Fréttablaðið - 16.09.2006, Síða 42
■■■■ { nýir bílar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Á GÖTUNNI >>
Á GÖTUNNI >>
2
Fjöldi áhugaverðra nýjunga í bíla-
iðnaðinum eru í gangi um þessar
mundir og meðal nýjunga á sviði
umhverfisverndar eru svo skall-
aðir „hybrid“-bílar sem eru hvort
tveggja í senn bensínbílar og raf-
magnsbílar. Toyota Prius bíllinn er
til að mynda búinn hybrid-kerfinu,
bensínvélin nýtist bílnum í venju-
legum akstri en þegar ekki er þörf
á mikilli orku tekur rafmagnsvélin
við, en auk þess er einnig hægt að
keyra bifreiðina á rafmagnsvélinni
einni sér. Með þessari tækni er bíll-
inn mun sparneytnari en venjulegir
bílar af svipaðri stærð. Toyota Prius
eyðir aðeins 4,7 lítrum á hundraðið
í blönduðum akstri samkvæmt upp-
lýsingum frá Toyota.
Nýlega komst Skoda Octavia bíll
frá Heklu hringinn í kringum Ísland
á einum tanki af dísilolíu. Tækn-
inni hefur fleygt fram á því sviði og
samkvæmt tölum frá Heklu eyðir
bíllinn aðeins 4,9 lítrum á hundraði
í utanbæjarakstri og munar þar um
nýja hreyfiltækni þar sem samrás-
arinnsprautun leiðir til mikils orku-
sparnaðar.
Wolkswagen-fyrirtækið hefur
sett á markað tvo metangasbíla,
annars vegar Wolkswagen Caddy
og hins vegar Wolkswagen Tour-
an. Metangas er unnið úr úrgangi
og er meðal annars hægt að kaupa
það hjá Sorpu hér á Ísland. Útblást-
urinn frá metangasbifreiðunum er
alveg hreinn og kostar rúmmetri
af eldsneytinu sem svarar til 1-2
lítra af 95 oktana bensíni aðeins 88
krónur.
Iðntæknistofnun og fyrirtæk-
ið Kjötmjöl stóðu að rannsókn-
arverkefni á kostum lífdísilolíu.
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir var
ein þeirra sem vann að verkefninu.
„Lífdísilolía er lífrænt eldsneyti
sem er búið til úr jurtaolíum og
sólblómaolíum sem er síðan bland-
að við alkóhól og hvarfað. Það er
bæði hægt að nota þetta beint eða
blanda í dísilolíu.“ Kostirnir við
lífdísilolíu eru að sögn Þórhildar
þeir að losun á gróðurhúsaloftteg-
undum er mun minni auk þess sem
minna sót myndast við bruna þess.
„Þetta er ennþá tilraunaverkefni,
það hefur enginn framkvæmda-
aðili tekið þetta að sér ennþá, en
þetta er mjög gott eldsneyti.“ Ef
lífdísilolía er blönduð 5 prósent á
móti venjulegri dísilolíu þá hefur
það mjög góð áhrif á bruna olíunar
og minnkar mengun frá bílum mun
meira en sem samsvarar þessum
hlutföllum.
Í sátt við umhverfið
Samhliða því að fjöldi einkabíla hefur aukist stöðugt síðastliðin ár, hefur bílaiðnað-
urinn tekið framförum í átt til þess að framleiða umhverfisvænni ökutæki og betra
eldsneyti. Ýmsir nýir bílar brenna mun minna eldsneyti og eru því bæði hagkvæmir
hvað fjárhaginn varðar og umhverfið.
Toyota Prius er svokallaður twin-bíll, hann
er knúinn áfram af rafmagni og hefð-
bundnu eldsneyti.
Hekla selur tvær tegundir metangasbíla hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SX4 er nýr sportjepplingur frá Suz-
uki, bíll með kröftugt útlit, mikla
veghæð, 19 cm, og fjöðrun fyrir
fjölbreyttar aðstæður.
„Crossover“-hönnun SX4 gefur
ökumanni og farþegum meira
rými, hærra aðgengi og betri yfir-
sýn. Intelligent AWD drifbúnaður
SX4 gefur möguleika á framdrifi,
sjálfvirku sítengdu fjórhjóladrifi og
læstu fjórhjóladrifi. Í SX4 samein-
ast eiginleikar fólksbíls og fjór-
hjóladrifinna jeppa.
SX4 fæst með tveimur vélar-
stærðum 1,6 l 107 hestafla og 2,0 l
146 hestafla. Með minni vélinni er
eingöngu boðið upp á 5 gíra bein-
skiptingu, en með þeirri stærri er
val um 5 gíra beinskiptingu eða 4
þrepa sjálfskiptingu.
Margvíslegur búnaður er í boði í
SX4, en mismunandi eftir gerðum.
Meðal annars er boðið upp á tölvu-
stýrða loftkælingu, skriðstilli, vönd-
uð hljómtæki með 6 diska geymslu
og fjarstýringu í stýri. Allir bíl-
arnir koma á 16“ álfelgum.
