Fréttablaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 51
ÞRIÐJUDAGUR 5. september 2006 39
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
sló rækilega í gegn í sínum fyrsta
leik með Barcelona í spænsku
deildinni, en hann skoraði sigur-
markið gegn Celta Vigo. Félag
hans kynnir Eið rækilega til leiks
á heimasíðu sinni þessa dagana.
Eiður var í athyglisverðu
spjalli á heimasíðunni í gær þar
sem hann ræddi meðal annars
um hvernig það yrði fyrir hann
að mæta Chelsea í Meistaradeild-
inni með Barcelona.
„Ég var ánægður þegar ég sá
að við áttum að leika gegn Chel-
sea. Ég get ekki neitað því að það
verður skrítið að mæta Chelsea
því ég lék svo lengi með liðinu,“
sagði Eiður Smári við heimasíðu
Barcelona en hvernig heldur
hann að verði tekið á móti sér á
Stamford Bridge?
„Ég vona að það verði tekið
vel á móti mér. Ég hef talað um
þá virðingu sem ég ber fyrir
Chelsea, ég var ánægður hjá lið-
inu og mér leið vel allan þann
tíma sem ég var í herbúðum þess.
Svo náðum við fínum árangri á
síðustu tveim árum þannig að ég
vona að stuðningsmennirnir taki
vel á móti mér,“ sagði Eiður en
hann ætlar eðlilega að láta þjálf-
ara Barcelona, Frank Rijkaard, í
té upplýsingar um Chelsea og
leikaðferðir liðsins.
Eiður talar í viðtalinu einnig
um það hversu vel hafi verið
tekið á móti sér hjá félaginu og
hann imprar einnig enn og aftur
á því að ekki sé hægt að bera
hann og Henrik Larsson saman.
Eiður talar einnig um hversu
mikill heiður það sé fyrir sig að
leika með landsliðinu.
„Ég verð alltaf að muna hvað-
an ég kem og fyrir mér er það
heiður að leika fyrir Ísland. Ég er
fyrirliði landsliðsins og fólkið
heima ætlast til mikils af mér.
Við strákarnir í landsliðinu verð-
um alltaf að gefa allt í leikina og
þá verður íslenska þjóðin ham-
ingjusöm. Annars er mikill
munur á því að leika fyrir Barce-
lona og Ísland því með Barcelona
er sótt grimmt til sigurs en það
er ekki hægt með íslenska lands-
liðinu,“ sagði Eiður Smári.
- hbg
Eiður Smári í viðtali á heimasíðu Barcelona:
Verður skrítið að
leika gegn Chelsea
EIÐUR SMÁRI Segist vera stoltur af uppruna sínum og að það sé heiður að leika fyrir
íslenska landsliðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
KÖRFUBOLTI Guðjón Skúlason,
landsliðsþjálfari kvenna, valdi í
gær sextán manna leikmannahóp
sem mun taka þátt í Evrópukeppni
landsliða. Þetta er í fyrsta skipti
sem Ísland tekur þátt í þessari
keppni en fyrsti leikurinn er gegn
Hollandi í Rotterdam um næstu
helgi.
Fimm nýliðar eru í leikmanna-
hópi Guðjóns en þeir eru Hauka-
stelpurnar Pálína Gunnlaugsdótt-
ir, Hanna Hálfdánardóttir og
Sigrún Ámúndadóttir, Grindvík-
ingurinn Jovana Stefánsdóttir
kemur einnig ný inn í hópinn sem
og Keflvíkingurinn Margrét Kara
Sturludóttir en hún er yngsti leik-
maður liðsins, aðeins 16 ára að
aldri. - hbg
HÓPURINN:
HELENA SVERRISDÓTTIR HAUKAR
HILDUR SIGURÐARDÓTTIR GRINDAVÍK
KRISTRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR HAUKAR
PÁLINA GUNNLAUGSDÓTTIR HAUKAR
STELLA RÚN KRISTJÁNSDÓTTIR ÍS
BIRNA VALGARÐSDÓTTIR KEFLAVÍK
BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR KEFLAVÍK
JOVANA STEFÁNSDÓTTIR GRINDAVÍK
MARGRÉT KARA STURLUDÓTTIR KEFLAVÍK
PETRÚNELLA SKÚLADÓTTIR GRINDAVÍK
SIGRÚN ÁMUNDADÓTTIR HAUKAR
ÞÓRUNN BJARNADÓTTIR ÍS
HANNA HÁLFDÁNARDÓTTIR HAUKAR
HELGA JÓNSDÓTTIR ÍS
MARÍA BEN ERLINGSDÓTTIR KEFLAVÍK
SIGNÝ HERMANNSDÓTTIR ÍS
Körfuboltalandslið kvenna:
Fimm nýliðar
hjá Guðjóni
HELENA SVERRISDÓTTIR Í hópnum sem
fer til Hollands.
GOLF Danski kylfingurinn vandaði
Walesverjanum Ian Woosnam ekki
kveðjurnar í gær eftir að sá síðar-
nefndi hafði sniðgengið Danann í
vali sínu á Ryder-liði Evrópu.
Woosnam, sem er fyrirliði Evr-
ópuliðsins, valdi Englendinginn
Lee Westwood og Norður-Írann
Darren Clarke sem síðustu menn í
liðið og skildi Björn eftir heima.
„Mér er misboðið. Mér finnst
þetta mjög dapurt hjá Woosnam.
Hann er ekki vinur minn lengur
og ég á ekki í vandræðum með að
játa það,“ sagði Björn fjúkandi
vondur og hélt áfram.
„Ég á rétt á minni skoðun og
þarf ekki að sitja á henni. Woosnam
hefur ekki verið sá fyrirliði sem
ég var að vonast til að hann yrði.
Hann hefur komið illa fram við
marga með því að tala ekki við þá.
Hann hringdi aldrei í mig. Hann
kom inn á barinn á hótelinu sem
ég var á og á stuttum tuttugu sek-
úndum sagði hann mér að ég væri
ekki í liðinu og svo hvarf hann á
brott. Það að hann hafi tjáð mér
um ákvörðunina á bar segir allt
sem segja þarf.“ - hbg
Thomas Björn brjálaður:
Woosnam er
enginn fyrirliði
THOMAS BJÖRN Svekktur yfir því að hafa
ekki komist í Ryder-liðið.