Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 32
[ ]
Brimborg frumsýnir í dag nýj-
an pallbíl, Ford Explorer Sport
Trac.
Það fyrsta sem maður tekur eftir
við hinn nýja Ford Explorer Sport
Trac er áferðarfalleg hönnun
hans. Pallurinn er smekklega
sniðinn að húsinu og allar línur
bílsins eru í nokkuð góðu sam-
ræmi, þrátt fyrir að Íslendingur-
inn í manni vilji heldur sjá nokkuð
stærri dekk og hærra undir bíl-
inn, en því er jú hægt að bjarga.
Innviðir bílsins eru allir hinir
smekklegustu. Bílstjórasætið er
þægilegt enda hægt að stilla það
með rafdrifnum rofa. Rými fyrir
farþega er einnig með ágætum
enda nægt pláss fyrir þrjá full-
orðna í aftursæti og kemur fóta-
plássið reyndar nokkuð á óvart
miðað við pallbíl.
Það sem stendur upp úr við
kosti bílsins er þó vafalaust sá
kraftur sem hann hefur yfir að
ráða. Fjögurra lítra, 210 hestafla
vélin veitir hinum rúmlega
tveggja tonna bíl nægan kraft
enda togið til fyrirmyndar. Maður
getur vel séð hann fyrir sér með
stóra hestakerru eða hjólhýsi í
eftirdragi án þess að missa of
mikið afl. Böggull fylgir þó
skammrifi enda ekkert ókeypis í
þessum heimi. Sport Trac er sjálf-
skiptur með fjögurra eða 4,6 lítra
bensínvél. Uppgefin bensíneyðsla
er um 14 á hundraðið en eins og
gefur að skilja er sparakstur
manni ekki ofarlega í huga á
amerískum pallbíl og því tókst
sjaldan að koma honum undir 19 á
hundraðið sem er á þessum tímum
hás bensínverð töluverður mínus.
Hins vegar má segja að fyrir þann
kraft sem maður fær í staðinn sé
ekki ósanngjarnt að borga svolít-
ið.
Bíllinn er skemmtilegur í
keyrslu, bæði innan bæjar og utan.
Leðurklætt stýrið leikur í höndum
manns og beygjuradíusinn kemur
skemmtilega á óvart. Sjálfskipt-
ingin er þétt og grípur vel og fjöðr-
un bílsins, þrátt fyrir að vera
nokkuð stíf, fer vel með farþegana
á malarvegum. Þá liggur bíllinn
ágætlega í beygjum enda búinn
stöðugleikastýrikerfi með velti-
vörn. Í stuttu máli má segja að
maður fær góða öryggistilfinn-
ingu af að keyra bílnum.
Skoðum nú innviði bílsins.
Stjórntæki í hurð eru fallega hönn-
uð. Geisladiska- og mp3 spilari
eru staðalbúnaður í Sport Trac.
Mælaborðið er áferðarfallegt en
óþarflega mikið af harðplasti sem
leiðinlegt er að þrífa. Hraða- og
snúningsmælar eru flottir og auð-
læsilegir og þar er einnig að finna
aksturstölvu sem er frábær upp-
finning, hins vegar hefur rofanum
fyrir tölvuna verið komið fyrir við
mælinn þannig að nauðsynlegt er
að teygja sig í gegnum stýrið til að
komast að henni sem er frekar
óþægilegt, ef ekki beinlínis hættu-
legt á mikilli ferð. Skriðstillingu
(cruise control) er hins vegar hag-
anlega fyrir komið í stýrinu.
Geymslurými er mikið í Sport
Trac. Pallurinn hefur verið stækk-
aður um rúman fjórðung frá fyrri
útgáfu bílsins. Þá er hægt að
leggja niður farþegasætin til að fá
aukið geymslurými inni í bílnum.
Á heildina séð er Sport Trac
skemmtilegur bíll. Lipur og þægi-
legur í keyrslu og hefur nægan
kraft. solveig@frettabladid.is
Hraða- og snúningsmælar eru flottir og
auðlæsir. Eini gallinn er að óþægilegt
er að komast að rofanum fyrir aksturs-
tölvuna.
Geisladiska- og mp3 spilari eru stað-
albúnaður í Sport Trac. Þá er hönnun
mælaborðsins falleg.
Stjórntæki í hurð eru fallega hönnuð.
Eini gallinn er staðsetning handfangsins
en öryggisástæður liggja þar að baki.
Áferðarfallegur orkubolti
Hraðastilli (cruise control) er haganlega
fyrir komið í stýrinu. Fjórhjóladrifið, hátt og lágt, er tölvustýrt.
Nægt fótapláss er fyrir farþega í aftur-
sæti og geta þrír fullorðnir hæglega
komið sér þar fyrir. Þá er hægt að fella
sætin niður til að fá aukið geymslurými.
Hægt er að fá farangursgrind sem fest er
á hjörum á pallinn. Þannig eykst farang-
ursrýmið töluvert. Þegar grindin liggur
inni í pallinum er hægt að nota hana til
að skorða hluti til að þeir velti ekki um
tóman pallinn.
Ford Explorer Sport Trac er kraftmikill og lipur í keyrslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
REYNSLUAKSTUR
Haldið ró og jafnaðargeði í umferð-
inni í stað þess að steyta skapi ykkar
á öðrum bílstjórum. Það borgar sig.
FORD EXPLORER Sport Trac
Vél: 4 lítra bensín
210 hestöfl / 345 Nm
Uppgefin eyðsla: 13,8 l/100 km
0-100 km/klst: 8,7 sek
Þyngd: Um 2150 kg.
PLÚS
Kraftur
Farangursrými
Falleg hönnun
Lipur og þægilegur í keyrslu
MÍNUS
Bensíneyðsla
Erfið aðkoma að aksturstölvu
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A