Fréttablaðið - 02.09.2006, Page 44
■■■■ { hausttíska } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
Tískan er ekki það eina sem breyt-
ist með árstíðunum því með nýrri
tísku kemur nýtt útlit og þar af
leiðandi breytist förðunin í takt
við tíðarandann. Við spurðum Sól-
eyju Ástudóttur, förðunarfræðing
og eiganda förðunarskólans Emm
school of Make Up, um hvað væri
mest í tísku fyrir haustið og vetur-
inn í förðunargeiranum.
„Veturinn verður kraftmikill og
ögrandi. Öfgarnar verða miklar eins
og dökkar varir og ljós augu eða
dökk augu og ljósar varir,“ segir
Sóley og bætir því við að „nineties“-
útlitið sé líka að koma í förðuninni
sem og í tískunni. Það þýðir að blóð-
og dumbrauðir varalitir og dökkur
litur verður mikið áberandi og brýst
út í allskyns formum. Sóleyju finnst
mikil breyting vera á milli sumars
og vetrar þetta árið. „Í sumar erum
við búnar að vilja vera með brons-
litaða húð, bláu augnskugga, gloss
og mikið af sólarpúðri. Núna snýst
allt við og ljós húð verður aðal-
málið. Við getum loksins farið að
minnka brúnkukremið,“ segir Sóley
en aðalhlutirnir að hennar mati
eru mött og föl húð ásamt svörtum
eyeliner og miklum maskara. Auga-
brúnirnar verða meiri áberandi og
nú er málið að vera með þykka
brúska yfir augunum í stað þunnra
mótaðra augabrúna.
Litirnir í augnskuggum eru oft-
ast þeir sömu og í fötum en fjólu-
blár og vínrauður verður áberandi
ásamt auðvitað svörtum sem passa
vel við hið rokkaða og druslulega
útlit sem er að koma aftur. „Það
má eiginlega segja að sætleikinn sé
að hverfa og fullorðinsútlitið sé að
koma meira inn.“
Sætleikinn hverfur í haust
Förðunin í vetur verður kraftmikil og ögrandi, með miklum andstæðum. Þá verða blóð
og dumbrauðir varalitir áberandi.
Maskarar fá veigameira hlutverk á komandi
vetri þar sem mikil og kolsvört augnhár
verða málið.
Svart svart og aftur svart. Liturinn sem
verður í forgrunni í förðuninni í vetur í
bland við rauðan og fjólubláan.
Sóley Ástudóttir segir að sætleikinn hverfi í vetur í förðuninni og fullorðinsútlitið verði inni
með rauðum vörum og svörtum augnskugga. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Í fjölmörgum verslunum fást mjög flott nátt-
föt og vinsældir þeirra aukast stöðugt. Nátt-
buxurnar eru sérstaklega vinsælar vegna þess
hversu þægilegt er að vera í þeim heima við og
yngri stelpurnar eru jafnvel farnar að ganga í
þeim utandyra. Við náttbuxurnar er yfirleitt
hægt að fá fallega hlýraboli eða stutta nátt-
kjóla svo lítil hætta er á að einhverjum verði
of heitt á nóttunni. -emo
Debenhams.
2.990 krónur.
Debenhams. Kjóll.
3.990 krónur. Buxur
3.490 krónur.
Debenhams. Buxur
2.790 krónur. Bolur
1.490 krónur.
Topshop. 2.990 krónur.
Topshop. 3.690 krónur. Topshop. 1.990 krónur.
Topshop. 2.690 krónur.
NÝJAR
VÖRUR
FRÁ
Opið mán-fös. 11-18 laug. 11-15
Laugavegi 63 • s: 551 4422
Sjáið sýnishorn á laxdal.is
Glæsilegir stuttir
ullarjakkar frá
FUCHS & SCHMITT
Úrval af
haustyfirhöfnum
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Notaleg náttföt
Krúttleg bómullarnáttföt eru vinsæl hjá ungum
stelpum og konum.
Topshop. 3.990 krónur.