Tíminn - 15.10.1978, Side 35
Sunnudagur 15. október 1978.
35
'
Frá afhjúpun minnisvaröa um Þórhall Daníelsson, kaupmann og konu hans Ingibjörgu Friögeirsdóttur
á Höfn i Hornafiröi.
Minning Þórhalls
Daníelssonar
og Ingibjargar
Friðgeirsdóttur
llinn 25. sept. 1920 flutti Hjalti
Jónsson, Hoffelli. siöar hóndi i
Hólum, Hornafiröi. eftirfarandi
kvæöi i samkvæmi, sem Austur-
Skaftfeliingar héldu Þórhalli
Danielssvni. kaupmanni, og konu
hans. Ingibjörgu Friögeirsdóttur.
Bændur sýslunnar höföu stofnað
kaupfélag og haföi Þórhaliur
Danielsson selt þeim þetta ár
allar eignir sinar viökomandi
versluninni á Höfn. 1 þessu hófi
voru hjónunum gefnar fagrar
gjafir, áletraöar frá sýslubúum.
Hans gjöf var gullúr, en hennar
gullhálsmen. Þessi hjón voru
óvenjulega vinamörg. Kvæöi
Hjalta fer hér á eftir:
Heiðruðu hjón!
að heimili ykkar
góöfrægu fyrir
gestrisni og rausn,
hvatir þær nú
oss hafa dregið,
sem velvild kallast
og vinarhugur.
Vér komum ei ykkar
að kveðja i dag.
Erindi vort er
ykkur að þakka,
allt það, sem
þið unnið hafið
sýslu vorri
til sóma og þrifa.
Það er svo margt
sem þakka ber,
fleira en sagt verði
i fáum orðum,
En nefna viljum þó fyrst og
fremst
húsbóndans dugnað
i héraðsins þarfir.
Hjá verslunum ýmsum
á voru landi,
þótt hefir einatt
þröngt I búi
á undanförnum
erfiðum timum,
sem virtust þó vel
að vigi standa.
En þrátt fyrir allskonar
örðugleika,
samgönguleysi
á sjó og landi,
þrátt fyrir dýrtið
og þrátt fyrir strið
verslun Þórhalls
ei vöru skorti.
Þá ber ei siöur
þess að minnast
er hann nú
á ári þessu
fúslega lagöi
af f jrálsum vilja
blómlega verslun
i bænda höndur.
Meðal annars
mun það hans nafni
lengi hér
á lofti halda.
Eftirdæmið
er öðrum gefið.
Hver mun næst
i hans fótspor feta?
Fáir kaupmenn
fyrr á timum
alþýðu vinsældir
unnið gátu
svo sem þið hafið
sómahjón,
sýslunga flestra
samhug unnið.
Vér óskum þess
vor afskekkta byggð
enn megi lengi
ykkar njóta.
Þið hafið tekið tryggð viö hana
sem vér vitum
að seint mun fyrnast
Eins og áöur hefur veriö skýrt
frá hér í blaöinu, var afhjúpaður
á Höfn i Hornafirði 17. f.m.
minnisvaröi um Þórhall Daniels-
son kaupmann og útgeröarmann
og konu hans Ingibjörgu
Friögeirsdóttur. Afhjúpunin fór
fram viö hátlðlega athöfn aö við-
stöddu miklu fjölmenni, en hér
var jafnframt um aö ræöa
ættarmót, sem mun verða mörg-
unt minnisstætt. Þau Þórhallur
og Ingibjörg eiga oröið fjölmarga
afkomendur, búsetta I öílum
landsfjóröungum, og sáust marg-
ir þeirra þarna í fyrsta sinn.
Undirbúningur aö sliku ættarmóti
krefst mikillar vinnu og þekking-
ar á feröamálum, en mest hviidi
þaö starf á Birni Guðmundssyni
forstjóra, kunnum feröagarpi og
dóttursyni þeirra Þórhalls og
Ingibjargar. Þeir Hornfiröingar,
sem hlut áttu aö máli, stóöu sig
meö mikilli prýöi.
Meðal þeirra, sem mikinn þátt
átti i aö minnisvarðinn var reist-
ur er Jónina Brunnan, dóttir eins
fyrsta útgerðarmannsins I Höfn,
Jóns Brunnan og gift einum
mesta athafnamanninum þar,
Arsæli Guðjónssyni, útgerðar-
manni. Flutti hún minningar-
drápu um Þórhall og Ingibjörgu.
Arið 1922 flutti kunningi
Þórhalls honum þessa ljóða-
kveðju.
Sumargjöf 1922
Komdu sæll og sjáðu blaðið,
sem ég er að krota um þig,
tiðum út á tæpa vaðið,
tekur andagiftin mig.
Gæfudisin góða og fina,
greiði veg þinn nú sem fyr,
merku verkin munu sýna,
mönnum það sem komið er.
