Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 48
■■■■ { hausttíska } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■8
Haust og vetur hafa sjaldan verið
tími mikillar litagleði hjá tísku-
vöruframleiðendum. Því einkenn-
ist haustið, eins og oft áður, af
gráu og svörtu í bland við dökka
liti. Skemmtilegast er þó að poppa
sjálfan sig aðeins upp með því að
bæta við einum sumarlegum lit, þó
ekki væri nema einungis til þess að
minna okkur á hin glaðlega sum-
artíma.
Annars eru ekki miklar breyt-
ingar í tískuáherslum frá síðasta ári
enda hefur herratískan sjaldan verið
þekkt fyrir örar breytingar. Nýjung-
ar frá síðustu misserum eru frekar
að festa sig í sessi en auðvitað má
líka finna ögrandi og öðruvísi hluti
sem gætu orðið áberandi meðal
karlmanna á næstunni. - sha
Sonia Rykiel. Skólabúningar hafa verið
mikill innblástur fyrir tískuframleiðendur,
sem nýta hygmyndafræði skólabúninga og
einkennismerki skóla óspart. Skemmtilegir
litir og einföld form.
Hugo Boss. Tvíhnepptir jakkar og frekar
aðsniðnir eru gríðarlega ríkjandi fyrir
haustið. Boðungurinn á jökkunum er líka
farinn að skipta meira máli og því þarf að
hafa margt í huga þegar á að kaupa sér
jakkafatajakka.
Ralph Lauren Niðurþröngar buxur halda
áfram innreið sinni og eru núna orðnar
mun áberandi en beinar, útvíðar og boot
cut.
Cloak. Smáir og þröngir kragar hafa verið
áberandi. Lagt er upp úr að kragarnir séu
vel sniðnir en passi samt við bæði venjuleg
bindi og mjó.
Hausttískan fyrir karlmenn
Sólin er hætt að skína allan sólarhringinn, nú rignir flesta daga og vindurinn lætur líta út
fyrir að enn kaldara sé í veðri en í raun er. Haustið er komið sem þýðir að kvartbuxurnar
og litríku bolirnir víkja fyrir peysum, jökkum og hlýrri fötum.
Prada. Handtöskur verða alltaf meira og meira áberandi meðal karlmanna og er Prada
langt frá því að vera eina tískuhúsið til þess að sýna fyrirsætur sínar með handtöskur á
tískupallinum. Töskurnar eru þó langt frá því að vera kvenlegar heldur eru þær grófar og
afar svalar.
Trovata. Litaðar gallabuxur eru kærkomin
tilbreyting frá hinum hefðbundnu bláu galla-
buxum. Buxurnar skera sig úr en eru ekki
of undarlegar. Rauðar, hvítar, gráar, grænar,
svartar eða hvaða litur sem er. Töff og fágað.
Ozwald Boateng. Brúnir spariskór voru afar
algeng sjón meðal fatahönnuða á tísku-
sýningum fyrir haustið og veturinn. Skórnir
passa við öll föt og vekja aðeins meiri
eftirtekt en þeir svörtu. Þá verður hins
vegar að passa betur upp á sokkaval sem
eiga að vera ljósari en skórnir en dekkri en
buxurnar eða öfugt.
Hnepptar peysur halda áfram að vera vinsælar og eru mjög áberandi. Þær eru oft skemmti-
legar enda hægt að fá þær í fjölbreyttum útgáfum og ýmsum litum. Þær má líka poppa
aðeins upp með því að klæðast einhverju skemmtilegu undir þeim en þá verður að passa
upp á samsetninguna. Hönnuður Henrik Vibskov.
Full búð af fl ottum
haustvörum
Nýjar vörur í hverri viku
Hagasmára 1
201 Kópavogi
s: 517-5330
A I K I D O
w w w . a i k i d o . i s
Ný námskeið að hefjast
í sal Aikikai Reykjavík í Faxafeni 8.
Verð 17.000 kr. fyrir fullorðna og
13.500 kr. fyrir unglinga (13-15 ára)
(para- og systkinaafsláttur).
Ókeypis aikido galli
fylgir fyrir 13 ára og eldri.
Verið velkomin í frían prufutíma
frá og með mánudeginum 4. september.
Nú er bara að mæta!!
Barnanámskeið (6-12 ára) hefst
mánudaginn 4. september kl. 17:00
Verð: 10.000 kr.
Hringið til að fá nánari upplýsingar:
840-4923 & 897-4675
eða skoðið heimasíðuna:
Eðli aikido er þannig að allir geta
æft saman óháð kyni, aldri,
styrkleika og þyngdarflokkum.
Í aikido er öll áheyrsla lögð á að
verjast árásum með því að beina
krafti andstæðings frá sér í stað
þess að reyna að mæta krafti með
meiri krafti.