Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 6
6 2. september 2006 LAUGARDAGUR
KJÖRKASSINN
BANDARÍKIN, AP Sex af hverjum tíu
Bandaríkjamönnum telja að hryðju-
verkum í Bandaríkjunum muni
fjölga vegna þess að bandaríski
herinn réðst inn í Írak. Ríflega fjór-
ir af hverjum tíu, eða 43 prósent,
segjast skammast sín fyrir ímynd
Bandaríkjanna erlendis.
Þetta má lesa út úr skoðana-
könnun sem fréttastofan AP og
skoðanakönnunarfyrirtækið Ipsos
hafa birt. Samkvæmt sömu könn-
un telur helmingur Bandaríkja-
manna stríðið gegn hryðjuverkum
hafa reynst Bandaríkjunum of
dýrkeypt, og enn fleiri segja það
hafa hvarflað að sér að stríðið
kunni að vera of dýrkeypt.
Í mannslífum talið hefur stríðið
í Írak kostað Bandaríkin meira en
2.600 hermenn, og í Afganistan
hafa 270 bandarískir hermenn
fallið. Um það bil 20 þúsund banda-
rískir hermenn hafa særst í báðum
þessum löndum.
Tæpir tveir mánuðir eru til
þingkosninga í Bandaríkjunum,
en Repúblikanar hafa haft meiri-
hluta í báðum þingdeildum óslitið
frá 1994. Eitt stærsta kosninga-
málið er stríðið í Írak, sem Bush
segir vera lykilstríð í hinu mikla
stríði sem hann og stjórn hans
hafa háð gegn hryðjuverkamönn-
um víða um heim.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hélt nú í vikunni fyrstu
ræðu sína í mikilli ræðuherferð,
sem hann vonast til þess að dugi
til að sannfæra þjóðina um nauð-
syn þess að bandarískir hermenn
verði áfram í Írak þangað til
ætlunarverki þeirra þar er lokið.
„Öryggi hins siðmenntaða
heims er háð því að sigur vinnist í
stríðinu gegn hryðjuverkum, og
hann er háður því að sigur vinnist
í Írak,“ sagði Bush. „Ef við hætt-
um að berjast á götum Bagdad
þurfum við að mæta hryðjuverka-
mönnum á götum í okkar eigin
borgum.“
Hann á þó töluvert verk fyrir
höndum ef honum á að takast að
sannfæra þjóð sína um nauðsyn
hernaðarins. Samkvæmt fyrr-
greindri skoðanakönnun er ein-
ungis þriðjungur Bandaríkja-
manna sáttur við það hvernig
Bush hefur tekið á stríðinu í Írak.
Bush kaus að hefja ræðuher-
ferð sína á fimmtudaginn á fundi
með öldruðum hermönnum, sem
tóku þátt í fyrri stríðum Banda-
ríkjanna víða um heim.
„Þið hafið séð óvini af þessu
tagi áður,“ sagði hann. „Þeir hafa
tekið við af fasistum, nasistum,
kommúnistum og öðrum alræðis-
sinnum tuttugustu aldarinnar.“
Hann sagði stríðið sem banda-
ríski herinn stendur í núna vera
meira en bara hernaðarátök.
„Þetta er sú hugmyndafræðilega
barátta sem úrslitum ræður á 21.
öldinni. Öðru megin standa þeir
sem trúa á frelsi og hófstillingu og
hinum megin þeir sem eru reknir
áfram af harðstjórn og öfga-
stefnu.“
gudsteinn@frettabladid.is
Bandaríkjamenn
missa trú á stríðinu
Einungis þriðji hver Bandaríkjamaður er sáttur við frammistöðu Bush forseta í
tengslum við stríðið í Írak. Tveir mánuðir eru í þingkosningar og Bush er kominn
í herferð til að sannfæra þjóðina um nauðsyn þess að hafa herinn áfram í Írak.
VIÐ UPPHAF RÆÐUHERFERÐAR Bush
Bandaríkjaforseti hóf á fimmtudaginn
þriðju ræðuherferð sína til þess að
sannfæra bandarísku þjóðina um
nauðsyn stríðsins í Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Haust-
dagskráin
er komin út
Ný og
spennandi
sérfræðinámskeið
www.isoft.is • isoft@isoft.is
Sími: 511 3080
MCSA • MCSE • MCDST • CCNA • CISCO
Eini skólinn með viðurkennt Microsoft nám
STJÓRNMÁL „Sjávarútvegurinn þyrfti sannarlega að
vera öflugri þátttakandi í Kauphöllinni,“ segir Einar
K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.
