Fréttablaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 26
5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Hreyfiland er fjölskyldu- og
barnvæn heilsuræktarstöð
þar sem boðið er upp á ýmiss
konar leikfimi fyrir börn og
foreldra. Í vetur verður einnig
boðið upp á tónlistarnámskeið
fyrir ungabörn í Hreyfilandi.
Tónlistarnámskeiðin í Hreyfilandi
eru hugsuð fyrir þriggja til tólf
mánaða gömul börn. „Ungabörn
eru mjög næm á tónlist, sérstak-
lega klassíska tónlist og fallega
tónlist,“ segir Krisztina G. Agu-
eda, eigandi og framkvæmdastjóri
Hreyfilands.
Á tónlistarnámskeiðunum munu
börnin hlusta mikið á tónlist og
syngja með foreldrum sínum.
„Kennarinn spilar á gítar og það
verður mikið um lifandi tónlist í
tímunum sem eru fjörtíu og fimm
mínútur í senn. Foreldrarnir fá
síðan geisladisk með lögunum með
sér heim svo að börnin geta hlust-
að á hann þar,“ segir Krisztina. - eö
Tónlist fyrir börn
Í hreyfilandi er margt í boði fyrir foreldra og börn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Persona.is
EYJÓLFUR ÖRN JÓNSSON
SÁLFRÆÐINGUR SKRIFAR
Í ljósi aukinnar umræðu um netfíkn í fjölmiðlum undan-
farið, ákvað ég að fara hér stuttlega yfir helstu áhættuat-
riði netfíknar. Netfíkn er vandi sem hrjáir gjarnan ungt fólk
og því geta vel upplýstir og undirbúnir foreldrar gripið inn
í vandræðaástand áður en það ágerist. Líkt og með svo
margt annað, er best að vinna með vandann snemma.
Þegar um ungt fólk er að ræða hafa foreldrar ákveðna
valdastöðu sem unnt er að nýta til meðferðar og þegar
fólk er eldra, hafa ástvinir og ættingjar ákveðna stöðu
sem hægt er að nýta til að vekja forfallinn einstakling til
umhugsunar. Það er því afar mikilvægt fyrir foreldra, vini
og ættingja að læra að þekkja áhættueinkenni netfíknar.
Grunnskilgreining á netfíkn felst í því að um er að ræða
tímaþjóf og því miða fræðimenn oft við það að þegar net-
notkun hafi náð 38 tímum á viku sé orðið um alvarlegt
vandamál að ræða. Tími tölvunotkunar er því vissulega
eitt fyrsta atriðið sem ber að fylgjast með. Er einstakling-
urinn sífellt að auka tölvunotkun sína á kostnað annarra
athafna? Þegar einstaklingur kýs ítrekað netið umfram
aðrar athafnir sem voru honum mikilvægar áður, er hugs-
anlegt að um vandamál sé að ræða. Mjög fljótlega getur
slík hegðun undið upp á sig og haft áhrif á sjálfsmynd
og félagsfærni einstaklingsins og þannig versnar vandinn
smám saman. En að sjálfsögðu viljum við grípa tímanlega
inn í vandamálin og helst áður en þau verða of alvarleg
og því er mikilvægt að fylgjast vel með og grípa inn í strax
þegar okkur finnst hegðunin vera orðin óhófleg. Gott er
að fylgjast með hvort einstaklingurinn sé mjög upptek-
inn af netinu, hvort hann feli eða neiti að viðurkenna hve
miklum tíma hann verji í tölvunni, sé farinn að ljúga um
tölvunotkunina, segist eiga alla sína vini á netinu eða ein-
ungis spjalla við þá þar, finnist aðrar athafnir orðnar leið-
inlegar og svo hvort einstaklingurinn verði óhóflega reiður
eða pirraður þegar hann er truflaður við tölvunotkunina
eða hún stöðvuð. Þessi atriði er hægt að sjá hjá einstakl-
ingum sem ánetjast tölvunotkun áður en hún nær að
verða það alvarleg að einstaklingurinn verji 38 tímum við
tölvuna og því verður að hafa í huga að vandinn getur
verið til staðar áður en því marki er náð.
Þegar einstaklingar byrja að ánetjast netinu er oft-
ast um að ræða flóttahegðun þar sem þeir flýja óþægi-
legar aðstæður í raunveruleikanum og finna betri veru
í andlitslausu umhverfi netheima. Atriði sem geta leitt
til aukinnar tölvunotkunar eru félagsfælni, lágt sjálfsmat,
einmanaleiki og samskiptavandamál eins og hjóna-
bandserfiðleikar, einelti og langvarandi veikindi eða ein-
angrun. Það er því mikilvægt að fólk fylgist með hvort
börn þeirra eigi í erfiðleikum í skóla eða utan hans og
grípi inn í ef vandamál skapast í umhverfi þeirra. Þegar
börn hætta skyndilega að vilja mæta í skóla, einkunn-
ir lækka og þau hætta að vilja taka þátt í íþróttum og
öðrum utanskólaathöfnum eru það allt þættir sem geta
bent til þess að barninu líði illa og geta svo leitt til þess
að það flýr á netið. Þegar barnið hefur svo eitt sinn flúið
á netið ýkist hegðunin gjarnan sem á undan gekk og það
hættir nánast alfarið að mæta í skóla, læra eða sinna
utanskólaáhugamálum.
Allt of oft velja foreldrar að líta undan og láta börnin
útkljá málin sín á milli en nú til dags í harðnandi heimi
getur slíkt hæglega reynst börnum um megn. Börnin geta
í raun lært að takast á við slík vandamál með því að fara
að fordæmi foreldranna og því er mikilvægt að þau sýni
þeim rétta hegðun í verki.
Umræða, eins og sú sem hefur farið fram undanfarið,
getur vakið fólk til umhugsunar og vonandi haft jákvæð
áhrif á þróun þessa mála. Það er því mikilvægt að foreldr-
ar hvetji börnin sín til dáða og kenni þeim að umgangast
tölvur af hófsemi.
Að kljást við netfíkn
��������������
���������
��������������������������������
A
R
G
U
S
06
-0
35
0
�������������������� ������������������������� ��������
���
������������ �����
�����������������
Sértímar fyrir bakveika
Stelpur - Konur / Staðurinn - Ræktin
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • www.jsb.is
Innritun hafi n á ný í síma 581 3730.
Öfl ug átaksnámskeið fyrir stelpur á aldursbilinu 16-20 og 21-30!
• Líkamsrækt við skemmtilega tónlist
• Leiðbeiningar um mataræði
• Fundir, aðhald, vigtun og mælingar
Kvöldtímar
Um er að ræða 6 vikna námskeið, 3 x í viku.
Vertu velkomin í okkar hóp!
opnu
m
nÝja
n,
stÆr
ri og
enn b
etri
staÐ
!
opnu
narh
ÁtÍÐ
10. se
ptem
ber
kl. 1
4 - 17
Taktu þér tak!
náViltu