Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 2. september 2006 27 Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttamaður Það er stórskemmtilegt. Vanabind- andi. 25 ár bráðum. Tímafrekt. Getur verið spennandi í öllum skilningi þess orðs. En þegar hætt er að vera gaman á maður að steinhætta því. Vinnutími og íþróttafréttamennska tengj- ast þannig að þú vinnur ekki á þægilegasta tíma. Helsti galli á íþróttafréttamennsku er erfiður vinnutími. Sama hvernig maður lítur á þetta er maður alltaf að missa af einhverju spennandi. Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður Að vera íþróttafréttamaður er á köflum gargandi snilld. En því miður, á köflum og í sköflum, glatað. En alltaf jafn skemmtilegt. Alltaf yfirtíð er plúsinn en oftar en ekki borgað seint og illa. Guðmundur Hilmarsson íþróttafréttamaður Það eru ákveðin forréttindi. Tala nú ekki um fyrir mann eins og mig sem hefur lifað og hrærst í þessum bransa síðan ég man eftir mér. Þetta er beint framhald af því sem ég hef verið að gera síðan ég var fimm ára gutti. Fyrst þátttak- andi, svo með börnin að elta þau í þessu og svo að fjalla um þetta í hinum víða skilningi. Ég er sæll og glaður. Að gera það sem mér finnst gaman og skemmti mér í vinnunni. Ókostur? Jú, það er í öllu. Vinnutíminn er ekki beint fjölskylduvænn. Bæði kvöld- og helgarvinna. En með aukinni tækni getur maður hagrætt starf- inu betur en maður gat áður. Adolf Ingi Erlingsson íþróttafréttamaður Að vera íþróttafréttamaður er gríðarlega skemmtilegt fyrst og fremst. Varla fer nokkur út í þetta nema hafa áhuga á íþróttum. Það flokkast undir forréttindi að vinna við áhugamálið sitt. Maður þarf ekki að borga sig inn á völlinn. Starfinu fylgja einnig oft ferða- lög, sem getur verið kostur og ókostur. Oftast eru þessar ferðir skemmtilegar. Og upplifa að fara á stórmót. Gallarnir eru náttúrlega þessi skelfilegi vinnutími sem starfið krefst. Ekki mjög vinsælt hjá fjölskyldunni. HVERNIG ER AÐ ... ... VERA ÍÞRÓTTAFRÉTTA- MAÐUR? Löglegt að skjóta SkotaÍbúar York hafa verið beðnir um að skrifa undir sáttmála þess efnis að þeir muni aldrei skjóta á Skota með boga og ör. Samkvæmt gömlum lögum, sem aldrei hafa verið felld úr gildi, geta íbúar York skotið á Skota innan borgarveggjanna án þess að vera sótt- ir til saka. Ekki hefur enn reynt á þessi gömlu lög en skosku hjónin Ewan og Gill Main ætla að biðja íbúa borgar- innar að skrifa undir plaggið og ganga síðan um 240 mílna veg, frá York til Edinborgar. Hugmyndin með sáttmál- anum og göngunni er að safna fé fyrir samtökin Survive, sem hjálpa börn- um sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Hjónakornin ætla að leggja af stað 8. september og er áætluð koma til Edinborgar tveimur vikum seinna. 700 þúsund í þjórfé Bandarískum þjóni brá heldur betur í brún þegar hann fékk 10.000 doll- ara, sem samsvarar tæpum 700 þús- und íslenskum krónum, í þjórfé eftir að hafa afgreitt viðskiptavin sinn um máltíð sem kostaði heila 26 dollara. Þjóninn, Cindy Kienow sem vinnur á Applebee´s Bar and Grill í Kansas, fékk því 38.000% meira í þjórfé en það sem máltíðin kostaði. Viðskiptavinurinn sem var svo rausnarlegur er fasta kúnni á veit- ingastaðnum sem Kienow vinnur á. „Venjulega kvittar hann á nótuna og skilur hana eftir á hvolfi. Í þetta skipti snéri hann miðanum hins vegar upp því hann vildi að ég vissi að hann væri ekki að grínast.“ Að sögn Kienow skilur viðskipta- vinurinn alltaf eftir dágott þjórfé og fyrir tveimur vikum hafi hann til dæmis skilið eftir 100 dollara. Kienow segist hafa brugðið þegar hún sá hversu mikið hún átti að fá í þjórfé. „Ég gat ekki hreyft mig og ég vissi ekki hvað ég átti að segja. Hann sagði hins vegar að ég ætti að kaupa mér eitthvað fallegt fyrir peninginn.“ Aldargömlum manni skip- að í frí Elsta starfandi manni Bretlands hefur verið skipað að taka sér dags- frí frá vinnu til að fagna hundrað ára afmæli sínu. Afmælisbarnið og vél- virkinn Buster Martin vonast til að geta unnið þar til hann verður 125 ára, að sögn blaðsins Daily Mirror. Buster hafði skipulagt að fagna afmæli sínu með ölkrús á barn- um en samstarfsmenn tóku völd- in í sínar hendur og hafa skipulagt ferð fyrir hann um Stamford Bridge, heimavöll enska knattspyrnuliðs- ins Chelsea. Þar fær Buster afhenta treyju númer hundrað með áletr- uninni Buster, enda kappinn heitur stuðningsmaður liðsins. Buster reyndi að setjast í helgan stein fyrir þremur en eftir þrjá mánuði var hann orðinn svo leiður að hann fékk sér hlutastarf sem vélvirki hjá pípulagningafyrirtæki í London. „Leiðindi geta gert út af við fólk. Ég byrjaði að vinna til að halda mér við. Ef ég væri ekki í vinnu yrði ég sorglegasti maður heims,“ sagði Buster hinn hressasti. SKRÝTNAR FRÉTTIR E N N E M M / S ÍA / N M 2 3 12 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.