Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 4
4 2. september 2006 LAUGARDAGUR
GENGIÐ 01.09.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
121,4527
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
68,66 68,98
130,73 131,37
87,95 88,45
11,79 11,858
10,862 10,926
9,439 9,495
0,5848 0,5882
101,98 102,58
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
HEILBRIGÐISMÁL Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, telur eðlilegt að
bregðast við rekstarhalla Landspítalans með
einhverjum hætti þar sem vandinn sé aðallega
vegna utanaðkomandi áhrifa. Heildarhalli
Landspítalans á fyrstu sex mánuðum þessa árs
nemur 477 milljónum króna, eða 3,1 prósenti af
tekjum. Þá hafa verið gjaldfærð sérstök útgjöld
vegna fjárfesting-
ar við barna- og
unglingageðdeild.
Launakostnaður
Landspítalans er
402 milljónum
króna hærri en
áætlanir gerðu ráð
fyrir og skýrist það
mest af manneklu og mikilli yfirvinnu af þeim
sökum. Rekstrargjöld voru 222 milljónum
króna umfram áætlun, sem skýrist af lækkun
íslensku krónunnar og aukinni eftirspurn eftir
þjónustu LSH.
Spurð um hallann á rekstri sjúkrahússins
segir Siv jafnframt að hafa beri í huga að jafn-
vægi hafi verið í rekstri sjúkrahússins á undan-
förnum árum og telur að mjög vel hafi tekist til
með rekstur og hagræðingu innan stofnunar-
innar. „Við í ráðuneytinu munum fara vel yfir
málefni LSH á næstu vikum og mánuðum en
þetta er ekki eina stofnunin sem er viðkvæm
fyrir utanaðkomandi breytingum og hefur lent
í vanda. Ég tel eðlilegt að brugðist verði við
þessari stöðu af því að þetta er ófyrirséður
vandi sem veldur hér mestu um. Það þarf vænt-
anlega að skoða hvort unnt sé að leiðrétta hluta
þessa halla í fjáraukalögum en það þarf að
ræða bæði við fjármálaráðuneyti og Alþingi.“
Jóhannes M. Gunnarsson, lækningaforstjóri
og staðgengill Magnúsar Péturssonar for-
stjóra, segir að ólíkt því sem nú er hafi gengis-
þróun verið rekstri sjúkrahússins hagstæð á
undangengnum árum og reksturinn verið rek-
inn á sléttu á síðasta ári. „Þá þætti sem valda
hallanum nú geta stjórnendur LSH ekki haft
áhrif á og þess vegna snýst þetta svona í hönd-
unum á okkur. Þetta er vandi af þeirri stærðar-
gráðu að ekki verður við honum brugðist nema
með fullri samvinnu við heilbrigðisyfirvöld.
Þetta verður ekki lagað með hagræðingarað-
gerðum. Þegar um þetta stórar upphæðir er að
ræða verður að koma meira fé inn í reksturinn
því annars verður að draga úr kostnaði, sem
myndi hafa veruleg áhrif á þjónustuna og
starfsmenn.“ Stjórnendur LSH reikna með því
að hallarekstur haldi áfram á síðari hluta árs-
ins.
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra vill
ekki tjá sig um rekstrarhalla LSH. Hann segir
það fagráðherrans að gera það.
svavar@frettabladid.is
Búist við áframhaldandi
hallarekstri Landspítalans
Halli Landspítalans var um hálfur milljarður króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Heilbrigðisráðherra telur
eðlilegt að bregðast við. Fjármálaráðherra tjáir sig ekki. Stjórnendur búast við áframhaldandi hallarekstri.
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIRJÓHANNES M.
GUNNARSSON
Þetta verður
ekki lagað með
hagræðingaraðgerðum.
JÓHANNES M. GUNNARSSON
LÆKNINGAFORSTJÓRI
LANDSPÍTALINN Hallarekstur
ársins fyrstu sex mánuðina er 477
milljónir króna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
JAPAN, AP Shinzo Abe, hægri hönd
japanska forsætisráðherrans
Junichiro Koizumi, tilkynnti í
gær að hann sæktist eftir umboði
stjórnarflokksins til að taka við
er Koizumi lætur af embætti
bæði flokksformanns og ríkis-
stjórnarleiðtoga í haust. Kosið
verður 20. september.
Abe þykir langsigurstrangleg-
astur af þeim sem í framboði
verða. Í framboðsræðu sem hann
flutti í Hiroshima hét hann því að
hann myndi leggja sig allan fram
við að verja hagsmuni Japans og
viðhalda nánu samstarfi við
Bandaríkin í öryggismálum.
