Fréttablaðið - 29.08.2006, Síða 53
ÞRIÐJUDAGUR 29. ágúst 2006 29
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.899 -0,59% Fjöldi viðskipta: 407
Velta: 3.175 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,10 -0,76% ... Alfesca 4,69 -1,06% ... Atlantic
Petroleum 580,00 +2,66% ... Atorka 6,10 -1,61% ... Avion 33,80 +0,30% ... Bakkavör 54,00
-0,37% ... Dagsbrún 5,17 -1,15% ... FL Group 17,90 -1,11% ... Glitnir 19,50 -0,51% ... KB banki
800,00 -0,62% ... Landsbankinn 24,30 -0,41% ... Marel 76,00 -1,30% ... Mosaic Fashions
17,20 -0,58% ... Straumur-Burðarás 16,10 -0,62% ... Össur 126,00 -1,18%
MESTA HÆKKUN
Atlantic Petroleum +2,66%
Avion +0,30%
MESTA LÆKKUN
Atorka -1,61%
Marel -1,30%
Össur -1,18%
Umsjón: nánar á visir.is
Hampiðjan tapaði rúmum 134
milljónum króna á fyrri árshelm-
ingi, samanborið við 188 milljóna
króna hagnað á sama tímabili í
fyrra. Rekstrartekjur Hampiðj-
unnar námu tæplega 2,1 milljarði
króna og drógust saman um tæp
tólf prósent frá fyrra ári.
Í tilkynningu frá Hampiðjunni
segir að sölusamdráttur dóttur-
fyrirtækja í Danmörku, Kanada
og á Írlandi, hafi orðið til þess að
sala samstæðunnar dróst saman
frá fyrra ári. Þá kemur fram að
gengislækkun krónunnar á tíma-
bilinu hafi leitt af sér gengistap af
erlendum lánum.
Hampiðjan er eina skráða
félagið á iSEC-markaði Kauphall-
arinnar. - jsk
Hampiðjan tapar
134 milljónum
Sparisjóður Svarfdæla jók hagn-
að sinn á fyrri hluta ársins um
175 prósent miðað við sama tíma
2005. Hagnaður sparisjóðsins
var 214 milljónir króna og var
arðsemi eigin fjár 39 prósent.
Hreinar vaxtatekjur jukust
um 57 prósent á milli ára en
aðrar rekstrartekjur, sem voru
að stærstum hluta af hluta-
bréfum, nær tvöfölduðust.
Sparisjóðurinn er meðal hlut-
hafa í Exista og skilaði sá eign-
arhlutur 161 milljón króna í
kassann.
Eignir sparisjóðsins voru
tæpir 3,8 milljarðar hinn 30. júní
og nam eigið fé 1.236 milljónum
króna. Eiginfjárhlutfall (CAD)
var 21,8 prósent í lok júní. - eþa
Svarfdælingar auka
hagnað milli ára
HAMPIÐJUKAÐALL Samdráttur dótturfyrir-
tækja á erlendum mörkuðum hefur dregið
úr sölu Hampiðjunnar miðað við síðasta
ár, auk þess sem gengissveiflur hafa leitt til
taps af erlendum lánum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bókfært eigið fé Sam-
sons eignarhaldsfé-
lags - sem er að lang-
stærstum hluta í eigu
Björgólfsfeðga - var
vanmetið um 29 millj-
arða króna hinn 30.
júní miðað við að yfir
fjörutíu prósenta
eignarhlutur félags-
ins í Landsbankanum
væri færður til
markaðsvirðis.
Eignarhalds-
félagið, sem er stærsti hluthafinn
í LÍ, bókfærði eigið fé á 26,5 millj-
arða króna um mitt þetta ár en
með því að færa bréf í bankanum
til markaðsvirðis færi það í tæpa
55,7 milljarða króna. Hlutabréf í
LÍ hafa hækkað um fimmtung á
seinni hluta ársins þannig að dulið
eigið fé er enn meira.
Samson hagnaðist
um tæpa 12,2 millj-
arða króna á fyrri
hluta ársins saman-
borið við um 3,8
milljarða á sama
tíma í fyrra. Arðsemi
eigin fjár var 170
prósent á ársgrund-
velli.
Rekstur Samson-
ar er ekki einungis
bundinn við fjárfest-
ingu í LÍ því félagið
er meirihlutaeigandi í fasteigna-
félaginu Samson Properties sem
sérhæfir sig í rekstri og þróun
fasteigna og fasteignaverkefna í
Evrópu. Fram til 29. júní hafði
tilgangur félagsins takmarkast
við eignarhald í LÍ.
Heildareignir félagsins voru
77,8 milljarðar um mitt ár. - eþa
Eigið fé vanmetið
um 30 milljarða
BJÖRGÓLFUR THOR
BJÖRGÓLFSSON
LÆGRI
VEXTIR
LÆGRA
LÁNTÖKUGJALD
Verðbólga verður kominn í um
fimm prósent strax á öðrum fjórð-
ungi næsta árs, segir í nýútkomnu
áliti Greiningardeildar Lands-
bankans.
Greiningardeildin telur afar
litla hættu á að spá Seðlabankans
um átta til tíu prósenta verðbólgu
næstu tólf mánuði rætist. Þá er
stýrivaxtahækkunarferli Seðla-
bankans talið senn á enda og því
spáð að stýrivextir verði komnir
í 12,5 prósent á öðrum ársfjórð-
ungi.
Greiningardeild Landsbankans
telur enn fremur að ýmsar vís-
bendingar séu uppi um að þenslan
sem verið hafi í efnahagslífinu sé
í rénun; væntingavísitala Gallup
sé lægri en áður, auk þess sem
nýskráningum bifreiða hafi fækk-
að. Skýrasta vísbendingin sé þó
minnkandi velta á fasteignamark-
aði.
Sérfræðingar Landsbankans
spá því að gengi krónunnar styrk-
ist jafnvel árið 2007. Vænta megi
enn harðari peningastefnu, auk
þess sem skýr merki séu fram
komin um endurvakinn áhuga
erlendra fjárfesta á íslenskum
fjármálamarkaði. Þá sé mik-
ilvægt í þessu samhengi
að íslensku bank-
arnir bankarn-
ir tryggi
skammtímafjármögnun sína, líkt
og Glitnir og Landsbankinn hafi
nú þegar gert. Greiningardeildin
telur að innlausn svokallaðra
jöklabréfa hafi óveru-
leg áhrif á gengi
krónunnar. - jsk
Spá hraðari rýrnun verðbólgu
Sérfræðingar Landsbankans segja þensluna í rénun. Spáð er fimm prósenta
verðbólgu og styrkingu krónunnar.