Fréttablaðið - 02.09.2006, Side 36
[ ]
Króatía verður sífellt vinsælli
ferðamannastaður hjá Íslend-
ingum. Króatía laðar ferða-
menn að vegna náttúrufegurð-
ar og mikillar fjölbreytni, en
landið hefur upp á að bjóða
allt frá merkum söfnum til sól-
ríkra stranda og jaðaríþrótta.
Balkanskaginn hefur síðustu ár
orðið vinsælli ferðamannastaður
meðal Vestur-Evrópubúa á ný
eftir að ófriðnum þar lauk. Balk-
anskaginn hefur upp á margt að
bjóða fyrir ferðamenn, ríkulega
menningararfleið, góðan mat og
fallegt umhverfi.
Króatía er eitt þeirra landa sem
Íslendingar hafa sótt heim í meiri
mæli síðustu ár hvort sem er fyrir
hefðbundnar borgarferðir eða þá
sólarlandaferðir þar sem strend-
urnar við Adríahafið freista sól-
dýrkenda.
Ferðamannastaðirnir eru víða
en ber þó helst að nefna borgirnar
Zagreb og Dubrovnik fyrir ein-
staka fegurð og ferðamannaupp-
lifun. Borgin Dubrovnik er í Suður-
Króatíu í nálægð við Svartfjallaland
og stendur við Adríahafið. Borgin
er þekkt fyrir gríðarlega náttúru-
fegurð, er gömul virkisborg og er
á heimsminjaskrá UNESCO vegna
ríks menningararfs. Borgin er
sérlega heillandi með mikið af
þröngum götum, kaffihúsum og
söfnum. Við borgina eru einnig
fallegar strendur og ýmis dægra-
stytting í boði eins og siglingar,
klettaklifur, dýfingar, köfun, skot-
veiði og stangveiði. Einnig er ekki
langt í Svartfjallaland og þá nátt-
úrufegurð sem það býr yfir.
Höfuðborg Króatíu, Zagreb, er
staðsett norðarlega í landinu.
Borgin skiptist í þrjá hluta, Gornji
Grad, sem er um þúsund ára gam-
all bæjarhluti, Donji Grad, nítj-
ándu aldar hverfi sem hefur að
geyma fallega garða og góð veit-
ingahús, en mikið gætir af
ítölskum áhrifum í matargerðinni,
og Novi Zagreb eða Nýja-Zagreb,
nútímahverfi með háum bygging-
um. Því er óhætt að segja að Zag-
reb hafi upp á margar ólíkar sýnir
að bjóða fyrir ferðamenn. Í Zag-
reb er einnig hægt að versla hrein
býsn enda úrvalið mikið og verð-
lagið lágt.
Króatía er sannarlega áfanga-
staður sem vert er að athuga þegar
ákveðið er hvert skal haldið í
næsta frí.
Nokkrar haustferðir verða farnar
með íslenskum ferðaskrifstofum
næstu mánuði og einnig verða
ferðir næsta vor.
johannas@frettabladid.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR MÁ FINNA
Á EFTIRFARANDI SÍÐUM:
http://www.visit-croatia.co.uk/zagreb/
http://www.dubrovnik-online.com
http://www.croatia.hr
www.plusferdir.is
www.exit.is
www.netferdir.net
www.baendaferdir.is
www.heimsferdir.is
Fjölbreytt ferðamannaperla
Kringum gamla hverfið í Dubrovnik liggur
virkisveggur sem reistur var á 15. öld.
Dubrovnik í Króatíu við Adríahaf. Þetta hverfi var byggt á sjöundu öld og einkennist af
rauðum þökum.
Zagreb í Króatíu er sannkölluð stórborg með ríku menningarlífi, iðandi mannlífi, góðum veitingastöðum og verslunargötum.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Nú hafa reglur um handfarangur verið verulega hertar. Leitið
upplýsinga um hvernig málum er háttað hjá flugfélaginu sem þið ferðist
með og til þess lands sem þið eruð að fara, áður en lagt er af stað.
pi
pa
r
/
S
ÍA
Fyrst í fjallið
Þú ert í forgangi hjá Avis
Bílaleigubíll í Þýskalandi
Vika á flokk I Opel Vectra station eða sambærilegum bíl 333 Evrur.
Innifalið í verði: ótakmarkaður akstur, kaskó og
þjófatrygging, flugvallargjald og skattar.
til Würzburg
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
Þýskaland er land jólamarkaðanna og bjóðum við nú jólaferð til Würzburg
sem er einstaklega heillandi borg og skartar sínu fegursta í desember.
Hrein upplifun er að fara á jólamarkaðina sem geyma ótal jólagjafahug-
myndir; bragða á jóladrykknum „Glühwein“ og jólastemmingin eykst á
hverju horni. Úrval veitingastaða er gott, hótelið þægilegt og staðsett
miðsvæðis. Spennandi skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber.
í Þýskalandi
30. nóvember - 3. desember 2006
7. - 10. desember 2006
14. - 17. desember 2006
Verð kr. 64.900 á mann í tvíbýli
Innfalið: Flug, skattar, gisting í tveggja manna herbergi á 3* hóteli
með morgunverði í 3 nætur, ferðir milli flugvallar og hótels,
skoðunarferð til Rothenburg ob der Tauber og íslensk fararstjórn.
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
Íslendingar og útlendingar fá allar upplýsingar á ensku um allt það sem heimsborgin Reykjavík státar af á hverjum
tíma.; menningarviðburðir, tónleikar, skemmtistaðir, veitingastaðir, söfn, gallerí, tíska, verslanir og næturlíf.
Líka fyrir þig; lífið, fréttirnar og fjörið á ensku