Fréttablaðið - 29.08.2006, Qupperneq 16
29. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Það er allt fínt að frétta af mér og úr bæjar-
lífinu hér fyrir austan,“ segir Smári Geirsson,
kennari við Verkmenntaskóla Austurlands.
„Ég er nýkominn úr vikuferð frá Grænlandi
þar sem ég var ásamt Ragnheiði Ólafsdóttur
frá Landsvirkjun. Í heimsókninni kynntum
við gang mála í virkjanaframkvæmdum hér
fyrir austan og Ragnheiður sagði frá verkefni
sem Alcoa og Landsvirkjun hafa staðið að í
tengslum við virkjanaframkvæmdirnar.“
Smári segir að í heimsókninni hafi þau
Ragnheiður hitt fulltrúa grænlensku land-
stjórnarinnar og embættismenn í Nuuk. „Þá
fórum við á ráðstefnu til Manisoq þar sem
við hittum fulltrúa stjórnvalda, grænlenskra
fyrirtækja og verkalýðsfélaga. Heimsóknin til
Grænlands var mikil upplifun enda er þetta í
fyrsta skipti sem ég kem þangað.“
Smári segir Grænlendinga huga að frekari
atvinnuuppbyggingu í heimalandi sínu og
horfi til þess sem hefur verið að gerast í
virkjanamálum hér á landi. „Þá binda þeir
vonir við að hægt verði að vinna efni úr jörðu
og má þar nefna steintegundina olivin. Rann-
sóknir á námuvinnslu hafa einnig sýnt að
góður möguleiki er á að hægt verði að vinna
demanta á Grænlandi í framtíðinni.“
Smári er nú byrjaður að kenna og haustið
leggst vel í hann. „Það er alltaf ákveðin til-
hlökkun að hitta samstarfsfólk og nemendur
á haustin,“ segir Smári, sem hefur verið
kennari við Verkmenntaskóla Austurlands í
hartnær þrjátíu ár.
„Ég er ekki einn af þeim sem stunda hrein-
dýraveiðar og geri heldur ekki ráð fyrir að
leggjast í ber þó hér sé allt krökkt af berjum.“
Smári segir þetta þó ekki koma að sök þar
sem hann njóti góðs af hvorutveggja.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SMÁRI GEIRSSON KENNARI OG BÆJARFULLTRÚI Í FJARÐABYGGÐ
Ógleymanleg ferð til Grænlands
„Mér finnst það
vera fyrir neðan
allar hellur
og eiga að
vera langt fyrir
neðan virðingu
íslenskra stjórn-
valda að vísa
þessum konum
úr landi,“ segir
Anna Pála
Sverrisdóttir,
laganemi og
blaðamaður á
Morgunblaðinu.
„Ég er laganemi
þannig að ég
veit mikilvægi þess að hafa reglur og
fylgja þeim eftir þrátt fyrir að þær geti
stundum komið sér illa fyrir einstaka
aðila. Í þessu tilviki finnst mér þó alls
ekki réttlætanlegt að þessi breyting á
reglum sem Vinnumálastofnun fer eftir
skuli hafa þau áhrif að konum sem
reyna að brjótast út úr ofbeldissam-
böndum skuli hent úr landi eftir það.
Þessar konur hafa verið hérna nógu
lengi til að vera komnar inn í sam-
félagið og eru í vinnu og vinnuveitend-
urnir eru ánægðir, þannig að það er
engin ástæða til að leyfa þeim ekki að
vera eftir. Með þessu er verið að veita
ofbeldismönnunum þau skilaboð að
þeir geti beitt konurnar áfram ofbeldi
og hafi í raun mun sterkara vopn í
höndunum af því að landvistarleyfi
kvennanna eru í höndum þeirra.
Mér finnst félagsmálaráðherra ekki
vera nógu skýr um að þetta sé eitt-
hvað leyfist aldrei.“
SJÓNARHÓLL
ERLENDUM KONUM VÍSAÐ ÚR LANDI EFTIR HEIMILISOFBELDI
ANNA PÁLA SVERRIS-
DÓTTIR LAGANEMI
Ný heimasíða Regnbogabarna,
regnbogaborn.is, var opnuð með
pompi og prakt í Kringubíói um
helgina. Að sögn Jóns Páls Hall-
grímssonar, ráðgjafa Regnboga-
barna, var bíósalurinn fullur af
börnum sem tóku öll þátt í niður-
talningu að formlegri opnun síðunn-
ar.
„Þetta gekk ljómandi vel og full-
ur salur af krökkum,“ segir Jón
Páll. Stefán Karl Stefánsson, leikari
og stofnandi Regnbogabarna, opn-
aði síðuna og útskýrði fyrir börnun-
um hvernig þau gætu notað hana.
„Þetta er vefsíða fyrir börnin
þar sem þau geta fengið upplýsing-
ar um einelti,“ segir Jón Páll og
bætir við að meðal efnis á síðunni
séu stuttar teiknimyndasögur sem
tengjast einelti. Teiknimyndasög-
unum fylgi spurningar um einelti
þar sem börnin þurfi að meta hvað
sé rétt og hvað rangt.
Þegar síðan var farin í loftið
fengu börnin að sjá bíómyndina
Maurahrellinn sem þykir bæði
skemmtileg og góð til fræðslu um
einelti.
Börnin töldu niður saman
Erlendis er sáttamiðlun
viðurkennd leið til að greiða
úr deilumálum sem annars
hefðu farið fyrir dómstóla.
Sátt, félag um sáttamiðlun,
heldur opinn fund um sátta-
miðlun á morgun og munu
danskir sérfræðingar í
sáttamiðlun greina frá góðri
reynslu Dana af aðferðinni.
Sáttamiðlun, sem kallast á ensku
mediation og ýmist mekling, rett-
smekling og mægling á Norður-
landamálunum, gerir deiluaðilum
kleift að útkljá deilumál með minni
kostnaði en dómstólaleiðin býður
upp á og á styttri tíma, en sátta-
miðlun tekur að meðaltali um fjóra
klukkutíma. Auk þess léttir sátta-
miðlunin töluvert á dómstólunum.
Þannig má segja að allir græði á
sáttamiðlun.
„Í Bandaríkjunum, Englandi og
Norðurlöndunum hefur sáttamiðl-
un verið notuð með góðum árangri
og um 65 til 75 prósent mála sem
tekin eru fyrir í sáttamiðlun fá
virkilega farsællega lausn,“ segir
Pia Deleuran, danskur lögfræðing-
ur sem starfar sem sáttamiðlari í
dómstóli Hróarskeldu og sér um
diplómanámskeið um sáttamiðlun
á vegum danska lögmannafélags-
ins.
„Fyrir dómstólum getur maður
bara greint frá lagalegu hliðinni á
málinu. Það sem virkilega skiptir
máli fyrir deiluaðilana kemur þess
vegna oft ekki fram, til dæmis for-
saga málsins og tilfinningahliðin.
En í sáttamiðlun er hægt að draga
allt inn í umræðuna sem maður
heldur að sé mikilvægt í deilunni
og það er mikill léttir fyrir fólk að
það séu engin takmörk sett um
það,“ segir Pia. „Fólkið sjálft talar
fyrir sig og kemst að niðurstöðu í
sameiningu, með hjálp frá hlut-
lausum sáttamiðlara.“
Tilraunaverkefni um sáttamiðl-
un var sett á laggirnar í dönskum
dómstólum árið 2003 og starfar
enn vegna góðs árangurs. Nú nota
fimm almennir dómstólar í Dan-
mörku sáttamiðlun en þar sjá
menntaðir lögmenn og dómarar
um sáttamiðlunina. Flest málanna
varða kaup og sölu, skilnaði eða
forræðisdeilur, auk málefni fyrir-
tækja.
„Í einu máli voru kona og fyrr-
verandi eiginmaður hennar að
deila um forræði barns síns. Konan
vildi ekki að faðirinn sæi barnið
því hann var „tívolípabbi“ og axl-
aði enga ábyrgð þegar þess þurfti.
En í sáttamiðlunarferlinu töluðu
þau um vandamálið og fundu lausn
þannig að barnið gat verið bæði
hjá móðurinni og föðurnum. Það
var mjög gott fyrir þetta barn sem
annars hefði kannski ekki séð
föður sinn,“ segir Pia.
Ingibjörg Bjarnardóttir, hér-
aðsdómslögmaður og formaður
Sáttar, segir að sáttamiðlun sé í
startholunum á Íslandi, en félagið
vonast til að sálfræðingar, félags-
fræðingar og lögfræðingar starfi
við sáttamiðlun við dómstóla á
Íslandi í framtíðinni. Félagið
stendur fyrir morgunverðarfundi
um sáttamiðlun á morgun á Grand
Hótel ásamt Viðskiptaráði Íslands,
Lögmannafélaginu og Dómara-
félaginu. rosag@frettabladid.is
Allir sigurvegarar
með sáttamiðlun
PIA DELEURAN OG INGIBJÖRG BJARNARDÓTTIR „Það er mun betra fyrir viðskiptavinina að komast að samkomulagi með sáttamiðlun en að
fara í dómsmál sem tekur kannski þrjú, fjögur ár og kostar mikla peninga, og fá kannski mun verri niðurstöðu,“ segir Pia Deleuran.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skortur á eftirliti
„Eftirlit átti að vera með því
hversu margir erlendir
starfsmenn kæmu til
landsins en enginn veit
hversu margir útlendingarn-
ir eru.“
Þjóðskrá hefur ekki undan að afgreiða
umsóknir um kennitölur fyrir erlenda
starfsmenn. Vilhjálmur Birgisson,
formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir
líklegt að óskráðir erlendir starfsmenn
hérlendis skipti hundruðum.
Fréttablaðið, 28. ágúst.
Ein meginstoðin
„Umhverfismatsskýrslan
var ein meginstoðin sem við
þingmenn studdumst við
þegar við tókum afstöðu til
málsins og í þeirri skýrslu
segir að tæknimenn telji að
berggrunnurinn undir
stæðinu sé traustur.“
Össur Skarphéðinsson segir grafalvarlegt
mál að Valgerður Sverrisdóttir hafi ein
þingmanna vitað að ástæða var til að
véfengja niðurstöðuna þar sem skýrsla
Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings var
ekki kynnt fyrir þingmönnum. Fréttablað-
ið, 28. ágúst.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Nú fylgir USS!
kortið með öllum
live! símum
USS!
Símatilboð
Fullt verð 16.900 kr.
USS! kortið fylgir með
Samsung X660v
Fyrir neðan allar hellur
STEFÁN KARL Hefur verið ötull
baráttumaður gegn einelti.