Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 84
2. september 2006 LAUGARDAGUR48
utlit@frettabladid.is
Við lestur á nýjustu tískutímaritunum sá ég að að „nineties“ er að koma
aftur í tísku. Víð snið, daufir litir og klossaðir skór eru eitt af einkennum
þessa áratugar og það er margt mjög girnilegt sem sýnt var á tískupöllunum
fyrir komandi vetur og haust. Flottir prjónakjólar og lágir skór með reim-
um, kannski að Dr. Martins skórnir margrómuðu fari að líta dagsins ljós
á ný?
Það er óneitanlega skrýtið að sjá tímabil sem maður man svona vel
eftir komast í tísku á ný. Sumum flíkunum man ég eftir að mamma hafi
klæðst þegar ég var lítil og því kannski kominn tími til að ég fari að taka
öll ófögru orðin sem ég hafði um fataskáp hennar á sínum tíma til baka og
reyna að fá eitthvað lánað í staðinn.
Það er alveg fáránlegt að sjá flíkurnar sem maður fussaði og sveiaði
yfir á sínum tíma komast aftur í tísku og auðvitað, sem þræll tískunnar,
þá finnst mér allt það nýjasta geggjað. Ætli Buffaló-skórnir, sem flestum
hryllir við í dag, komi aftur með pompi og prakt? Þannig að strákar og
stelpur geti gengið há og stolt um á þessum furðulegum stultulegu skóm
sem tröllriðu Íslandi á sínum tíma.
Núna skil ég móður mína þegar „eighties“ tískan varð aftur móðins
fyrir stuttu og hún trúði því ekki að ég labbaði ánægð um með hliðartagl
og í skræpóttum leggings á almannafæri. Þá var ég alltaf að skamma
hana fyrir að hafa hent öllum flottu fötunum sem hún átti á þessum tíma.
Ætli þetta sé ekki bara enn ein ávísun þess að ég er að eldast, ekki nógu
hægt og bítandi að mínu mati því ég næ ekki alveg að samræma mig við
aldurinn, því þetta gerist allt saman of hratt. Ég ætla samt sem áður að
njóta „nineties“ tískunnar í botn í vetur, enda er það eitt af þægilegustu
tímabilunum með sniðlausum flíkum og breiðri tá á skóm.
Allt kemur aftur,
fyrr eða síðar ...
Spáir þú mikið í tískuna? Ég reyni
að fylgjast með tískustraumunum
og það sem er í gangi í dag. Ég er
duglegur að kíkja í búðir og máta og
sjá hvað er verið að bjóða upp á. Ég
mundi allavega segja að ég sé mjög
meðvitaður um það sem er í gangi í
tískunni i dag.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum? Ég mundi segja að stíllinn
minn sé mjög litríkur og skemmtilegur.
Ég hef líka mjög mikinn húmor fyrir
fötum, þannig að lokaniðurstaðan
væri að ég hefði mjög litríkan og
fyndinn stíl. Núna haldið þið örugg-
lega að ég sé trúður en það er allt
í lagi.
Uppáhaldshönnuðir eða fata-
merki? Mér finnst Vivienne West-
wood frábær fatahönnuður. Einnig
er ég mjög mikið skotinn í hettu-
peysunum frá American Apparel.
Flottustu litirnir? Uppáhaldsliturinn
minn er án efa grænn. Hann klæðir
mig svo svakalega vel og mér líður
eitthvað svo vel í grænu.
Hverju ertu veikastur fyrir? Bolirnir
í Spúútnik. Stundum get ég gjörsam-
lega tapað mér í þeim. Einnig finnst
mér ótrúlega gaman að kaupa mér
jakkaföt.
Hvað finnst þér flottast í tískunni
núna? Þessi svokölluðu „Early 90´s“
áhrif sem eru í tískunni núna. Þetta
er soldið skemmtilegt og
smart.
Uppáhaldsverslun? Spú-
útnik er alltaf klassísk.
Einnig er Kron Kron
að gera fáránlega
góða hluti og ég
hlakka til að sjá nýju
strákafötin sem Gyllti
kötturinn er að setja
upp á slána hjá sér
í þessum töluðu
orðum.
Hvað eyðir þú
miklum peningum
í föt á mánuði? Voða
misjafnt. Stundum
ekki neinu, stundum 20 þúsund
krónum.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið
án? Ég mundi segja að ég gæti ekki
verið án þessa fimm þúsund bola
sem ég á og hettupeysurnar
mínar eru einnig ómissandi.
Uppáhaldsflík? Ég á einn svartan
síðermabol sem ég keypti fyrir
sex árum. Á honum stendur
„Can´t Enough Of Women´s
Basketball“ sem mundi þýðast
yfir á íslensku „Fæ aldrei nóg af
körfuknattleik kvenna.“ Síðan
er einhver lest að þvælast
þarna á milli stafanna. Ég elska
þennan bol.
SMEKKURINN ÓLI HJÖRTUR ÓLAFSSON, VAKTSTJÓRI Á PRIKINU OG PLÖTUSNÚÐUR
Sjúkur í boli og fatahönnuðinn Vivienne Westwood
> Mælum með
... víðum skálmum. Buxur með háu mitti
og víðum skálmum eru nýjasta viðbótin
í tískuflóruna og virka mjög vel við háa
hæla og axlabönd.
Fjólublár er litur sem undanfarin
ár hefur gleymst í tískunni. Hann
er sérkennileg blanda af rauðum
og bláum, sem ekki virðist þó falla
undir neinn sérstakan flokk.
Tískuspekúlantar hafa ávallt verið
sammála um það að fjólublái litur-
inn sé sá litur sem seljist minnst af
öllum litum, en þegar hann kemst í
tísku þá verður allt vitlaust. Nú er
hann kominn aftur í tísku, mörg-
um til mikillar ánægju og gleði,
enda hefur hann verið að læðast
hægt og bítandi fram á sjónarsviðið.
Samkvæmt kenningum Feng
Shui spekinnar á fjólublár að boða
velsæld og peninga en einnig er
orðrómur á kreiki um það að fjólu-
blár spilli matarlyst. Þess vegna á
fólk sem er í megrun eða hefur
búið til of lítinn mat fyrir fjöl-
mennt matarboð að hafa fjólubláan
dúk á matarborðinu.
Fjólublár er litur sem til er í
öllum tónum, eins og sjá má á
þessum myndum og nú í vetur eru
bæði ljósfjólublár og alveg dökk-
fjólublár í tísku, í fatatískunni og
í förðunarvörum.
alfrun@frettabladid.is
Fjólubláir geislar haustsins
SKEMMTILEGUR
Flottur rúllu-
kragabolur með
skemmtilegu sniði
frá Vero Moda.
MÓÐUR VIKUNNAR
Álfrún fer yfir málin
DIESEL Síður
rokkarabolur frá
Gallerí 17.
MIU MIU Flottur
kjóll með fjólu-
bláum útsaum.
FALLEGT Flott fjólublá prjónaslá sem
birtist á tískupöllunum fyrir næsta
haust og vetur.
HLÝ Falleg prjóna-
peysa úr Vero Moda.
HÁRSKRAUT Sætir
kambar í hárið, í
stíl við fjólubláa
fatnaðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
FLOTTUR Síður bola-
kjóll úr Gallerí 17.
Hentugur yfir buxur
eða við leggings.
FRÁBÆR Margnota kjóll frá
Vivianne Westwood og fæst
í Kronkron.
GÓÐ SAM-
SETNING
Tískuljónið
Sarah Jessica
Parker blandar
hér saman
fjólubláum lit,
rauðum og
túrkísbláum.
FALLEGIR Glæsilegir skór frá Eley
Kishimoto og fást í Kronkron.
PARTÍKJÓLL
Frábær kjóll frá
Spúútnik.
FJÓLUBLÁ AÐ NEÐAN
þessar flíkur eru frá Burberry
Prosum og fjólublár er
einstaklega fallegur við grátt,
eins og sjá má.
GRÚVÍ Falleg skyrta í mörgum
litum, meðal annars fjólubláum,
frá Spúútnik. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
BUXUR Flottar fjólubláar
gallabuxur úr Trílógíu.
HEFÐBUND-
INN Flottur
bolur frá
Bruunz
Bazar og
fæst í versl-
uninni Evu.
Sendu SMS skeytið JA S2F
á númerið 1900 og við
sendum þér spurningu! Þú
svarar með því að svara A, B
eða C á númerið 1900.
Þú gætir unnið!
Aðalvinningur
TOSHIBA tölva
og Sims 2 Stuff
Auka vinningar eru Ps2 tölvur • Sims
leikir • DVD myndir • Fullt af öðrum
tölvuleikjum og margt fleira V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b
. 9
9
kr
/s
ke
yt
ið
. Þ
ú
fæ
rð
5
m
ín
t
il
að
s
va
ra
s
p
u
rn
in
g
u
.
SMSLEIKUR