Fréttablaðið - 02.09.2006, Síða 24

Fréttablaðið - 02.09.2006, Síða 24
 2. september 2006 LAUGARDAGUR24 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Elsku maður minn og faðir okkar, Kristján Örn Valdimarsson bifreiðastjóri, Hábergi 14, Reykjavík, áður Miðsitju, Skagafirði, varð bráðkvaddur mánudaginn 28. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 8. september kl. 15.00. Kristín Rannveig Óskarsdóttir Andri Kristjánsson Brynjar Kristjánsson Ástkæra móðir okkar, amma og langamma, Ingibjörg Júlíana Guðlaugsdóttir frá Svarfaðardal, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði sunnudaginn 27. ágúst, verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 5. september kl. 14.00. Kristín S. Einarsdóttir Hulda B. Lúðvíksdóttir Brynjar Roine Ólafur Bjarnason Guðlaugur J. Bjarnason Bjarni B. Bjarnason Andrea K. Bjarnadóttir Gutti Guttesen Ragnhildur Bjarnadóttir Jóhannes Hreggviðsson Helga M. Bjarnadóttir Jóna I. Bjarnadóttir Sæmundur Pálsson Atli Steinar Bjarnason Anna G. Bjarnadóttir Ásgeir Skúlason Bessi Bjarnason Maíbrit Jakobsen barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þórdís Gísladóttir Klapparstíg 5, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 30. ágúst. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju miðvikudaginn 6. september kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta kvenfélagið Baldursbrá eða F.S.A. njóta þess. Andrés Bergsson Arnar Andrésson Hrefna Kristín Hannesdóttir Gísli Andrésson Ingibjörg Jónsdóttir Jón Andrésson Margrét Pálsdóttir Guðrún Andrésdóttir Jakob Tryggvason ömmu- og langömmubörn. LEIKKONAN SALMA HAYEK FÆDDIST Á ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1968. „Ökuleiknin sem ég öðlaðist í Mexíkó hefur hjálpað mér að komast í gegnum Hollywood.“ Salma býr vel að reynslu æskuáranna í Mexíkó. Aðfaranótt 2. sept- ember 1666 kom upp eldur í London sem gleypti um það bil 13.200 hús, þar af 87 kirkjur, áður en yfir lauk. Bálið geisaði í fimm daga og þrátt fyrir allar hörmungarn- ar er talið að eldurinn hafi aðeins kostað sex manns lífið en hundr- að þúsund manns sátu eftir heimilislausir. Timburhús frá miðöldum voru algeng í borginni á þessum árum. Mörg þeirra voru tjöruborin, til þess að verjast rigningu, en það gerði þau vitaskuld eldfimari. Þar fyrir utan voru götur borgarinnar þröngar og húsin stóðu þétt saman þannig að eldurinn barst svo hratt milli húsa að ekki varð við neitt ráðið. Reynt var að rífa hús til þess að stöðva eldhafið en fólk hafði ekki undan þannig að hvert húsið á fætur öðru varð eldinum að bráð. Eldurinn kviknaði fyrst í ofni hjá bakaranum Thomas Farrinor en talið er að hann hafi gleymt að slökkva eldinn í bakarofni sínum með þeim afleiðingum að glóð barst í eldi- viðarstafla. Árið 1986 sáu bakarar í London ástæðu til þess að biðjast afsökunar á þessari örlagaríku gleymsku kollega síns. ÞETTA GERÐIST 2. SEPTEMBER 1666 Eldur leggur London í rúst MERKISATBURÐIR 1625 Gos hefst í Kötlu í Mýrdals- jökli. 1666 Átta týna lífi og þrettán þúsund hús í Lundúnum eyðileggjast í stórbruna. 1792 Æstur múgur sækir klerka og aðalsmenn í fangelsi Parísar og tekur þá af lífi. 1870 Napóleon III gefst upp fyrir Prússum. 1898 Vélbyssa er notuð í orrustu í fyrsta sinn. 1942 Þýskir hermenn ráðast inn í Stalíngrad. 1944 Anna Frank er send í útrým- ingarbúðirnar Auschwitz. 1945 Japanir gefast upp fyrir bandamönnum. 1982 Heimili Keith Richards brennur til kaldra kola. Borgarholtsskóli, einn yngsti framhaldsskólinn á höfuðborgarsvæðinu, var settur í fyrsta sinn þann 2. september 1996 og fagnar því tíu ára afmæli sínu í dag. Skólinn hefur stækkað töluvert á þessum árum og fjöldi nemenda meira en þrefaldast. Stefna Borgar- holtsskóla hefur alltaf verið að leggja áherslu á fjöl- breytni. „Okkar metnaður er að geta sinnt öllum þeim breiða hópi sem kemur upp úr grunnskólunum,“ segir Ólafur Sigurðsson, skóla- meistari Borgarholtsskóla. „Framhaldsskóli er í dag svo miklu meira en bara menntaskóli. Námsfram- boðið hjá okkur er þannig að það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Við bjóðum upp á starfsnám, bóknám og listnám.