Fréttablaðið - 29.08.2006, Page 10
29. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
AUSTURRÍKI, AP Austurríska stúlkan
sem dvaldi í meira en átta ár í
gluggalausu kjallaraherbergi í
húsi manns sem rændi henni tíu
ára gamalli segir í opnu bréfi sem
lesið var upp á blaðamannafundi í
Vínarborg í gær að hún hafi ekki
saknað neins og fangari hennar
hafi verið „hluti af lífi hennar“.
Sálfræðingurinn Max Friedrich
las orðsendinguna frá hinni átján
ára gömlu Natöschu Kampusch.
Hún segist gera sér fulla grein
fyrir þeirri miklu athygli sem mál
hennar vekti og mörgum léki for-
vitni á að vita hvernig hún hefði
það eftir að hún flýði úr prísund-
inni síðastliðinn miðvikudag. En
hún bað fréttamenn að láta sig
vinsamlegast í friði.
„Allir vilja spyrja mig nær-
göngulla spurninga, en það kemur
engum við,“ segir hún. „Kannski
mun ég einn góðan veðurdag segja
sálfræðingi sögu mína, eða ein-
hverjum öðrum þegar mér finnst
tími til þess kominn. Eða kannski
aldrei. Einkamál mín tilheyra mér
einni.“
Lögregla greindi frá því í gær
að yfirheyrslur væru aðeins rétt
hafnar yfir Kampusch um brott-
nám hennar í mars 1998 og hvað á
daga hennar hefði drifið allan
þann tíma sem hún var lokuð inni
af fangara sínum, Wolfgang
Priklopil. Hann fyrirfór sér með
því að kasta sér fyrir lest sama
dag og Kampusch stakk af. Ger-
hard Lang, yfirmaður í austur-
rísku rannsóknarlögreglunni, tjáði
blaðamönnum að „allar vísbend-
ingar“ í málinu væru rannsakaðar.
Hvarf Kampusch var eitt umtal-
aðasta óleysta glæpamál síðari
tíma í Austurríki.
Af bréfi Kampusch að dæma
átti Priklopil sér enga vitorðs-
menn.
Hún neitar því að hafa kallað
Priklopil „drottnara“ sinn. Hann
hafi beðið sig að gera það en hún
hafi ekki hlýtt því. „Hann var ekki
drottnari minn. Ég var alveg jafn
sterk,“ skrifar hún.
Kampusch notaði þýskan orða-
leik til að lýsa því að Priklopil hafi
bæði „gert allt fyrir sig“ en líka
níðst á sér. „En við vissum bæði að
hann hafði valið sér ranga mann-
eskju til að standa í stríði við,“
bætti hún við.
Hún sagði enn fremur að hún
fyndi til með móður Priklopils og
sagðist ætla sér að hringja í for-
eldra sína, sem aðeins hafa fengið
að sjá hana í nokkrar mínútur frá
því hún fannst. Friedrich biðlaði
til fréttamanna að sýna biðlund;
Kampusch hefði orðið fyrir miklu
sálfræðilegu áfalli og umsátur
fjölmiðla um hana gerði hana að
fórnarlambi enn á ný.
Hún segir sér líða vel þar sem
hún sé núna. „Margir eru að ann-
ast mig núna. Vinsamlegast gefið
mér tíma þar til ég treysti mér til
að segja sögu mína sjálf.“
audunn@frettabladid.is
Biðst griða
undan athygli
Natascha Kampusch skrifaði opið bréf til fjölmiðla
sem lesið var upp í gær. Hún biðst griða undan fjöl-
miðlafárinu sem mál hennar hefur vakið.
LAS UPP OPIÐ BRÉF Sálfræðingurinn Max Friedrich, fremst t.h., ásamt Gerhard Lang frá
austurrísku lögreglunni (í miðju) og saksóknaranum Hans-Peter Kronawetter á blaða-
mannafundi í Vín í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BORGARMÁL Milli þrjátíu og fjörutíu
manns „tóku upp hanskann fyrir
Kjalarnes“ á hreinsunardegi sem
haldinn var um helgina. Hreinsunar-
dagurinn er liður í verkefni Reykja-
víkur að virkja almenning og fyrir-
tæki í fegrun borgarinnar.
„Þetta gekk prýðilega vel og var
vel sótt,“ segir Andrés Svavarsson,
rekstrarstjóri hverfastöðvarinnar á
Kjalarnesi. Unnið var hörðum hönd-
um í um þrjár klukkustundir við að
þökuleggja, hreinsa beð, kant-
skera og tína laust rusl. Aðspurð-
ur segir Andrés að verkstjórnin
hafi gengið vel og að borgarstjór-
inn og borgarfulltrúar sem voru
viðstaddir hafi látið prýðilega að
stjórn. - at
Hreinsunarátak á Kjalarnesi:
Vilhjálmur borgarstjóri
lét vel að stjórn
TÓK UPP HANSKANN Borgarstjórinn lét sitt
ekki eftir liggja á hreinsunardeginum.
Auglýsing um framboðsfrest vegna
stofnfundar sameinaðs félags Félags
járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags
Íslands
Kjörstjórn félaganna auglýsir eftir framboðslistum til stjórnar,
varastjórnar og fulltrúaráðs sem kjósa skal um á stofnfundi
sameinaðs félags 14. október 2006.
Á lista til stjórnar og varastjórnar skulu formaður og 4 meðstjórnendur
koma frá Vélstjórafélagi Íslands og varaformaður ásamt 3 meðstjórnen-
dum frá Félagi járniðnaðarmanna. Í varastjórn skulu koma fjórir fulltrúar
frá hvoru félagi.
Á listanum skal að auki gera tillögu um 18 menn í fulltrúaráð félagsins,
samanber 2. mgr. 17. gr. laganna og skulu 9 fulltrúar koma frá hvoru
félagi fyrir sig. Fulltrúaráðið endurspegli, eftir því sem kostur er, breidd
félagsins með hliðsjón af starfsgreinum, hópum og landshlutum.
Framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar félaganna fyrir kl. 16:00
föstudaginn 29. september 2006 ásamt meðmælum 20 fullgildra
félagsmanna.
Heimilisfang kjörstjórnar er á skrifstofu Félags járniðnaðarmanna,
Borgartúni 30, 105 Reykjavík.
Fh. kjörstjórnar
Félag járniðnaðarmanna, Vélstjórafélag Íslands og Alþýðusamband Íslands