Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 2. september 2006 7
Veiðisumarið
með Stefáni Jóni Hafstein
Fleiri veiðifréttir og heilræði við veiðar á www.flugur.is.
Maður er alltaf ögn upp með sér
þegar heilræði hér í pistlum
sanna sig. Glöggir lesendur
muna e.t.v. að umræðuefni síð-
asta pistils var haustveiðin og
húmið, og hvaða flugur væru
góðar. Ég nefndi Undertaker.
Valdimar Agnar Valdimarsson
valdi einmitt þá flugu, hvort sem
það hafði eitthvað með pistilinn
að gera, og setti í þann stóra, og
ef til vill þann stærsta á Íslandi í
sumar, þegar hann tók 105 sm
langan fisk í Þverá í vikunni. Sá
gæti hafa verið 25-28 pund. Í
spjalli við Valdimar sagðist hann
aldrei hafa verið neitt fyrir það
að sleppa laxi, en ekki hefði komið
til greina að drepa þennan. Þetta
var hrygna, langt komin á leið og
bólgin af hrognum, og fékk að
synda frjáls til að fjölga fiskum í
ánni.
Nú hefst stórlaxafárið
Þetta er einmitt tíminn þegar
stórlaxarnir fara að gefa sig.
Stóru hængarnir eru búnir að
hafa hægt um sig í allt sumar,
hafa horft fyrirlitningaraugum á
flugur og maðka og ekki hvarflað
að þeim að bíta á. En nú er kom-
inn roði á kviðinn, svilin þrosk-
ast, þeir hafa vopnast stórum
krókum sem skaga fram úr neðra
skolti, og þeir finna að fengitím-
inn nálgast. Það er þá sem þeir
fara að verja ána sína og hreiðrið
sem þeir ætla fyrir hrogn ást-
hrygnu sinnar. Og bíta á. Þetta
gleður veiðimenn. En. Veiði-
málastofnun hefur nú í nokkur ár
óskað eftir því að veiðimenn
sleppi íslenska stórlaxinum,
vegna þess að stofninn er metinn
í mikilli hættu. Hver svona stór-
lax eins og veiddist í Þverá er
gríðarlega mikilvægur fyrir við-
hald stofnsins, ekki bara vegna
þess að hann gefur svo mörg
hrogn af sér, heldur vegna þess
að hann viðheldur í erfðum
stofnsins þeirri náttúru að dvelja
tvö ár í sjó og snúa til baka sem
stórlax. Að tölu eru smálaxarnir
miklu fleiri og minni eftirsjá í
þeim. Það var því hátíðleg og góð
stund þegar hrygnan hans Valdi-
mars synti aftur til móts við ána
sína. Og gjörð hans til fyrir-
myndar öðrum veiðimönnum.
Óætir hvort sem er
Góður lax er góður matur, fersk-
ur, reyktur eða grafinn, og gaman
að framreiða slíka bráð. Leginn
lax er ekki góður matur. Ef hann
er kominn í hrygningarbúning
með áberandi rauða slikju á
kviðnum, tala nú ekki um orðin
dökkleitur, er hann ekki tækur í
mat. Og nei, hann er ekki heldur
tækur í reyk. Maður heyrir oft
veiðimenn segja þegar þeir
slengja kollegnum fiski á vogina:
,,Ja, hann fer í reyk“. Fiskur fitn-
ar ekki í reykhúsi. Leginn lax er
miklu síðri matur en annar fiskur
og á best heima í ánni áfram, enda
kominn í mikilvægari hugleiðing-
ar er þær að láta borða sig. Slepp-
um stórlaxinum í haust!
Með veiði- og sleppikveðju þegar við á,
Stefán Jón.
Stórlaxar í færi
Stefán Sigurðsson sleppir stórum haust-
laxi.
Louvre-safnið í París er
stærsta listaverkasafn í heimi.
Safnið var opnað almenningi
árið 1793 í kjölfar frönsku bylt-
ingarinnar en var upphaflega
byggt sem rammgerð höll fyrir
Philip Augustus árið 1190. Árið
1989 reis glerpíramídinn um-
deildi við þetta víðfræga safn.
Louvre-safnið er hvað frægast
fyrir að varðveita nokkur af fræg-
ustu verkum listasögunar. Í safn-
inu eru meðal annars til sýnis
mörg frægustu listaverk Leonar-
dos da Vinci og fleiri meistara
endurreisnarinnar. Margir þekkja
Louvre-safnið einna helst vegna
þess að það var að stórum hluta
sögusvið Da Vinci lykilsins og til
marks um áhrif bókarinnar hafa
vinsældir safnsins aukist gríðar-
lega; árið 2005 heimsóttu um 7,3
milljónir manna safnið en ekkert
safn í heiminum fær viðlíka fjölda
gesta til sín. Safnið er gríðarlega
stórt, alls er það 60.000 fermetrar
og eru 35.000 listmunir varðveittir
á safninu. Flestir gestir safnsins
sjá þó aðeins lítið brot af verkum
þess og ná aðeins að sjá allra fræg-
ustu listaverkin. Louvre-safnið er
opið alla daga frá 9-18 og er
aðgangseyrir 8 evrur fyrir dag-
passa, sem gildir þó ekki á sér-
stakar sýningar. - vör
Sögulegt stórvirki
Louvre-safnið að næturlagi. Fyrir miðju er píramídinn frægi.
Venus de Milo styttan er meðal ómet-
anlegra listmuna sem Louvre-safnið
varðveitir.
Nú þegar knattspyrnuvertíðin í Evr-
ópu er hafin á ný eru ferðaskrifstof-
urnar farnar að auglýsa borgarferðir
á knattspyrnuleiki. Enska úrvals-
deildin hefur nær einokað þessir
ferðir undanfarin ár en ljóst er að
nú verður breyting á. Eftir að Eiður
Smára gekk í raðir Evrópumeist-
ara Barcelona hafa
ferðaskrifstofurnar
tekið við sér og boðið
boltaferðir til þessarar
rómuðu borgar. ÍT
ferðir bjóða nú
boltaferð til
borgarinn-
ar á leik
Barcelona
og Recrativo
27.-30.
október.
Þessi ferð
mun vafalaust
ekki vera sú eina
sem farin verður
í vetur til þess
að fylgjast með
Eiði Smára og
félögum. - vör
Eiður dregur að
Síðustu forvöð eru að heim-
sækja Töfragarðinn á Stokks-
eyri í sumar.
Síðasta opnunarhelgi Töfragarðs-
ins á Stokkseyri þetta sumarið er
runnin upp. Annað kvöld, sunnu-
dag, verður honum skellt í lás í bili
og lokað þar til í maí á næsta ári.
Þar hefur verið líf og fjör í sumar
og margir hafa litið inn og kíkt á
dýrin sem þar búa. Það eru meðal
annars hreindýr, refir, kanínur,
kindur, geitur, kálfar, kisur, hvolp-
ar, naggrísir og páfagaukar. Leik-
tækin í garðinum njóta líka mikilla
vinsælda, sérstaklega hopppúðinn
og Svalakastalinn sem og veit-
ingatjaldið.
Töfragarður-
inn að loka
Kíkt út um kofadyrnar.
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
��������������������������������������������������������������
���������������������������������������
�������������������������������������������
�����������������������
��������������
����������������
������������������������
� � � � � � � � � � � � � � �
���������������������������������������������
�����������������������������
�������������������������
����������������������������������
���������� � ������
Helgarferðir: 9. sept / 16. sept
23. sept: Kringilsárrani og Vesturöræfi