Fréttablaðið - 05.09.2006, Side 26

Fréttablaðið - 05.09.2006, Side 26
 5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Hreyfiland er fjölskyldu- og barnvæn heilsuræktarstöð þar sem boðið er upp á ýmiss konar leikfimi fyrir börn og foreldra. Í vetur verður einnig boðið upp á tónlistarnámskeið fyrir ungabörn í Hreyfilandi. Tónlistarnámskeiðin í Hreyfilandi eru hugsuð fyrir þriggja til tólf mánaða gömul börn. „Ungabörn eru mjög næm á tónlist, sérstak- lega klassíska tónlist og fallega tónlist,“ segir Krisztina G. Agu- eda, eigandi og framkvæmdastjóri Hreyfilands. Á tónlistarnámskeiðunum munu börnin hlusta mikið á tónlist og syngja með foreldrum sínum. „Kennarinn spilar á gítar og það verður mikið um lifandi tónlist í tímunum sem eru fjörtíu og fimm mínútur í senn. Foreldrarnir fá síðan geisladisk með lögunum með sér heim svo að börnin geta hlust- að á hann þar,“ segir Krisztina. - eö Tónlist fyrir börn Í hreyfilandi er margt í boði fyrir foreldra og börn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Persona.is EYJÓLFUR ÖRN JÓNSSON SÁLFRÆÐINGUR SKRIFAR Í ljósi aukinnar umræðu um netfíkn í fjölmiðlum undan- farið, ákvað ég að fara hér stuttlega yfir helstu áhættuat- riði netfíknar. Netfíkn er vandi sem hrjáir gjarnan ungt fólk og því geta vel upplýstir og undirbúnir foreldrar gripið inn í vandræðaástand áður en það ágerist. Líkt og með svo margt annað, er best að vinna með vandann snemma. Þegar um ungt fólk er að ræða hafa foreldrar ákveðna valdastöðu sem unnt er að nýta til meðferðar og þegar fólk er eldra, hafa ástvinir og ættingjar ákveðna stöðu sem hægt er að nýta til að vekja forfallinn einstakling til umhugsunar. Það er því afar mikilvægt fyrir foreldra, vini og ættingja að læra að þekkja áhættueinkenni netfíknar. Grunnskilgreining á netfíkn felst í því að um er að ræða tímaþjóf og því miða fræðimenn oft við það að þegar net- notkun hafi náð 38 tímum á viku sé orðið um alvarlegt vandamál að ræða. Tími tölvunotkunar er því vissulega eitt fyrsta atriðið sem ber að fylgjast með. Er einstakling- urinn sífellt að auka tölvunotkun sína á kostnað annarra athafna? Þegar einstaklingur kýs ítrekað netið umfram aðrar athafnir sem voru honum mikilvægar áður, er hugs- anlegt að um vandamál sé að ræða. Mjög fljótlega getur slík hegðun undið upp á sig og haft áhrif á sjálfsmynd og félagsfærni einstaklingsins og þannig versnar vandinn smám saman. En að sjálfsögðu viljum við grípa tímanlega inn í vandamálin og helst áður en þau verða of alvarleg og því er mikilvægt að fylgjast vel með og grípa inn í strax þegar okkur finnst hegðunin vera orðin óhófleg. Gott er að fylgjast með hvort einstaklingurinn sé mjög upptek- inn af netinu, hvort hann feli eða neiti að viðurkenna hve miklum tíma hann verji í tölvunni, sé farinn að ljúga um tölvunotkunina, segist eiga alla sína vini á netinu eða ein- ungis spjalla við þá þar, finnist aðrar athafnir orðnar leið- inlegar og svo hvort einstaklingurinn verði óhóflega reiður eða pirraður þegar hann er truflaður við tölvunotkunina eða hún stöðvuð. Þessi atriði er hægt að sjá hjá einstakl- ingum sem ánetjast tölvunotkun áður en hún nær að verða það alvarleg að einstaklingurinn verji 38 tímum við tölvuna og því verður að hafa í huga að vandinn getur verið til staðar áður en því marki er náð. Þegar einstaklingar byrja að ánetjast netinu er oft- ast um að ræða flóttahegðun þar sem þeir flýja óþægi- legar aðstæður í raunveruleikanum og finna betri veru í andlitslausu umhverfi netheima. Atriði sem geta leitt til aukinnar tölvunotkunar eru félagsfælni, lágt sjálfsmat, einmanaleiki og samskiptavandamál eins og hjóna- bandserfiðleikar, einelti og langvarandi veikindi eða ein- angrun. Það er því mikilvægt að fólk fylgist með hvort börn þeirra eigi í erfiðleikum í skóla eða utan hans og grípi inn í ef vandamál skapast í umhverfi þeirra. Þegar börn hætta skyndilega að vilja mæta í skóla, einkunn- ir lækka og þau hætta að vilja taka þátt í íþróttum og öðrum utanskólaathöfnum eru það allt þættir sem geta bent til þess að barninu líði illa og geta svo leitt til þess að það flýr á netið. Þegar barnið hefur svo eitt sinn flúið á netið ýkist hegðunin gjarnan sem á undan gekk og það hættir nánast alfarið að mæta í skóla, læra eða sinna utanskólaáhugamálum. Allt of oft velja foreldrar að líta undan og láta börnin útkljá málin sín á milli en nú til dags í harðnandi heimi getur slíkt hæglega reynst börnum um megn. Börnin geta í raun lært að takast á við slík vandamál með því að fara að fordæmi foreldranna og því er mikilvægt að þau sýni þeim rétta hegðun í verki. Umræða, eins og sú sem hefur farið fram undanfarið, getur vakið fólk til umhugsunar og vonandi haft jákvæð áhrif á þróun þessa mála. Það er því mikilvægt að foreldr- ar hvetji börnin sín til dáða og kenni þeim að umgangast tölvur af hófsemi. Að kljást við netfíkn �������������� ��������� �������������������������������� A R G U S 06 -0 35 0 �������������������� ������������������������� �������� ��� ������������ ����� ����������������� Sértímar fyrir bakveika Stelpur - Konur / Staðurinn - Ræktin E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • www.jsb.is Innritun hafi n á ný í síma 581 3730. Öfl ug átaksnámskeið fyrir stelpur á aldursbilinu 16-20 og 21-30! • Líkamsrækt við skemmtilega tónlist • Leiðbeiningar um mataræði • Fundir, aðhald, vigtun og mælingar Kvöldtímar Um er að ræða 6 vikna námskeið, 3 x í viku. Vertu velkomin í okkar hóp! opnu m nÝja n, stÆr ri og enn b etri staÐ ! opnu narh ÁtÍÐ 10. se ptem ber kl. 1 4 - 17 Taktu þér tak! náViltu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.