“ Borg- arholtsskóli er t.d. einn fárra skóla sem bjóða upp á nám í upplýsinga- og fjöl- miðlagreinum, og hann er eini skólinn sem kennir margmiðlunarhönnun. Skól- inn er jafnframt einn um að bjóða upp á nám í bíliðn- greinum. „Við viljum vera til staðar fyrir mjög fjöl- breyttan hóp og teljum að það séu mikil verðmæti að hafa spegilmynd af samfé- laginu í nemendahópnum,“ segir Ólafur. Í tilefni af afmælinu verður velunnurum skól- ans boðið til hátíðahalda í dag. „Ný kynningarmynd um skólann verður sýnd og í næstu viku verðum við með blað sem verður dreift um hverfið og víðar,“ segir Ólafur. „En meginþema afmælisins er annað og stærra,“ bætir hann við. Borgarholtsskóli hefur tekið höndum saman við ABC barnahjálp og Grafar- vogskirkju við að setja af stað fjársöfnun fyrir skóla fyrir fátæk börn í Paki- stan. „Einn kennaranna við skólann er frá Pakistan. Hann vinnur nú að því að koma upp sómasamlegu skólastarfi í fátækum hér- uðum þar í landi,“ segir Ólafur. „Við viljum styðja við bakið á honum og setj- um okkur það markmið að safna þremur milljónum. Það dugar fyrir 200 manna skóla með öllum búnaði.“ Styrktartónleikar í Grafar- vogskirkju verða hápunkt- ur söfnunarinnar sem Ólaf- ur segir standa í beinu sambandi við stefnu skól- ans: „Við störfum með það að leiðarljósi að framhalds- skóli sé fyrir alla, og ætlum okkur áfram í þá átt.“ BORGARHOLTSSKÓLI: FAGNAR 10 ÁRA AFMÆLI Nemendurnir gera skólann að dýrmætum samfélagsspegli ÓLAFUR SIGURÐSSON SKÓLAMEISTARI BORGARHOLTSSKÓLA Vill að nemendahópurinn sé spegilmynd af samfélag- inu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Allra fyrsta starfið sem ég fékk borgað fyrir var þegar ég sópaði fyrir pabba minn í prentsmiðjunni Skjaldborg á Akureyri. Ég var líklega fjögurra ára og fékk fimm kall fyrir þetta en það var nú bara í eitt skipti,“ segir Jónsi og hlær að minningunni. „Síðan hjálpaði ég systur minni stundum við að bera út en það var ekki starf sem ég var í sjálfur,“ bætir hann við og segir fyrsta alvöru starfið sitt hafa verið sem kúasmali. „Ég var í sveit nánast öll mín unglingsár hjá Ingu og Þórhalli á Kambsstöðum í Ljósavatns- skarði í Suður-Þingeyja- sýslu og það má segja að þar hafi ég lært að verða að manni,“ segir Jónsi þakk- látur. „Þar rak ég kýrnar og gekk bara alveg prýðisvel. Þær voru merkilega ljúfar við að láta reka sig, þessar blessuðu kýr. Einu sinni fékk ég að fara á hinum nítján vetra gamla hesti Garpi að reka kýrnar og var ægilega ánægður með mig alveg þangað til Garp- ur ákvað snögglega að stoppa til að bíta gras. Ég held ég hafi aldrei farið í eins glæsilegt heljarstökk og það fram af hesti. Eftir það hef ég verið mikill aðdáandi hrossakjöts,“ segir söngvarinn ástsæli og hlær. JÓN JÓSEP SNÆBJÖRNSSON: FYRSTA STARFIÐ Kúasmali varð að manni KÚASMALINN Jónsi eyddi unglingsárum sínum sem vinnumaður á Kambsstöðum þar sem hann rak kýrnar og lærði að verða að manni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA JARÐARFARIR 11.00 Sigurður Sigurðsson, Hátúni 12, verður jarðsung- inn frá Borgarneskirkju. 13.00 Leifur Hreinn Þórarinsson, bóndi Keldudal, Skagafirði, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju. 14.00 Dagbjört Torfadóttir, Hjallastræti 12, Bolungar- vík, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju. 14.00 Jón Ólafur Hermannsson, frá Flatey, Hjarðarhóli 10, Húsavík, verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju. 14.00 Margrét Karlsdóttir, Skipholti, Hrunamanna- hreppi, verður jarðsungin frá Hrunakirkju. 14.00 Jóna Guðlaug Óskars- dóttir, Illugagötu 14, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju. AFMÆLI Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður er 53 ára. Sr. Jón Helgi Þórarinsson er 49 ára.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.