Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 18
2. september 2006 LAUGARDAGUR18
Það er vægt til orða tekið að kalla Magna
Ásgeirsson mann vikunnar, því um margra
vikna skeið hefur um fátt annað verið
talað en frammistöðu hans í raunveru-
leikaþættinum Rock Star: Supernova. Spenn-
an stigmagnast í hverri viku og er að
breytast í alíslenskt æði. Enginn þykist of
merkilegur til að styðja Magna og frést
hefur af fólki úr æðstu þrepum þjóð-
félagsins sem fer á fætur um miðja nótt
gagngert til þess að veita honum sitt
atkvæði. Þá var frammistaða hans í þess-
ari viku þvílík, að eitt olíufyrirtækjanna
hér á landi sá ástæðu til að lækka verð á
bensíni tímabundið. Hvað gerist ef hann
vinnur?
Hvar sem borið er niður bera menn
Magna vel söguna og segja hann hvers
manns hugljúfa. Sveitungar hans fyrir
austan eru eins og gefur að skilja stoltir
af sínum manni; segja hann vel að vel-
gengninni kominn og allra ólíklegastan til
að láta hana stíga sér til höfuðs. Jákvæðnin
er hans helsti kostur, segja þeir sem hann
þekkja og hann hefur alltaf gaman af því
að koma fram. Síðasta ball sem hann spil-
aði á er alltaf það besta í hans huga. Unn-
usta hans heitir Eyrún Huld Halldórsdóttir
og saman eiga þau soninn Marinó.
Magni er bóndasonur, fæddur og
uppalinn á Borgarfirði eystri. Fjölskyldan
er músíkölsk og bæði föður- og móðurbróðir
hans voru til dæmis í hljómsveitum. Sjálfur
byrjaði Magni að spila á gítar og koma
fram tólf ára gamall. Hann bjó að því að
vera í litlum skóla, þar sem nemendurnir
þurftu að skemmta sér sjálfir og „neydd-
ust“ hálfpartinn til að vera skapandi. Magni
var afar virkur í félagslífinu og átti auðvelt
með að aðlagast nýjum aðstæðum. Hann
stundaði nám í Framhaldsskólanum á
Eiðum og tók meðal annars tvisvar þátt í
Söngvakeppni framhaldsskólanna. Þar
komu félagarnir í hljómsveitinni Á móti sól
fyrst auga á hann og buðu honum að ganga
til liðs við sig. Magni ákvað að taka slaginn
og hætti í skóla þegar hann átti stutt eftir í
að ljúka stúdentsprófi. Fjölskyldan studdi
hann hins vegar heils hugar í því að reyna
fyrir sér í tónlistinni.
Áður en hann gekk til liðs við Á móti sól
var hann ekki viss um hvað hann langaði að
verða og var opinn fyrir öllu. Tónlistin
hefur hins vegar ávallt verið hans helsta
áhugamál og eftir að hann gekk til liðs við
Á móti sól var ekki aftur snúið. Eins og
algengt er í tónlistarbransanum hér á
landi hefur hann þó þurft að vinna önnur
störf til að drýgja tekjurnar og undan-
farin ár hefur hann unnið hjá plexigler-
umboðinu Akron. Það kostar mikla vinnu
að samræma fjölskyldulífið, tónlistina og
vinnuna. Hann er þó svo heppinn að vinnu-
veitendur hans hjá Akron eru sveigjanlegir
og hafa sýnt spilamennskunni mikinn
skilning í gegnum tíðina. Á móti kemur að
Magni er sagður harðduglegur til vinnu og
bætir vinnutap jafnan upp.
Á móti sól er fyrst og fremst popp-
hljómsveit en í keppninni Rock Star:
Supernova hefur Magni sýnt, svo ekki
verður um villst, að hann er harður rokk-
ari. Frá upphafi hefur hann verið einn
traustasti þátttakandinn í keppninni og
vex ásmegin eftir því sem á hana líður.
Sumir ganga jafnvel svo langt að segja að
Magni sé of góður fyrir Supernova; það
besta í stöðunni væri ef hann kæmist sem
lengst í keppninni án þess að þurfa að
ganga í hljómsveitina. Eitt má þó teljast
líklegt, hver sem úrslit Rock Star: Super-
nova verða er uppgangur Magna Ásgeirs-
sonar rétt að hefjast.
MAÐUR VIKUNNAR
Rólegur rokkari að austan
MAGNI ÁSGEIRSSON
SÖNGVARI
EN
NE
M
M
/
SÍ
A
Leiks‡ningar, lú›rasveit
og tónlistaratri›i
Sjón er sögu ríkari!
Svæ›i›
ver›ur
opi›
frá kl.
11.00
til 17.0
0
Opi› hús í Straumsvík sunnudaginn 3. september
Í tilefni af 40 ára afmæli Alcan í Straumsvík ver›a dyrnar a› álverinu opna›ar almenningi
sunnudaginn 3. september. Bo›i› ver›ur upp á sko›unarfer›ir um álveri› undir lei›sögn
starfsmanna, skemmtun fyrir börn og fullor›na, menningu og fræ›slu af ‡msum toga.
Nota›u tækifæri› og sjá›u hvernig álver lítur út!
Til a› lágmarka umfer› einkabíla ver›ur bo›i› upp á rútufer›ir til Straumsvíkur
frá bílaplani Fjar›arkaupa vi› Bæjarhraun í Hafnarfir›i á hálftíma fresti.
Opi› frá 11.00 – 17.00 dagskrá í bo›i allan daginn:
• Lei›sögn um svæ›i› me› rútum
• Véla og tækjas‡ning
• Myndlistars‡ningin „Hin blí›u hraun í Straumsvík“
• Ökuleikniss‡ning
• Hoppukastalar
• Kassabílarallí og hlaup
• Lú›rasveit Hafnarfjar›ar spilar
Kl. 12.00, 13.00, 14.00, 15.00 og 16.00
• Möguleikhúsi› s‡nir leikverki› „Áslákur í álveri“
Kl. 13.00 og 15.00
• Kynningar á umhverfismálum og mögulegri stækkun
Kl. 12.30 og 14.30
• Gunni og Felix
• Óperukór Hafnarfjar›ar
• Fri›rik Ómar og Gu›rún Gunnars
Kaffihús og veitingar allan daginn
Fræ›sla og
sko›unarfer›ir
um álveri›
Hoppukastalar
fyrir krakkana
Myndlistars‡ningin
Hin blí›u hraun í
Straumsvík
Alcanhlaupi› flar
sem allir fá
ver›laun
Spennandi
og lífleg
dagskrá
Sunnudagskaffi
í Straumsvík
Kassabílarallí
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir
Upplýsingar,
viðburðir,
afþreying og fréttir