- aa
Stjórnarflokkur Japans:
Abe vill taka
við af Koizumi
PÍPARA
OKKUR VANTAR
www.handlaginn.is
Handlaginn óskar eftir að ráða
pípara til starfa
• Traustar greiðslur
• Gott vinnuumhverfi
• Samkeppnishæf laun
• Góður starfsandi
Umsóknir skulu berast skrifstofu Handlaginn,
Borgartúni 31, 105 Reykjavík, eða í tölvupósti
á handlaginn@handlaginn.is
Handlaginn er í eigu Öryggismiðstöðvarinnar
MÁLARAR RAFVIRKJAR MÚRARAR PÍPARAR SMIÐIR
SJÁVARÚTVEGUR Egill Jónsson og
áhöfn hans á Guðmundi Einars-
syni ÍS hafa bætt eigið heimsmet
í smábátafiskveiðum með því að
veiða rúm 1.500 tonn á fiskveiði-
árinu. Heildarafli bátsins á
síðasta fiskveiðiári og gamla
heimsmetið var 1.314 tonn.
Í samtali við smabatar.is
segist Egill skipstjóri ekki vilja
gera mikið úr þessu, en þegar
saman fari frábær útgerð og
mannskapur á sjó og í landi,
einstakur bátur og góð fisk-
gengd sé varla hægt annað en að
gera góða hluti. - shá
Smábátafiskveiðar:
Nýtt heimsmet
sett á Ísafirði
GUÐMUNDUR EINARSSON ÍS Heimsmet
smábáta bætt og aflinn kominn yfir
1.500 tonn á árinu. MYND/HALLDÓR
DÓMSMÁL Karlmaður um tvítugt
hefur verið ákærður fyrir sérstak-
lega hættulega líkamsárás 5. mars
síðastliðinn á Tryggvagötu.
Honum er gert að sök að hafa
stungið mann á svipuðum aldri
fimm sinnum með hnífi með þeim
afleiðingum að fórnarlambið hlaut
sár á brjóstbaki, síðu og mjóbaki,
þó engin djúp eða lífshættuleg.
Fórnarlambið krefst rúmrar millj-
ónar í miskabætur.
Ákæran var þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
- sh
Ákærður fyrir líkamsárás:
Stakk mann
fimm sinnum
����������������������������������
�������������
�������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
�������������
�������������
�����������������
�������������
�������������
�����������
���������������
���������������
���������������
�����������
���������������
���������������
��������������
��������������
�������������
�����������
�����������
�������
������ ����������������
������� ������������������
������������� �����������
����� ���������������� ��
�����������������
������������ ������������
������������� �� �������
������������������ ������
�����������������������
��� ������ ��� ������
������������ ���������
�� ����������������
���������� �������� � �
������� ���������������
�������� ������ �����
���������� �����
�������������
��������������
��������������� �����
� ������ ��� ������������� �
����� ������������������������
������������������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
�
��
��
�
��
��
�
��
��
��
��
��
�
��
��
�
�
�
�
�
�
�
��
�
�
��
��
��
�
��
��
��
FINNLAND, AP Enn er of snemmt að
beita Írana refsiaðgerðum fyrir
að neita að hætta auðgun úrans, að
sögn ráðamanna Evrópusam-
bandsins í gær. Utanríkisráðherra
Finnlands, Erkki Tuomioja, sagði
ESB vilja reyna frekari samninga-
viðræður áður en til róttækari
aðgerða kæmi.
Á miðnætti á fimmtudag rann
út frestur sem Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna gaf stjórnvöldum
í Íran til að hætta við kjarnorku-
áform sín. Íranar höfðu hins vegar
þá fyrirskipun að engu og tilkynnti
Mahmoud Ahmadinejad forseti
þjóð sinni í ræðu í gær að enginn
gæti neytt Írana til að afsala sér
„rétti“ sínum til kjarnorkufram-
leiðslu.
Íranar hafa staðfastlega haldið
því fram að öll kjarnorkuvinnsla
þeirra sé eingöngu í friðsamleg-
um tilgangi, en ýmis lönd, með
Bandaríkin í fararbroddi, óttast að
þeir framleiði leynilega kjarn-
orkuvopn. Javier Solana, utanríkis-
málafulltrúi ESB, ætlar í byrjun
næstu viku að hitta Ali Larijani,
aðalsamningamann Íransstjórnar
í kjarnorkumálum, og verður ekki
gripið til refsiaðgerða fyrir þann
fund, að sögn talsmanna ESB.
Stjórnmálamenn þjóðanna sex
sem hafa mest afskipti af málinu
funda í Berlín á fimmtudag. - smk
Íranar neita að hætta við kjarnorkuáætlun sína:
ESB vill ekki refsiaðgerðir strax
MAHMOUD AHMADINEJAD Íransforseti
veifar til þegna sinna eftir að hann til-
kynnti þeim að enginn gæti neytt Írana
til að hætta við kjarnorkuáætlun sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP