Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 82
2. september 2006 LAUGARDAGUR46
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
SEPTEMBER
30 31 1 2 3 4 5
Laugardagur
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Söngkonan Guðbjörg
Sandholt og Anna Helga
Björnsdóttir píanóleikari halda tón-
leika í Reykholtskirkju.
22.00 Hljómsveitirnar Shadow
Parade,Telepathetics og Bela
halda tónleika á Græna Hattinum
á Akureyri.
■ ■ OPNANIR
17.00 Pétur Már Gunnarsson
og Kristján Loðmfjörð opna
sýninguna IT WILL NEVER
BE THE SAME á Vesturvegg
Menningarmiðstöðvarinnar
Skaftfells á Seyðisfirði.
17.00 Jónas Viðar opnar málverka-
sýningu í DaLí Gallery á Akureyri.
Sýningin stendur til 23. september.
■ ■ FUNDIR
11.30 Félagsfundur Parísar, félag
þeirra sem eru einar/einir, er haldin
á Kringlukránni.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
11.00 Sýningu Alistair Macintyre,
Vanishing Point, í galleríi
Turpentine lýkur um helgina.
Sýningin er opin milli 11-16.
■ ■ OPIÐ HÚS
13.30 Opið hús í Salnum í
Kópavogi. Jónas Ingimundarson
kynnir TÍBRÁR-tónleika starfsárs-
ins, sagt verður frá Tónleikaröð
kennara Tónlistarskóla Kópavogs
(TKTK) og Gunnar Ingi Birgisson
bæjarstjóri greinir frá Kanadískri
menningarhátíð sem haldin verður
í Kópavogi vikuna 14.-22. október
2006.
15.00 Opið hús hjá sjálfsvarnar-
félaginu Mjölni á Mýrargötu 2
milli kl. 15-17. Haustdagskráin
verður kynnt og góðir gestir líta í
heimsókn.
■ ■ UPPÁKOMUR
17.00 Fatahönnun Anítu Hirlekar
verður kynnt í versluninni kvk á
Laugavegi 27. Plötusnúðurinn Sadjei
sér um tónlistina.
Borgarleikhúsið lítur um öxl í
vetur en Leikfélag Reykjavíkur
fagnar 110 ára afmæli þetta árið.
Á dagskrá vetrarins eru tvö „klass-
ísk“ íslensk leikrit sem ekki hafa
farið á fjalirnar lengi, Dagur
vonar eftir Birgi Sigurðsson og
söngleikurinn Grettir eftir Ólaf
Hauk Símonarson, Þórarin Eld-
járn og Egil Ólafsson.
„Leikritið Dagur vonar var
frumsýnt á 90 ára afmæli leikfé-
lagsins og í ár leitum við aðeins í
nostalgíuna,“ útskýrir Guðjón
Pedersen leikhússtjóri Borgar-
leikhússins, „en Grettir er síðan
hinn hluti nostalgíunnar“. Dagur
vonar, í leikstjórn Hilmis Snæs
Guðnasonar, verður frumsýnt í
janúar en sagan um hinn lánlausa
Gretti tveimur mánuðum síðar.
Leikhússtjórinn vill lítið upplýsa
um hlutverkaskipan verkanna að
svo stöddu.
Fyrsta frumsýning vetrarins er
verkið Mein Kampf eftir George
Tabori sem fer af stað á Nýja svið-
inu nú í september. Verkið er
meinfyndinn gamanleikur um
myndlistarnemann Adolf Hitler
en þar er skyggnst bak við aðdrag-
anda helfararinnar í lúmskum
spéspegli. Leikstjóri er Hafliði
Arngrímsson. Annað flaggskip
vetrarins er meistarastykki Pet-
ers Shaffer, Amadeus, þar sem
greint er frá sambandi tónskáld-
anna Mozart og Antonio Salieri en
það byggir á sögusögnum um dula-
fullan dauða Mozarts og þátt Sali-
eri í honum. Stefán Baldursson
leikstýrir en frumsýnt er í októb-
er.
Athygli vekur að leikfélagið
mun sýna tvö verk eftir skoska
leikskáldið Anthony Neilson á
leikárinu en verk hans hafa verið
á margra vörum undanfarið, ekki
síst vegna nýlegra uppfærslna á
verkunum Ritskoðaranum og Pen-
etreitor. „Við höfum verið að fylgj-
ast með Neilson undanfarin ár en
hann er mjög fjölhæft leikskáld.
Við ákváðum að sýna þessa fjöl-
breytni og gera honum hátt undir
höfði í vetur,“ segir Guðjón og
nefnir að leikskáldið sé ef til vill á
leiðinni hingað til lands í tilefni
þessa. „Þessi verk eru mjög ólík,
annað er fantasíuverk en hitt er
gamanleikrit með afar sterkum
boðskap.“ Benedikt Erlingsson
leikstýrir fantasíunni Fagra ver-
öld en Steinunn Knútsdóttir verk-
inu Lík í óskilum.
Tvö ný íslensk verk verða einn-
ig sýnd í samstarfi við Borgarleik-
húsið. Nýtt verk eftir Björk Jak-
obsdóttur, Fyrirtíðarspenna, sem
fjallar um vandamál sem margar
konur kannast við, og verkið Eilíf
hamingja eftir Andra Snæ Magna-
son sem Guðjón segir meðal ann-
ars fjalla um hversu krefjandi og
harðir húsbændur nettengdir
vinnustaðir geti verið.
Frá fyrra leikári fara fimm
verk aftur á svið, Ronja ræningja-
dóttir, Viltu finna milljón?, Mann-
tafl og Alveg brilljant skilnaður að
ógleymdu verki Braga Ólafssonar,
Belgíska Kongó, sem nú verður
tekið til sýninga á ný. „Litla krútt-
lega sýningin sem við ætluðum að
vera með nokkrum sinnum heldur
áfram fjórða leikárið í röð. Rósa-
lind er alveg ódrepandi,“ útskýrir
Guðjón.
Farsælu samstarfi Íslenska
dansflokksins og Borgarleikhúss-
ins verður haldið áfram í vetur og
einnig er stefnt að öðrum uppák-
omum sem víkka út heim leikhúss-
ins, til dæmis verða kynningar á
leikskáldum, fræðsludagskrár
skipulagðar og efnt til leiklestra.
„Við erum rétt að ræsa vélina,“
segir Guðjón að lokum.
Á morgun, sunnudag, verður
opið hús í Borgarleikhúsinu milli
kl. 15 og 17 en þá verður fjölbreytt
dagskrá fyrir alla fjölskylduna
þar sem áhugasamir geta kynnt
sér vetrarstarfið og kíkt á opnar
æfingar. Leikhússtjórinn ætlar að
jafnvel að henda í nokkrar
vöfflur. - khh
Hitler, Grettir og Ronja
GUÐJÓN PEDERSEN
LEIKHÚSSTJÓRI
Sýning á verkum Guðmundar
Karls Ásbjörnssonar málara verð-
ur opnuð í Gallerí 100° á morgun
kl. 14, en tólf ár eru liðin síðan
Guðmundur sýndi síðast hér á höf-
uðborgarsvæðinu. Guðmundur
mun sýna málverk sín, en hann
kveðst innblásinn af íslenskri nátt-
úru, bæði eiginlegum fyrirmynd-
um og hinu huglæga. „Mest af
þessu eru landslagsmálverk, enda
er ég alveg heillaður af íslenskri
náttúru þegar ég er hérna heima á
sumrin. Ég hef dvalist í Þýska-
landi undanfarin ár en kem hingað
heim á vorin - svolítið eins og far-
fuglarnir,“ segir hann og bætir því
við að hann eigi sér engan sérstak-
an uppáhaldsstað en hann sé sér-
lega hrifinn af hrauninu.
Sýningin er opin frá kl. 08.30 til
16 alla virka daga. - khh
Farfugl í Gallerí 100°
GUÐMUNDUR KARL ÁSBJÖRNSSON MYNDLISTARMAÐUR Málar íslenskt landslag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA