Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 11

Tíminn - 15.10.1978, Blaðsíða 11
Sunnudagur 15. október 1978. 11 m. gestum. Rétt er að taka þaö fram fyrst viö erum aö tala um laun, aö þau eru mjög mismun- andi há, eftir stööum og þaö sýnir, ásamtýmsuööru, hversu litiö samræmi er i þessu og lítil samvinna á milli safnanna, þvi auövitaö er þaö alveg hliöstæö vinna sem innt er af höndum I öllum þessum söfnum. Óhjákvæmilegt verður að sérhæfa söfnin — Frá hvaöa tima eru þeir yfirleitt, munirnir, sem geymdir eru i þessum söfnum? — Þeir ná yfir hundraö ára skeiö frá fyrstu áratugum nitjándu aldar og fram á fyrstu tugi hinnar tuttugustu. Hitt þarf auövitaö ekki aö segja neinum, aö islensk verkmenning þróaðist ákaflega hægt, og stóö reyndar nærri þvi I staö, öldum saman. Þessvegna eruhundraö ára gamlir hlutir oft ágætir full- trúar fyrir tækni og verkmenn- ingu íslendinga miklu lengra aftur i ti'mann. — Þú nefndir áöan skýrslu sem þú heföir nýlega lagt fram á fundi á Akureyri. Þaö væri fróölegt aö heyra nánar um efni hennar. — Jú, hún fjallar i fyrsta lagi um þau söfn sem búiö er aö koma upp i Norölendinga- fjórðungieneinnig um þau söfn, sem fyrirhugaö er aö koma á fót i fjórðungnum. — Hver eru þau? — 1 ráöi er aö koma upp sjó- minja- og munasafni á Skaga- strönd,en þaöerákaflega smátt i sniöum, enn sem komiö er, og ég vil ekki spá neinu um framtiö þess. Veriö er aö undirbúa sjó- minjasafn á Siglufiröi og einnig er fyrirhugaðað koma upp sliku safni á Raufarhöfn. Skýrslan sem ég nefndi áðan fjallar ekki aöeins um almennt ástand þeirra safna sem þegar eru fyrir hendi, heldur leggur hún einnig fram tillögur til úr- bóta. Þar er m.a. lagt til aö stefnt skuli aö þvi aö koma á fót • svokölluöum fjóröungsminja- söfnum eða sérsöfnum, sem skipti meö sér verkum. Þaö gæti m.a. gerst þannig aö eitt safniö sérhæfi sig á sviði landbúnaöar, annaö sjávarút- vegs, hiö þriöja helgi sig heimilisiðnaði, fjóröa verslun og svo framvegis. Eins og allir vita þá hefur reyndin oröiö súaö söfnin hafa verið alhliöa, — þau hafa geymt og sýnt muni frá flestum sviöum mannlegra at- hafna hvert á sinu svæöi. En timinn liöur og söfnin stækka ár frá ári. Þess vegna held ég, aö óhjákvæmilegt veröi aö sérhæfa söfnin i framtiðinni. Enn sem komiö er ná þau yfirleitt ekki lengra en fram aö vélaöld en viö getum rétt imyndaö okkur hvernig þetta muni veröa, þeg- ar farið veröur að marki að safna munum og tækjum frá allra siöustu áratugum. Þaö er ekki neitt smáræöis húsrými sem þarffyrir hestasláttuvél og rakstrarvél, dráttarvél, plóg og herfi og fjöliriörg önnur tæki vélaaldar,sem of langt yröi upp aö telja hér Þaö yröi bæöi þungt i vöfum og gifurlega dýrt ef öll minjasöfn i sveitum færu aö safna þessum tækjum. Og svo yröu sömu vélarnar og tækin i öllum söfnunum, af þvi aö alls staðar haföi veriö kappkostaö aö koma upp sams konar safni. — Hér er ekki veriö að leggja þaö til að söfnunum veröi fækkaðfrá þvisem nú er, heldur bent á að draga megi út ákveöna þætti sem eru sérein- kennandi fyrir viökomandi svæöi, — eins og til dæmis hugsanlegt sjóminjasafn á Siglufirði. Hitt er svo aftur önn- ur hliö á málinu, hvar þessum fyrirhuguöu sérsöfnum veröur valinn staöur. Þar koma mörg sjónarmiö til álita, þaö getur veriö viökvæmt mál og ég vil ekki segja neitt um þaö á þessu stigi enda þurfa safnastjórnirn- ar og fleiri aðilar aö ræöa þau mál ýtarlega áöur en ákvaröan- ir veröa teknar. Nú er áformað aö reyna aö ná saman öllum safnanefndum og safnastjórn- um á næsta sumri til þess aö fjalla um þessi mál. En ég held að öllum hljóti að vera ljóst, aö þegar safnaö er tækjum og vél- um okkar tuttugustu aldar, þá gerir þaö ákveönar kröfur til þeirra safna sem þaö takast á hendur meðal annars aö þvi er varðar húsakost. Þar er mikið verk að vinna — Samkvæmt því sem hér hefur komið fram viröist mjög mikið starf vera framundan I safnamálum Norölendinga- fjórðungs. Eöa er ekki svo? — Jú, þar er mikiö verk aö vinna. Þaö er þvi mjög gleöilegt aö menningarmálanefnd fjórðungsins skuli hafa gert ályktun um nauösyn þess aö ráöa einn starfsmann til þess aö koma á samtökum meöal minjasafna á Noröurlandi. Ég tel aö sá maöur eigi aö vera fastur starfsmaöur samtak- anna, llkt og nú er á Austur- landi. Starf hans þarf aö beinast aö húsafriöunarmálum og minjaskráningu og hann á aö vera söfnunum til aöstoðar og ráöuney tis. Nauösynlegt er lika aö ræöa um hugsanlega verkaskiptingu safnanna á Noröurlandi og menn þurfa enn fremuraökom- ast aö niðurstööu um hvar sér- söfnunum skuli valinn staður, þegar og ef þau veröa sett á stofn. —vs Austur-þýzki lúxuxbillmn EFTIRSÓTTASTA BIFREIÐIN AUSTAN TJALDS Sýningarbíll á staðnum TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ Vonar/andi við Sogaveg — Símar 8-45-10 & 8-45-11 Margra mánaða afgreiðslufrestur til fjöimargra ianda Sterkasti fólksbillinn á markaðinum Hann er byggður á grind, með 65 hestafla tvígengisvé/ (gam/a Saab-vé/in) Gormar á öllum hjólum og billinn þvi dúnmjúkur. Eiginleikar bilsins i lausamöl og á holóttum vegi eru frábærir. Sedan og Station, sem er mjög rúmgóður og bjartur. Dragið ekki að panta bilinn. Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita allar upplýsingar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.