Fréttablaðið - 05.09.2006, Qupperneq 23
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sandra Sif Morthens er í hlaupahópi
Avion Group og flugfélagsins Air
Atlanta sem ætlar sér stóra hluti um
næstu áramót.
„Við vildum taka þátt í Reykjavíkurmaraþon-
inu, en aðeins einn í hópnum var í nógu góðu
formi til þess svo við hinum sátum eftir með
sárt ennið,“ segir Sandra um aðdragandann
að stofnun hópsins. „Þegar annar horfði síðan
á eftir syni sínum í maraþonið var mælirinn
fullur og við drifum okkur út í sameiginlegt
átak starfsmanna Avion Group og Air Atl-
anta.“
Hlaupahópurinn, sem samanstendur af
sex konum og körlum á aldursbilinu 26-50
ára, hefur hist síðan Reykjavíkurmaraþoninu
lauk og hleypur þrisvar sinnum í viku eftir
æfingaáætlun sem Sigurður Pétur Sigmunds-
son hannaði. „Við skokkum mestmegnis en
tökum líka spretti, hraða- og styrktaræfing-
ar,“ segir Sandra. „Markmiðið er að hlaupa 10
km gamlárshlaup ÍR, en í bili látum við okkur
nægja að brjóta fimm km múrinn.“
Átakið lýtur þó ekki aðeins að góðri hreyf-
ingu heldur breyttu mataræði. „Ávaxtabíllinn
kemur einu sinni í viku til okkar og blandari
var keyptur undir prótíndrykki,“ segir Sandra
hlæjandi og bætir við að það sé af sem áður
var þegar alls kyns þungmetis var neytt.
„Regluleg hvatningarverðlaun eru veitt sem
halda manni við efnið, svo við ættum að vera
í fínu formi um áramótin.“ roald@frettabladid.is
Í heilsuátaki með
vinnufélögunum
Sandra er í hlaupahópi hjá Avion Group og Air Atlanta, og auk þess að hlaupa reglulega heldur hópurinn úti öflugri heimasíðu eingöngu ætlaða meðlimum.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Evrópusambandið mun fljótlega
banna notkun sextíu og þriggja
efna sem notuð
eru í hárlitun-
arvörur á
vettvangi
sínum,
sam-
kvæmt því
sem kemur
fram í frétt á vef
Umhverfisstofnunar,
http://www.umhverf-
isstofnun.is. Efnin sem til stendur
að banna eru talin skaða bæði
almenna neytendur og starfsfólk
á hárgreiðslustofum og var
ákvörðunin tekin í kjölfar.
NordForsk mun í samvinnu við
norræna rannsóknarsjóði veita
um það bil 2,3 milljónum evra
árlega til verkefnisins Matvæli,
næring og heilsa – norrænt önd-
vegissetur 2006-2011 á meðan
það stendur yfir. Þann 1. sept-
ember síðastliðinn var umsókn-
arfrestur í verkefnið opnaður og
verður hann til 23. október næst-
komandi. Nánari upplýsingar má
finna á http://www.nordforsk.
org og vef Rannís, http://www.
rannis.is.
Ráðstefna um tóbaksvarnir
verður haldin í Reykjanesbæ
14.-15. september næstkom-
andi. Ráðstefnan ber yfirskriftina
LOFT 2006 og áherslur hennar
að þessu sinni verða reyklausir
vinnustaðir og óbeinar reykingar.
ALLT HITT
[ HEILSA ]
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
6.21 13.26 20.30
6.01 13.11 20.19
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
5. september, 248. dagur
ársins 2006. Bóluefni fækkar dauðsföllum
TÖLVULÍKAN TELUR LÍKLEGT AÐ NÝTT BÓLUEFNI FÆKKI DAUÐS-
FÖLLUM AF VÖLDUM KRABBAMEINS Í HÁLSI UM 75 PRÓSENT.
Samkvæmt breskri
rannsókn getur dauðsföllum
að völdum krabbameins í
hálsi fækkað um 75 prósent
ef allar tólf ára stúlkur verða
bólusettar.
Bóluefnið sem um ræðir
vinnur á móti tvenns
konar papillomavírusum,
sem meðal annars valda
vörtum og ráðast einna
helst á skinn og slímhúð. Í
rannsókninni var tölvulíkan
notað til að spá fyrir um
afleiðingar þess að gefa
öllum breskum tólf ára
stúlkum bóluefnið, alls
376.385 stúlkum.
Miðað við tölur sem fyrir liggja um krabbamein í hálsi reiknaðist
tölvunni til að eftir bólustningu yrðu dauðsföll 262 á ári, á móti
um 1.000 miðað við núverandi ástand. Þá myndi nýjum tilfellum
fækka úr 2.841 niður í 682.
Nýtt bóluefni gegn krabbameini í
hálsi lofar góðu.
JAÐARÚTGÁFA AF
ÍÞRÓTTAÁLFINUM
Kajakmaðurinn Mummi segir
jaðaríþróttir snúast um útreiknaða
áhættu og að hræðsla hefti fólk í
öllu sem það gerir. HEILSA 2
AÐ KLJÁST VIÐ NETFÍKN
Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur skrifar um
áhættuþætti netfíknar.
HEILSA 4