Fréttablaðið - 02.09.2006, Side 88
52 2. september 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðskona í
knattspyrnu, er gengin til liðs við danska
úrvalsdeildarliðið Fortuna Hjörring. Deild-
arkeppnin er nýbyrjuð í Danmörku og For-
tuna Hjörring er sem stendur í öðru sæti
með markatöluna 16:0 eftir þrjá leiki
og hefur unnið alla sína leiki til þessa.
Hólmfríður verður því ekki með KR
í síðasta leik liðsins í sumar þegar
liðið mætir Fylki en hún er hins
vegar gjaldgengi í leik með Fortuna
á morgun þegar það mætir BK Skjold.
„Ég var reyndar búin að segja nei við
þá áður en svo fóru þeir að pressa
meira á mig og ég ákvað bara að slá
til,“ sagði Hólmfríður í samtali við
Fréttablaðið í gær. „Ég samdi bara til
þriggja mánaða og svo verður málið
endurskoðað. Ef þeim líst
vel á mig fer ég líklega
aftur út,“ sagðir Hólmfríð-
ur. Danska deildarkeppn-
in er þannig að henni er
skipt í haust- og vorhluta.
Hausthlutinn byrjaði
12. ágúst og lýkur 19.
nóvember. Vorhlutinn
hefst 1. apríl 2007 og
mótið endar síðan
10. júní.
„Ég veit eiginlega ekki neitt um danska
boltann. En ég veit samt að þetta lið vann
bikarkeppnina í fyrra og var í öðru sæti í
deildinni í fyrra. Þetta lið er að berjast í
toppbaráttunni,“ sagði Hólmfríður.
„Ég hlakka bara til að fara út en ég fer út
í fyrramálið. Það er brjálað að gera,“ sagði
þessi efnilega knattspyrnukona í gær. „Það
er leikur á sunnudaginn en ég geri svo
sem ekki vonir um að spila hann, enda
ekki búin að mæta á æfingu ennþá.“
Hólmfríður verður 22 ára síðar í þessum
mánuði og á vonandi bjarta framtíð fyrir
sér í fótboltanum.
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR: ER Á FÖRUM TIL DANMERKUR AÐ SPILA MEÐ EINU BESTA LIÐI LANDSINS
Gerði samning við Fortuna Hjörring
> För Garðars frestað
Garðar Jóhannsson, knattspyrnumaður hjá Val, fer ekki
til Fredrikstad strax eins og vonir stóðu
til. Ekki er þó loku fyrir það skotið að
Garðar fari til norska liðsins í janúar
þegar opnað verður fyrir leikmanna-
kaup að nýju. „Ég reikna með að
klára tímabilið með Val,“ sagði
Garðar. „Ég var nú samt búinn að
skrifa undir samning og ég veit
ekki hvort hann detti upp fyrir eða
hvað“.
„Þetta mál var bara sett í biðstöðu
og norska liðið stefnir á að fá til
sín í janúar,“ sagði Arnór Guðjohn-
sen, umboðsmaður Garðars.
FÓTBOLTI Varnarmennirnir Kristj-
án Örn Sigurðsson og Ólafur Örn
Bjarnason hjá Brann, toppliði
norsku úrvalsdeildarinnar, eiga
við meiðsli að stríða og verða ekki
leikfærir í dag er Ísland mætir
Norður-Írum í Belfast. Þetta stað-
festi Eyjólfur Sverrisson lands-
liðsþjálfari á blaðamannafundi
eftir æfingu liðsins á Windsor
Park í gær. „Ólafur er meiddur á
hásin og Kristján á ökkla. Þeir eru
því ekki í myndinni fyrir leikinn,“
sagði Eyjólfur en auk þess meidd-
ist Daði Lárusson á æfingunni í
gær og verður ekki leikfær í dag.
Kristján Finnbogason var í hans
stað kallaður til og hélt hann utan
í gærkvöldi.
Landsliðsfyrirliðinn Eiður
Smári Guðjohnsen var aftur á móti
vel fyrir kallaður og klár í slaginn.
„Það er alltaf gaman að hitta strák-
ana og tala sitt eigið tungumál
fyrir það fyrsta,“ sagði Eiður í létt-
um dúr. „Það má þó reikna með
erfiðum leik. Norður-Írar eru erf-
iðir heim að sækja og hafa bætt
sinn leik mikið, sérstaklega á
heimavelli. Það ríkir sjálfstraust í
liðinu en við þurfum að byrja vel
og eigum alltaf möguleika á þrem-
ur stigum í leiknum. Ég reyni að
gera mitt besta og skora sem flest
mörk,“ sagði Eiður.