Skráðum sjávarútvegsfyrirtækjum á hlutabréfa-
markaði hefur fækkað með árunum og eftir næstu
mánaðamót, þegar HB Grandi hefur verið afskráður
af aðallista, verður Vinnslustöðin eitt sjávarútvegs-
fyrirtækja í Kauphöllinni.
Í gegnum árin hefur á annan tug sjávarútvegs-
fyrirtækja verið skráð í Kauphöllina.
Einar segir þetta slæma þróun og hefur áhyggjur
af henni. Á hinn bóginn segir hann rekstur sjávar-
útvegsfyrirtækja almennt ganga vel. Hálfs árs
uppgjör séu blekkjandi, þar sem skuldir fyrirtækj-
anna séu í miklum mæli í erlendri mynt, sem nú er
dýrari en var. „Við sjáum að framlegð rekstrarins til
að standa undir þessum skuldum er miklu betri en
áður og gengisþróunin styrkir sjávarútveginn og
eykur tekjumyndun hans. Ég greini það á hverjum
einasta degi að það er allt annað hljóð í mönnum og
þeir eru bjartsýnir á rekstrarhorfurnar, sem betur
fer.“ - bþs
Sjávarútvegsráðherra segir fjárhagsstöðu sjávarútvegsfyrirtækja góða:
Slæm þróun í Kauphöllinni
EINAR K. GUÐFINNSSON Sjávarútvegsráðherra segir útgerðar-
menn bjartsýna á rekstrarhorfur.
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
tollalagabrot og brot gegn
tóbaksvarnarlögum í opinberu
starfi. Honum er gert að sök að
hafa í desember síðastliðnum
misnotað stöðu sína sem lögreglu-
maður á Keflavíkurflugvelli til að
smygla til landsins 720 grömmum
af munntóbaki í 30 dósum.
Hann er sakaður um að hafa
nýtt sér aðgangsheimild sína til
að fara inn í flugstöðina og taka á
móti tóbakinu úr hendi karlmanns
sem hann hafði beðið að flytja
efnið til landsins. Ákæran var
þingfest í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á fimmtudag. - sh
Ákærður fyrir tollalagabrot:
Lögreglumaður
smyglaði tóbaki
UMHVERFISMÁL Skipulagsstofnun
hefur fallist á fyrirhugað álver á
Reyðarfirði og telur að þegar viss
skilyrði hafi verið uppfyllt muni
álverið ekki valda óafturkræfum
áhrifum á loftgæði, ásýnd, hljóð-
vist og menningarminjar.
Talið er að sýnt hafi verið fram
á að bæði þurrhreinsun eingöngu
og þurrhreinsun með vothreinsun
séu fullnægjandi til að halda loft-
mengun innan marka í Reyðar-
firði.
Skipulagsstofnun setur þau
skilyrði að ekki verði heimil föst
búseta innan þynningarsvæðis
álversins, sérstaklega verði
hugað að því að draga úr sjón-
rænum áhrifum vegna fram-
kvæmdanna og að Alcoa Fjarðar-
ál standi fyrir reglubundnum
mælingum á loftmengun á svæð-
inu.
Hjörleifur Guttormsson, fyrr-
verandi þingmaður og ráðherra,
hefur sent frá sér athugasemdir
við niðurstöðuna og segir ýmsum
óvissuatriðum enn ósvarað.
Skýrslan segi ekkert um áhrif
verksmiðjunnar á byggða- og
atvinnuþróun, áhættu af hugsan-
legu straumrofi sem myndi valda
mikilli losun mengunarefna og
hættu af mengunarslysum í sjó
vegna flutninga til og frá álver-
inu. - ghs / - sh
Skipulagsstofnun um mat á umhverfisáhrifum álversins á Reyðarfirði:
Fellst á álverið með skilyrðum
ÁLVERSFRAMKVÆMDIR Skipulags-
stofnun telur að bæði þurrhreinsun
og þurrhreinun með vothreinsun
séu fullnægjandi hreinsunaraðferðir í
Reyðarfirði.
Ætlarðu að sjá eitthvað á kom-
andi kvikmyndahátíðum?
JÁ 22%
NEI 78%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga Íranar að fá að auðga
úran?
Segðu þína skoðun á visir.is