Fréttablaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 14
14 5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
SVEITARSTJÓRNARMÁL Búið er að
velja eða ráða sveitar- eða bæjar-
stjóra í 64 af 79 sveitarfélögum
landsins síðan í sveitarstjórnar-
kosningunum nú í maí. Af þessum
64 sveitarstjórum eru 16, eða
fjórðungur, konur og 48 karlmenn,
samkvæmt
upplýsingum
frá félags-
málaráðuneyt-
inu.
Konur eru
sveitarstjórar
í tveimur af
tuttugu
stærstu sveit-
arfélögum
landsins. Þar
er Mosfells-
bær fjölmenn-
astur, en sveit-
arfélagið
Árborg næst-
fjölmennast.
Helga Jóns-
dóttir tekur
við embætti
bæjarstjóra
Fjarðabyggð-
ar í þessum
mánuði og
verða þá konur
sveitarstjórar
í þremur af
tuttugu stærstu sveitarfélögum
landsins. Karlmenn eru borgar-
eða bæjarstjórar í sex stærstu
sveitarfélögunum, Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri,
Reykjanesbæ og Garðabæ.
„Þeir sem verða sveitarstjórar
eru ýmist pólitískt kjörnir, sem
efstu menn á lista, eða ráðnir inn,“
segir Stefanía Katrín Karlsdóttir,
bæjarstjóri í Árborg. „Mér sýnist
þessi skipting endurspegla hlut
kvenna í stjórnunarstöðum í
atvinnulífinu. Þetta er kynjaskipt-
ing innan samfélagsins í hnot-
skurn, sýnist mér. Mér finnst að
alltaf eigi að ráða hæfasta ein-
staklinginn til starfa, en hvort
karlmenn eru hæfastir í þremur
af fjórum tilvikum hef ég ekki
hugmynd um.“
Alls búa 27.289 Íslendingar í
sveitarfélögum undir stjórn kven-
kyns sveitarstjóra. Það er um níu
prósent af heildarfjölda Íslend-
inga.
„Við teljum að jafnrétti hafi
verið náð þegar hvorugt kynið
hefur minni hlut en fjörutíu pró-
sent í sveitarstjórnum,“ segir
Hugrún R. Hjaltadóttir, sérfræð-
ingur hjá Jafnréttisstofu.
„Það virðist vera sem konur nái
ekki yfir þrjátíu prósentin í
íslensku samfélagi. Tilhneigingin
með röðun á lista var mikið til sú
að karlmenn væru í 1. sæti og
konur 2. sæti. Þá segir sig sjálft að
það sé ólíklegra fyrir konur að
komast í áhrifastöður. Auðvitað
þurfa að vera fleiri konur í for-
svari fyrir sveitarstjórnir. Þetta
er slæm staða,“ segir Hugrún.
steindor@frettabladid.is
Fjórðungur
sveitarstjóra
er konur
Konur eru bæjarstjórar í tveimur af tuttugu fjöl-
mennustu sveitarfélögum landsins, Mosfellsbæ og
Árborg. Sextán konur eru sveitarstjórar á landinu,
en sveitarfélög landsins eru 79.
HUGRÚN R. HJALTA-
DÓTTIR
STEFANÍA KATRÍN
KARLSDÓTTIR
��������������
�����������������������
��� �������������������������
�����
������
��
��
MAMMÚTASTÓLL Þessi risastóll
sænska fyrirtækisins Ikea er til sýnis í
verslunarmiðstöð í Yokohama borg í
Japan, þar sem ný verslun Ikea verður
opnuð á næstunni. Stóllinn er um níu
sinnum stærri en litlu bræður hans,
sem passa drengnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAGSMÁL Mikilvægt er að sú
umræða sem verið hefur um Aust-
urland undanfarin ár nýtist til
jákvæðrar kynningar á landshlut-
anum og hjálpi til við að skjóta
fleiri stoðum undir atvinnu- og
félagslíf. Þetta var eitt af því sem
fram kom á byggðaþingi undir
yfirskriftinni Lífið eftir virkjun
sem haldið var á Hallormsstað um
helgina.
Þórarinn Lárusson, formaður
Framfarafélags Fljótsdalshéraðs,
segir að um sjötíu manns hafi
verið skráðir á byggðaþingið þar
sem fólk alls staðar af landinu hélt
fyrirlestra. „Á þinginu var þátt-
takendum skipt í umræðuhópa þar
sem meðal annars var fjallað um
atvinnuvegi, náttúru, þjónustu-
greinar og nýsköpun á svæðinu.
Niðurstöður umræðnanna voru
meðal annars þær að hlúa þurfi að
aukinni menntun í fjórðungum til
dæmis með eflingu fjarkennslu.
Þá er mikilvægt að efla atvinnulíf
og að ný atvinnutækifæri skapist
fyrir þá sem nú starfa við tíma-
bundnar framkvæmdir.“
Þórarinn segir mikilvægt að
gera sem minnst úr lægðinni sem
búast má við í lok virkjanafram-
kvæmda og búa þannig um hnút-
ana að áframhaldandi uppgangur
verði í fjórðungnum.
Þórarinn segir mikilvægt að
hugmyndir hins almenna borgara
um framtíð fjórðungsins séu ekki
slegnar út af borðinu heldur tekn-
ar með í umræðurnar. -hs
Rætt var um lífið eftir virkjun á byggðaþingi sem haldið var á Hallormsstað:
Efling atvinnulífs mikilvæg
ATLAVÍK Ein af náttúruperlum Austur-
lands en náttúra á svæðinu var eitt af
umræðuefnum þingsins.
AÐSTOÐ Íslensk stjórnvöld munu
veita sem svarar tuttugu
milljónum króna til neyðar- og
mannúðaraðstoðar í Darfúr-
héraði í Súdan, samkvæmt
ákvörðun Valgerðar Sverrisdótt-
ur utanríkisráðherra.
Af fjárhæðinni fer annars
vegar sex milljóna króna
styrkur til Hjálparstarfs
kirkjunnar vegna hjálparstarfs
alþjóðasamtaka kirkna í Darfúr.
Hins vegar rennur tæplega
fjórtán milljóna króna styrkur
til neyðaraðstoðar í Darfúr á
vegum Matvælaáætlunar
Sameinuðu þjóðanna. - sdg
Neyðaraðstoð til Darfúr:
20 milljónir frá
íslenska ríkinu
KVENKYNS SVEITARSTJÓRAR Á ÍSLANDI
Sveitarfélög þeirra og íbúafjöldi
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Mosfellsbær 7.266
Stefanía Katrín Karlsdóttir, Árborg 7.095
Aldís Hafsteinsdóttir, Hveragerði 2.120
Svanfríður Inga Jónasdóttir, Dalvík 1.937
Unnur Brá Konráðsdóttir, Rangárþing eystra 1.686
Oddný Guðbjörg Harðardóttir, Garður 1.400
Erla Friðriksdóttir, Stykkishólmur 1.167
Sigríður Finsen, Grundarfjörður 972
Jóna Fanney Friðriksdóttir, Blönduós 910
Margrét Sigurðardóttir, Flóahreppur 528
Ásdís Leifsdóttir, Strandabyggð 505
Guðrún María Valgeirsdóttir, Skútustaðahreppur 410
Guðný Sverrisdóttir, Grýtubakkahreppur 368
Sigríður Þorsteinsdóttir, Grímsnes- og Grafningshr. 364
Eyrún I. Sigþórsdóttir, Tálknafjörður 305
Ólína Arnkelsdóttir, Aðaldælahreppur 256