Hann sagði að breytingin frá
Chelsea til Barcelona hefði gengið
afar vel og hann aðlagast lífinu í
Barcelona vel. „Það tekur auðvit-
að tíma að læra nýtt tungumál en
ég er fullur sjálfstrausts eftir að
hafa skorað sigurmarkið í fyrsta
deildarleik liðsins og líður mjög
vel. En það eru vissulega tveir
heimar að spila fyrir Barcelona og
íslenska landlsiðið enda ríkja
öðruvísi áherslur í liðunum. Það
er búist við miklu af mér á báðum
stöðum og ég reyni að gera mitt
besta.“
Eyjólfur sagði að markmið
landsliðsins snerust alltaf um að
gera vel í næsta leik. „Við ætlum
okkur að safna stigum og klífa upp
styrkleikalistann. Við búumst við
mjög erfiðum leik og verðum að
vera 100% tilbúnir ef við ætlum
okkur eitthvað úr honum.“
Hermann Hreiðarsson hefur
farið fyrir varnarleik íslenska
liðsins sem gekk illa í síðustu
undankeppni en honum líst betur
á stöðu mála nú. „Það ríkja nýjar
áherslur í varnarleiknum auk þess
sem að í síðustu keppni voru marg-
ir ungir leikmenn að stíga sín
fyrstu skref. Þeir eru þó vel skól-
aðir nú en vissulega þarf að stoppa
í þessi göt í vörninni. Það gengur
ekki að fá á sig þrjú mörk í hverj-
um einasta leik,“ sagði Hermann.
Eiður tók undir þetta. „Það er
mikilvægast af öllu að sinna
varnarleiknum vel og allt annað
kemur aukalega.“
Hann er við það að slá marka-
met Ríkharðs Jónssonar með
íslenska landsliðinu og vantar eitt
mark til að jafna árangur Rík-
harðs. Eiður segist vita vel af því
og vonast til að slá það sem fyrst.
„Ég lofa því ekki endilega á morg-
un en að slá metið myndi vissu-
lega gefa mér sjálfstraust auk
þess sem öll mörk hjálpa liðinu.
En hvort sem ég skora í þessum
leik eða einhver annar skiptir
engu máli. Ég myndi glaður fórna
metinu fyrir þrjú stig í þessum
leik.“
Myndi glaður fórna marka-
metinu fyrir þrjú stig
Eiður Smári Guðjohnsen er klár í slaginn gegn Norður-Írum en íslenska lands-
liðið æfði í gær á Windsor Park þar sem liðið mætir Norður-Írum í dag. Kristján
Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason eru meiddir og verða ekki með í dag.
SPRETTIR Íslensu strákarnir tóku vel á
því á Windsor Park í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KLÁRIR Í SLAGINN Hermann Hreiðarsson, Eyjólfur Sverrisson og Eiður Smári Guð-
johnsen sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Belfast í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
N-ÍRLAND - ÍSLAND
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
skrifar frá Belfast.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
FÓTBOLTI Seint á fimmtudagskvöld-
ið áttu sér stað stórviðskipti í
enska boltanum þegar Ashley Cole
yfirgaf Arsenal og gekk í raðir
Chelsea. Cole hefur verið orðaður
við Chelsea ótrúlega lengi og
margir hverjir orðnir langþreyttir
á þeim orðrómi.
Ekki er þó sagan öll því William
Gallas gekk upp í kaupin og mun
klæðast treyju Arsenal í framtíð-
inni, auk þess sem Chelsea borg-
aði Arsenal 5 milljónir punda.
„Chelsea og Arsenal hafa geng-
ið frá viðskiptum á þeim Ashley
Cole og William Gallas, auk þess
sem Chelsea borgar Arsenal 5
milljónir punda. Báðir leikmenn
hafa samþykkt samninga og stað-
ist læknisskoðun,“ sagði í yfirlýs-
ingu frá ensku úrvalsdeildinni í
gær.
- dsd
Umtöluð félagaskipti gengu í gegn á síðustu stundu.:
Ashley Cole til Chelsea og Willi-
am Gallas til Arsenal
ASHLEY COLE Er hér á landsliðsæfingu
með Englendingum á fimmtudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Hafnfirðingurinn
Hannes Þ. Sigurðsson gekk í
vikunni frá þriggja ára samn-
ingi við danska úrvalsdeildar-
liðið Bröndby og lýsti yfir
ánægju sinni við Fréttablaðið í
gær með að hafa gengið frá mál-
inu áður en félagaskiptaglugg-
inn lokaðist um mánaðamótin.
„Bröndby er stórt og metnaðar-
gjarnt félag og er með spenn-
andi og góðan þjálfara í þokka-
bót,“ sagði Hannes eftir æfingu
með íslenska landsliðinu í gær.
Hann var einnig orðaður við
Viking, sitt gamla félag í Noregi,
en hann vildi ekki fara þangað.
„Okkur leið vel í Noregi en við
vorum þar síðast fyrir ári síðan
og hefði það verið of snemmt að
fara aftur þangað. Enda kom
ekkert annað til greina eftir að
Bröndby kom til sögunnar,“ sagði
Hannes, sem hefur leikið með
Stoke City í Englandi undanfarið
ár. - esá
Hannes Þ. Sigurðsson sáttur við Bröndby:
Stórt og metnaðargjarnt félag
Viltu læra aðferðir sem raunverulega breyta lífi þínu?
Námskeið í NLP tækni.
Upplýsingar á www.ckari.com & í síma: 894-2992
Hugurinn ber þig alla leið
þjálfarar
“Knattspyrnudeild Þróttar leitar að metnaðarfullum
þjálfurum fyrir yngri fl okka félagsins fyrir knatt-
spyrnutímabilið 2006-2007.
Þjálfaramenntun og reynsla skilyrði, ekki skemmir
fyrir að viðkomandi sé vel köttaður . Knattspyrnude-
ild Þróttar er ein sú fjölmennasta á landinu.
Umsóknir og upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist á netfangið smj@trottur.is þar sem jafnframt
eru gefnar nánari upplýsingar”