Þetta áttir þú margskilið,
það hefur litið brugðist nú,
fyrir að leggja út lukkuspilið,
með loft salinn i Miklu-ey.
Að öllum viltu af alúð hlúa,
eins og vandi þinn til er,
úti Mikley óska að búa,
æðstu hafsins goðarnir.
Þá var sjálfsagt þar að reisa,
þetta háa bustatröll,
vel af hendi verkið leysa,
vanda eins og goðahöll.
Þar býr Jón sem þekkti ég forð-
um,
það er sonur Benjamins,
sá hefur látið skriða úr skorðum
skeið á leiðum öldu svins.
Til aö lifga lukku og framann,
léstu á páskum drottins þjón
með ræðu helgri reira saman
ráöskonuna og Jón i hjón.
Þú hefur fræga fiski Boga,
frændur hrausta reynda hér,
þorskinn ginna, teymaitoga,
taka af lifi og selja þér.
Þó er á Heppu höfuðbólið,
háreist bursta tröllin þrenn,
hver er i kreppu um húsaskjólið,
hausaöa fyrir þorska og menn.
Þar er nóg af vistarverum,
vel frá gengiö öllu þó
að læðast þar að luktum dyrum
lamar æskumannsins ró.
Enginn má þar ofvært sofa,
sem ætlar sér að stunda sjó,
hann hefur lengi dregið dofa
drengjum frá og bannaö ró.
Allur þessi aðbúnaður,
aleigu þina hefur gleypt,
það hefði enginn þorað maður,
þitt að stiga i sporið sleipt.
Að gjöra Höfn að höfuðbóli,
hugboð var ei mannfjöldans,
þú verður aö jöfnu á veldisstóli
að vera skjöldur sjós og lands.
Arið sem aö yfir stendur,
öllu góöu spáir þér,
nú hafa margar hraustar hendur
hjálpaö til sem maklegt er.
Nú hefur verið fjör að fiska,
fólkið hirðir launin sin,
matur ör á marga diska,
er mánga út Spánar-brennivin.
Gæfan ekki frá þer fælist,
framtakssami vinur minn,
aldrei inni brennd hún brælist,
bjartsýn fyrir hugtökin.
Búinn er ég að botna þennan
brag sem að ég sendi þér,
latur niöur legg þvi pennann,
laus við þaö sem komið er.
Staða skólastjóra
Verslunarskóla
íslands
Staða SKÓLASTJÓRA VERSLUNAR-
SKÓLA ÍSLANDS er laus til umsóknar.
Ráðningartími er frá og með 1. iúni 1979.
Ráðgert er, að væntanlegur skólastjóri
kynni sér kennslu i viðskiptafræðum
erlendis fyrir næsta skólaár, er hefst 1.
september 1979. Þá er einnig æskilegt, að
umsækjandi geti annast kennslu i við-
skiptagreinum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Félags menntaskólakennara.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun, og fyrri störf, ásamt greinar-
gerð um ritsmiðar og rannsóknir, skulu
sendar Skólanefnd Verslunarskóla íslands
Laufásvegi 36, Reykjavik fyrir 1.
desember n.k.
Skólanefnd Verslunarskóla tslands.
Laxveiðimenn
Stjórn veiðifélags Blöndu og Svartár hefur
ákveðið að leita eftir tilboðum i veiðirétt-
indi fyrir næsta veiðitimabil í ám á vatna-
svæði Blöndu sem er Blanda, Svartá,
Haugakvisl, Galtará, Seiðisá, Auðólfs-
staðaá og Svartá fyrir framan Hvamm
sem er silungasvæði.
Bjóða má i einu lagi i allt vatnasvæðið eða
i hverjaáfyrir sigTilboð skulu hafa borist
fyrir 1. des. til formanns veiðifélagsins
Guðmundar Tryggvasonar Húnaveri, A-
Hún. Simi 95-7110.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Stjórnin.
Orðsending
til fyrrverandi starfsmanna
Kaupféiags Rangæinga
Þar sem við núverandi starfsmenn Kaup-
félags Rangæinga ætlum að halda árs-
hátið okkar að Hvoli laugardaginn 21.
október, viijum við endilega gefa ykkur
kost á að vera með.
Þeim,sem áhuga hafa er bent á að panta
miða i sima 99-5296 mánudags- og þriðju-
dagskvöld (16. og 17. oktJHittumst öll og
höldum gamla góða hópinn.
Nefndirnar
Munið
að athuga
rafgeyminn
áður en
kólnar.
'&H
RAFGEYMAR
Þekkt merki
Fjölbreytt úrval 6 og 12
volta fyrir bíla/ bæði gamla
og nýja, dráttarvélar og
vinnuvélar, báta, skip o.fl.
Ennfremur:
Kafgeymasambönd — Startkaplar'
og pólskór. Einnig: Kemiskt
hreinsað rafgeymavatn til áfylling-
ar á rafgeyma.
ARMULA 7 - SIMI 84450