Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 31
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Viktor Urbancic er mikill áhugamaður um bíla enda starfar hann sjálfur sem bílasali. Þegar vel viðrar og við sérstök tækifæri tekur Viktor fram Jagúar Mark2 árgerð 1968, en sá er ekki ósvipaður þeim sem Hall- dór Laxness átti. „Ég flutti hann inn fyrir nokkrum árum síðan frá Þýskalandi, ég hefði getað gert það frá Bretlandi en þá hefði stýrið verið öfugu megin,“ segir Viktor um bílinn sem er um það bil 200 hestöfl. „Mig hafði alltaf langað í fornbíl sem þótti líka merkilegur í gamla daga, bíl sem var ekki bara eins og hver annar bíll þá. Mér finnst stundum eins og orðið antík sé frekar ofnotað, að mínu mati eru gamlir bílar ekki alltaf það sama og antík. Þessi bíll þótti flottur þá og þykir það enn,“ segir Viktor léttur í bragði. Viktor segist lítið hafa þurft að gera fyrir bílinn síðan hann festi kaup á honum. „Það hefur verið mjög ódýrt að reka þennan bíl, hann hefur þurft lítið viðhald auk þess sem tryggingar á svona fornbílum eru ekki háar.“ Númer bílsins er MK2 en það er stytting á Mark2 sem er týpa bílsins. „Ég átti líka einkanúmerið Jagúar en það passaði illa á bílinn og gömlu svörtu númeraplöturnar pössuðu sömuleiðis ekki vel þannig að MK2 varð niðurstaðan.“ Aðspurður um hvort hann hafi viljandi keypt sér bíl eins og Laxness átti og hvort honum líki samanburðurinn svarar hann: „Nei það var ekkert svoleiðis, en ef ég er að tala um bílinn við fólk þá er nóg fyrir mig að segja að hann sé svipaður og Jagúarinn hans Halldórs, þá vita allir hvað ég er að tala um,“ segir Viktor og hlær. valgeir@frettabladid.is Laxness Jagúar Viktor segir Jagúarinn vera eftirsóttan brúðkaupsbíl enda glæsilegur bíll. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Paris Expo sýningin snýst ekki bara um bíla, heldur allt þeim skylt. Bílasýningin í París, sem fer fram dagana 28. sept- ember til 15. október, verð- ur líklega einn stærsti við- burðurinn í bílaheiminum í ár. Árið 2004 komu 1,4 milljónir gesta og 11.000 blaðamenn frá 98 löndum á sambærilega sýningu í París þar sem 500 tegund- ir frá 30 löndum voru kynntar og yfir 60 prósent frumsýndra bíla það árið voru kynntir í fyrsta sinn. Það er því mikil spenna í loftinu fyrir sýninguna þetta árið og meðal annars hefur heyrst að Porsche ætli að kynna 911 Targa 4S og 911GT3 RS bíla sína þar. Að auki munu Caym- an og Boxter S bílarnir verða sýndir með nýjum vélum. Spennan magnast Porsche mun meðal annars kynna nýja bíla og vélar á sýningunni. HERRAJAKKAR AÐ HAUSTI Senn líður á haustið og kuldinn heldur innreið sína. Nægt úrval er af fallegum og hlýjum flíkum. TÍSKA 5 GÓÐAN DAG! Í dag er laugardagurinn 2. september, 245. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 6.12 13.27 20.41 Akureyri 5.51 13.12 20.31 Höskuldsskáli í Hrafntinnuskeri verður stækkaður. Aukningin nemur tveimur álmum, en stækk- un á eldhúsi og gistiaðstöðu er hluti af henni. Sjá www.fi.is Belgíski tískuhönnuðurinn Olivier Theyskens er sagður vera í samningaviðræðum um að taka að sér listræna stjórn hjá tísku- húsi Ninu Ricci. Theyskens missti vinnu sína hjá hönnunarhúsinu Rochas þegar því var lokað af eigendunum. Fornbílasýning verður haldin í Reykjanesbæ í dag í tilefni Ljósa- nætur. Félagar Fornbílaklúbbsins munu sameinast á plani ÁTVR í Keflavík frá 14.00-14.30 en bíl- arnir aka af stað kl. 15.00 www. fornbill.is ALLT HITT [BÍLAR TÍSKA FERÐIR] TAKTU NÆSTA SKREF F í t o n / S Í A F I 0 1 5 1 2 8 ALLT A‹ 100% LÁNS HLUTFALL LÆGRI VEXTIR LÆGRA LÁNTÖKUGJALD TRYGGINGAR- FÉLAG ENGIN SKILYR‹I UM BÍLALÁN Vi› lánum fyrir n‡jum og notu›um bílum á hagstæ›um kjörum án tillits til fless hvar flú tryggir bílinn e›a hefur flín bankavi›skipti. Reikna›u láni› flitt á www.frjalsi.is, hringdu í síma 540 5000 eða sendu okkur línu á frjalsi@frjalsi.is. Við viljum að þú komist sem lengst! ÁFERÐARFALLEGUR ORKUBOLTI Brimborg frumsýnir í dag nýjan Ford Explorer Sport trac pallbíl. Bíllinn er bæði aflmikill og lipur í akstri. BÍLAR 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.