þeirri vit- neskju sem norrænir menn bjuggu yfir á miðöldum, gleymdist Svalbaröi um hrið en landafundirnir miklu um alda- mótin 1500 vöktu forvitni Evrópumanna um allt sem vitaö var um fjarlæg og fram- andi lönd. Þegar leið á sextándu öld harönaði samkeppni Eng- lendinga og Hollendinga á Noröur-Atlantshafi, og sérstak- lega varð verslunin við Hvitahaf keppikefli þessum fremstu siglingaþjóöum i Norður- Evrópu. Hollendingum tókst að afla sér viöskiptasambanda i Norður-Rússlandi þrátt fyrir það að Englendingar hefðu orðið langt á undan þeim að semja við stjórnina i Moskvu um verslun við tshafið. Hol- lendingar ætluðu nú að reyna að komast til Austurlanda með þvi að sigla noröur fyrir As|u og komust m.a. til Novaja Sémlja. Vorið 1596 lagði hollenskur leiöangur norður i höf. Leiðangursstjóri var Willem Barents og var ætlunin að halda norð-austurleiðina til Indlands. En þangaö komst Barents ekki en sá hins vegar tindóttan fjall- A þessu korti sést vel landfræöilega staöa Svalbaröa, og fjar- lægöir til næstu landa. garö bera við himin. Landið nefndi hann Spitsbergen, Tinda- fjöll. Barents staldraði skamma hriö við á Svalbarða en hélt i austurveg og lést árið eftir. Hafið noröan Noregs og Rúss- lands ber nafn hans og kallast Barentshaf. Aður en Barents kom að Spitsbergen haföi hann fundið Bjarnarey. Hlaut hún nafn af þvi að menn hans felldu þar hvitabjörn. Þessi endurfundur Svalbaröa vakti furöu litla at- hygli. Það var ekki fyrr en Hud- son kom þar árið 1607 og varð var hvalavaðanna við strendurnar að siglingamenn sneru skipum sinum þangað til aö veiða hinn risavaxna Græn- landshval. Hvalveiðarnar viö Svalbaröa stóðu i tvær aldir. Þær færðu mörgum auð, öðrum örkuml og örbirgð, sumir kom- ust til metorða^ðrir áttu siöasta leg i grænköldu ishafinu. Hundruð veiðiskúta héldu ár hvert norður á bóginn herskip ■ ■ ■■■■:■ : ■;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.