Öryggisbúnaður er eins og
best gerist, sex öryggisloft-
púðar, 3 punkta belti við öll
sæti, ABS hemlar með EBD
átaksdreifingu og ISO-FIX
barnastólafestingar.
Kröftugur
sportjepplingur
Suzuki SX4 sameinar eiginleika fólksbíls og fjórhjóladrif-
inna jeppa.
Ef einhvern langar í dugmikinn
sportjeppa á fólksbílaverði, þá er
Hyundai Tucson vænlegur kostur.
Útgangspunkturinn í hönnun
bílsins er að sameina það besta
úr fólksbílaflokki annars vegar og
jeppaflokki hins vegar. Veghæð,
aðfallshorn og vaðdýpt hæfir öfl-
ugum jeppaeiginleikum bílsins vel
og þar sem hann er einnig búinn
rafstýrðri driflæsingu, nýtur Tucson
sín ekki síður á vegleysum eða við
slök akstursskilyrði. Þá er fjórhjóla-
drifið aðeins virkt þegar þess er þörf
og nýtur Tucson sín því ekki
síður sem afar rúmgóður
og lipur borgarbíll.
Tucson kom á markað fyrir
tveimur árum og hefur á þeim stutta
tíma unnið til fjölda viðurkenn-
inga. Má þar nefna gullverðlaunin í
sínum flokki í IQS-gæðakönnun JD
Powers og 1. sætið í flokki jeppa og
jepplinga í vali íslenskra bílablaða-
manna á bíl ársins 2004. Þetta er
jafnframt einn af söluhæstu bíl-
unum í 4x4 flokknum, enda þykir
hann sameina mikla fjölhæfni, hátt
búnaðarstig og afar gott verð.
Hátt búnaðarstig
og gott verð
Hyundai Tucson er verðlaunaður sportjeppi á fólksbíla-
verði.
Vélar (B): 1,4 l/75 hö, 1,6 l/110 hö
Vélar (D): 1,4 l/70 hö
Skiptingar: 5g (bsk), 4g (ssk)
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 282 l
Árekstrarpúðar: 4
ABS
Umboð: Brimborg
Verð frá: 1.629.000
Citroën C3 SX
Vélar (D): 3,0 l/218 hö
Skiptingar: 5g (ssk)
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 978-1.909 l
Árekstrarpúðar: 6
ESP stöðugleikabúnaður
Umboð: Sparibíll
Verð frá: 5.490.000
Jeep Grand Cherokee Ltd
3,0 CRD
Vélar (B): 2,5 l/170 hö
Vélar (D): 2,5 l/170 hö
Skiptingar: 5g (bsk), 5g (ssk)
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 840 l
Árekstrarpúðar: 2
ESP
Umboð: Árfell Kia Ísland
Verð frá: 3.675.000
Kia Sorento
Vélar (B): 4,4 l/306 hö, 4,2 l/400 hö
Vélar (D): 3,6 l/272 hö
Skiptingar: bsk/ssk
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 535-2.091 l
Árekstrarpúðar: 6
Terrain Response, fjölþætt DSC og HDC
Umboð: B&L
Verð frá: 9.800.000
Range Rover
Vélar (B): 1,6 l/115 hö, 2,0 l/135 hö
Vélar (D): 1,5 l/86 hö, 1,9 l/130 hö
Skiptingar: bsk/ssk
4-5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 520/780/1.600 l
Árekstrarpúðar: 6
Umboð: B&L
Verð frá: 2.190.000
Renault Megane Sport
Tourer/Saloon
Vélar (B): 2,0 l/129-150 hö, 2,5 l/218 hö,
3,0 l/258-306 hö
Vélar (D): 2,0 l/122-163 hö, 3,0 l/197-
286 hö
Skiptingar: bsk/ssk
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 460-1.385 l
Árekstrarpúðar: 6
Fjölþætt DSC kerfi
Umboð: B&L
Verð frá: 3.670.000
BMW 330i Touring
chevrolet aveo
Vélar (B): 1,4 l / 94 hö
Skiptingar: 5g (bsk), 4g (ssk)
4 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 350-1100 l
Árekstrarpúðar: 4
ABS og EBD
Umboð: Bílabúð Benna
Verð: 1.499.000 (bsk), 1.689.000 (ssk)
Chevrolet Aveo
Vélar (B): 1,4 l/80 hö, 1,6 l/100 hö
Skiptingar: 5g (bsk)
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 268 l
Árekstrarpúðar: 6
Umboð: Brimborg
Verð frá: 1.590.000
Mazda 2
Vélar (B): 3,5 l/270 hö
Skiptingar: 7g (ssk)
5 dyra / 6 sæta
Árekstrarpúðar: 8
ESP stöðugleikakerfi
Umboð: Sparibíll
Verð frá: 7.335.000
Mercedes Benz R350 AWD
Vélar (B): 4,0 l/210 hö, 4,6 l/292 hö
Skiptingar: ssk
5 dyra / 5 sæta
Farangursrými: 1.275 l
Árekstrarpúðar: 6
Umboð: Brimborg
Verð frá: 4.340.000
Ford Explorer XLT 4x4