Fréttablaðið - 29.08.2006, Side 61
ÞRIÐJUDAGUR 29. ágúst 2006
Söngvarar eru: Bogomil Font, Páll Óskar, Bjarni Arason og Raggi Bjarna.
í Súlnasal á Hótel Sögu 2. september
Stórdansleikur
Sérstakur
heiðursgestur:
RAGGI BJARNA
Hinn árlegi stórdansleikur Milljónamæringanna verður í Súlnasal á Hótel Sögu laugardaginn 2. september.
Húsið opnar kl. 22. Miðaverð 2.000 kr. Miðasala í Súlnasal frá kl. 13 samdægurs. Upplýsingar í síma 525 9950.
MILLJÓNAMÆRINGANNA
Þjóðleikhúsið tjaldar öllu til í
vetur en tíu verk verða frumsýnd
á vegum þess, þar af þrjú ný
íslensk verk. Fyrsta frumsýning
haustsins verður í lok september
þegar leikgerð Illuga Jökulssonar
á hinum geysivinsælu barnabók-
um Guðrúnar Helgadóttur, Sitji
Guðs englar, Saman í hring og
Sænginni yfir minni, fer á svið.
Leikstjóri er Sigurður Sigurjóns-
son en Þórarinn Eldjárn semur
söngtexta.
Í febrúar verður frumsýndur
nýr söngleikur á Stóra sviðinu
eftir Hugleik Dagsson, sem hefur
vakið athygli bæði innanlands
sem utan fyrir óskammfeilnar og
meinfyndnar myndasögur sínar.
Leikstjóri Legs er Stefán Jónsson
og leikmynd gerir Ilmur Stefáns-
dóttir en þau komu einnig að sýn-
ingu Hugleiks, Forðist okkur, sem
sett var upp í Borgarleikhúsinu á
síðasta leikári.
Eftir áramót verður síðan nýtt
verk eftir Ásdísi Thoroddsen
frumsýnt á Smíðaverkstæðinu en
verkið Amma djöfull er í leik-
stjórn Ágústu Skúladóttur.
Meðal annarra hápunkta vetr-
arins verður að öllum líkindum
frumsýning á einum þekktasta
harmleik grísku gullaldarinnar en
Bakkynjurnar eftir Evrípídes
verður jólaleikrit Þjóðleikhúss-
ins. Verkið hefur ekki verið sett
upp hér á landi áður. Leikstjóri er
Giorgos Zamboulakis en um dans
og sviðshreyfingar sér Erna
Ómarsdóttir.
Aðdáendur franska leikskálds-
ins Erics-Emmanuel Schmitt geta
einnig kæst því síðasta frumsýn-
ing leikársins á Stóra sviðinu
verður verkið Hjónabandsglæpir
sem Edda Heiðrún Backmann
leikstýrir en verk Schmitt, Abel
Snorko býr einn og Gesturinn,
hafa vakið stormandi lukku.
Frá fyrra leikári verða einnig
teknar upp sýningar á Pétri Gaut
eftir Henrik Ibsen sem sló eftir-
minnilega í gegn í Kassanum sem
og brúðuljóðaleikurinn Umbreyt-
ing eftir Bernd Ogrodnik. Á
Smíðaverkstæðinu gefst leikhús-
gestum tækifæri á að sjá aftur
Eldhús eftir máli, verk Völu Þórs-
dóttur sem byggir á smásögum
Svövu Jakobsdóttur og á Stóra
sviðinu verður áfram sýndur
Fagnaður Harolds Pinters.
Nánar verður fjallað um leikár
atvinnuleikhúsanna síðar í vik-
unni.
Líflegur leikhúsvetur
FRÍÐUR FLOKKUR Á TRÖPPUM ÞJÓÐLEIKHÚSSINS Vetrarstarf hússins hófst formlega í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS...
WWW.GRAS.IS